Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1978, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1978, Page 9
tími til að hann sé metinn að verðleikum. Eitt af þvf sem bíður betri tíma er að géfa út verðuga listverkabók um Jón. En það er dýrt fyrirtæki og markaðurinn ekki stór. Kannski er ekki við því að búast að bókaútgefendur ráðist í slíkt verk. Aftur á móti sýnist það vera kjörinn vettvangur fyrir Menningarsjóð. Teikningar hafa að jafnaði ekki verið mikils metnar, enda næsta fátítt að málarar sýni frumgerðir mynda, eða sjálfstæðar teikning- ar. Þegar blaðað er gegnum stafla af ýmisskonar teikningum, sem Jón Engilberts hefur látið eftir sig, kemur í ljós að hann hefur ekki litið á þær sem ómerkilegt riss. Hann hefur litið á þær sem fullgilt listform og yfirleitt eru þær merktar. Stundum vann hann smámyndir með krítarlitum og bleki eins og sjá má á forsíðunni og hér að ofan. En það skipti ekki máli, hvaða efni Jón hafði í höndunumi alltaf varð hin endan- lega útkoma með svo skýrum pcrsónulegum einkennum, að ekki leynir sér, — jafnvel þótt myndir hans beri fyrir augu eitt andartak og það á löngu færi. Gísli Sigurðsson. ■■■ ■■■ JV A 1 w / ■ Æ mliÉ 1 itll i l mM

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.