Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1978, Blaðsíða 8
Jón Engilberts var eftir-
minnilegur og litríkur mað-
ur, sem brá stórum svip yfir
dálítið hverfi og bærinn varð
fátæklegri við fráfail hans. Það
var undravert áræði á fyrriparti
aldarinnar að brjótast til náms í
myndlist úr fátæktinni og van-
þróuninni, sem hér ríkti þá. Samt
gerði Jón það ásamt fleiri braut-
ryðjendum íslenzkrar myndlistar.
Hann átti ekki alltaf sjö dagana
sæla( þetta voru erfiðir tímar fyrir
listamenn og ekki varð lífsbarátt-
an auðveldari eftir heimkomuna
til íslands í stríðsbyr jun.
Við yfirlitssýninguna, sem hald-
in var á verkum Jóns Engilberts
að honum látnum, rann upp fyrir
mörgum til fulls, hver átakamað-
ur Jón hafði verið í myndlist. Það
var stórkostleg sýning og eftir-
minnileg eins og maðurinn sjálfur
að baki verkanna. Þau voru litrík
og sterk og full af ástríðu eins og
hann hafði verið. En umfram allt
frábær listaverk, sem vitnuðu um
tilfinningu og áratuga þjálfun.
Því miður var Jón Engilberts ekki
metinn eins og vert var í lifanda
lífi og mun hann hafa fundið sárt
til þess sjálfur.
er enn á ferðinni
Um þessar mundir
hefst sýning á teikn-
ingum frá námsárum
listamannsins, frum-
drögum verka og
öðrum myndum, sem
hann lét eftir sig og
ekki hafa verið
sýndar áður.
Það átti ekki við Jón Engilberts
að standa í fátæktarbasli. Hann
var heimsborgari með víðan sjón-
deildarhring og lágkúrulegur
kritur, scm heyrir til fámennum
plássum, var honum fjarri. Ilann
hefði þegið að geta haft allan
heiminn undirt búið að vild á
fjarlægum stöðum og geta drukk-
ið í sig framandi áhrif. ísland varð
Jóni Engilberts aldrei sérstakt
yrkisefni. Hann var ekki lands-
lagsmálari eins og margir sam-
tíðarmcnn hans í listinni, sem
mestra vinsælda nutu. Maðurinn
sjálfur var Jóni Engilberts enda-
laust yrkisefnit einkum og sér í
lagi konur og hann gerði meira af
erótfskum myndum en flestir
landar hans fyrr og síðar.
Jón Engilberts vann í skorpum
og var þá hraðvirkur. Áhugi hans
var slíkur, segir Tove kona hans,
að hann var ekki fyrr kominn
framá rúmstokkinn á morgnana,
en hann var byrjaður að teikna.
Þessvegna liggur urmull teikn-
inga og frumdraga eftir Jón. Þær
hafa ekki verið sýndar fyrr en nú
í Norræna húsinu og er að því
mikiH fengur. Jón átti líka 1
fórum sínum mikið af tcikningum
frá námsárunum ytrat kolteikn-
ingar af módelum á brúnleitan
pappfr, sem lfklega hefur verið
notaður vegna þcss hve ódýr hann
hefur verið. Þessum teikningum
hefur verið rúllað saman f stranga
og þrátt fyrir allt hafa þær
varðveizt vel.
Það er hrcssandi viðburður, að
Jón Engilberts skuli vera á
ferðinni einu sinni enn. Kominn er