Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1978, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 21.05.1978, Page 10
Fjöldi mynda hefur náöst af fljúgandi diskum um víöa varöld og viröast þeir nokkuð sitt meö hverju móti aö lögun. Þessi mynd náöist í Florida i ágúst 1989 og gaf diskurinn frá sér suöandi hljóö. Að neðan til vinstri: Óvenju skýr mynd af fljúgandi diski, tekin yfir fjalllendi Perú í Suöur-Ameríku 1967. Til hægri: UFO, eða ókennilegur fljúgandi hlutur yfir Danmörku. Um borð í fljúgandi diskum Fljúgandi diskar sjást alltaf annað slagið um víða veröld og urmull er nú til af myndum af þeim. Aðeins örfáir hafa þó átt þess kost að skreppa um borð, sjá diskverja augliti til auglitis, eða verið fluttir þangað gegn vilja sínum. Hér segja þrír Bandaríkjamenn frá þessari makalausu reynslu. Frásögn Charles Hickson: Þann 11. október 1973 fórupri viö Calvin Parker úr vinnunni klukkan 3.30. Ég borðaði miðdegisverð og tók til veiði- græjurnar mínar. Það tók sinn tíma. Ætli klukkan hafi ekki veriö rúmlega 5 þegar viö komum aö Pascagoula-ánni. Þaö var farið aö dimma. Við sátum á dálítilli bryggju með færiö út í ánni þegar ég tók eftir undarlegu hljóði — eöa hvissi, það var engu líkara en þegar gufu er hleypt af katli. Ég leit við og sá þá þessi tvö bláu Ijós. Um leið hætti hljóðið. Ljósin voru hlið við hliö og voru nærri eins sterk og bílljós í svo sem 100 feta fjarlægö. Það var alveg greinilegt að þetta var einhverskonar farartæki og ég varö bara alveg agndofa. Ég geri mér ekki grein fyrir stæröinni vegna þess aö þetta var svona á bak við mig. Þó virtist mér þetta geta veriö um þaö bil 90 fet aö lengd og 30 á hæö. Framan á voru kýraugu eöa gluggar — ég sá bara tvö — gátu þó veriö fleiri. Og þegar hljóöiö hætti, þá lyftist þetta ferlíki frá jöröu. Nú var mér ekki fariö aö standa á sama. Og þá var eins og opnaöist hurö á þessu og Ijós sást fyrir innan. Þá birtist eitthvaö kvikt í gættinni — þrennt, sem stóö upprétt og sveif frekar en gekk út. Ég sá móta fyrir fótum þó var þetta ekkert göngulag. Þessu get ég þó ekki lýst nákvæmlega því þegar hér var komiö var ég satt aö segja orðinn mjög hræddur. Calvin var líka hálf-dauður úr hræöslu. Á augabragöi voru þeir komnir að okkur og þrifu í handleggina á mér og ég fann sáran sting. — eða svoleiðis. Höfuöin á þessu voru ekkert lík manns- höföi — enginn háls — andlitin mjög hrukkótt og þverhrukkur líka á handleggj- um og um þá alla. Þetta var ekkert venjulegt hörund, en minnti einna helzt á fílshúö, grátt aö lit og grófgert. Ég get ekki lýst þessu nákvæmlega. EitthvaÖ var þó framan í þeim sem minnti á nef. Svo suöaöi stööugt í einum þeirra. Hendurnar voru líkastar krókum eöa svona „lúffum". Ég get sagt þaö satt, aö ég hef mikiö velt þessu öllu fyrir mér síöan — ég get ekki verið viss, en þetta líktist vélmenn- um. Hreyfingarnar voru svo vélrænar. Ég trúi því statt og stööugt aö þeim, sem suöiö heyröist úr, hafi veriö fjarstýrt — frá ööru geimfari. Jæja, svo var bara eins og ég lyftist frá jöröinni og í þeirra hæö og ég sá aö Calvin var bara alveg máttlaus. Svo var eins og viö liöum áfram í lausu lofti aö farinu og þegar inn fyrir kom var Ijósiö svo skært aö ég blindaðist næstum. Viö vitum ekki fyrir víst hvort Calvin var settur inn í fariö líka. Ég man þaö ekki. Og sjálfur var hann í öngviti. Inni voru veggirnir hringlaga. Ég sjá engan Ijósabúnaö, Ijósin virtust koma úr veggjunum. Þegar þarna var komiö sögu, þá var eins og einhver furöuhlutur eöa hvaö ég á aö kalla þaö kæmi út úr veggnum. Þetta var ekki beint kringlótt — þó, og skoppaöi svona eins og fótbolti. Á þeirri hlið sem aö mér snéri var eitthvaö sem minnti á Ijósop á myndavél og var úr ööru efni eöa öðruvísi á litinn aö minnsta kosti. Ég hef aldrei á ævi minni séö neitt þessu líkt. — Svona hvít-silfrað á litinn. Þetta kom næstum framan í mig og stöövaðist þar nokkrar sekúndur. Svo lækkaöi þaö og fór undir mig. Ég var alveg tilfinninga- laus en var sennilega æöislega hræddur. Ætli ég hafi ekki sagt: „hvaö á aö gera viö mig?“, en — þótt ótrúlegt sé, heyrði ég ekki sjálfan mig segja neitt. Ég hef líklega bara hrópaö í huganum. Ég veit það ekki. Svo hækkaöi þessi hlutur sig aftur í sömu hæö og fyrr og virtist hverfa inn í vegginn. Eg hékk þarna einsog í lausu lofti — gat ekki hreyft mig. Svo eins og svifum viö út um dyrnar aftur og staödæmdumst á sama staö á bakkanum. Calvin stóö þá þar meö útréttar hendur eins og stytta. Ég fann þegar fætur mínir snertu jörðina, en iappirnar kiknuöu undir mér, — líkiega af hræðslunni. Ég fór aö skríöa í áttina til Calvins og þá heyrði ég suöiö aftur. Ég leit viö og sá þá aö Ijósiö úr dyragættinni var horfið og bláu Ijósin bliknuöu og í sömu andrá var allt horfið. Ég varö aö dangla nokkrum sinnum í Calvin áöur en hann rankaði viö sér. Þá fór hann að öskra eins og vitlaus. Hann var bara eins og ruslahrúga en loks gat ég talaö viö hann og hann róaöist þegar ég sagöi honum aö þetta væri horfið. Viö vissum ekkert hvaö viö áttum aö gera. Ég sagöi: „Heyröu, Calvin, viö skulum engum segja frá þessu. Þaö trúir okkur hvort eö er enginn". Frásögn Betty Hill: í september 1961 ákváöum viö, maður- inn minn og ég, aö taka okkur frí. Viö vorum á ferö í Lancaster í New Hampshire þegar viö komum auga á þaö sem okkur sýndist vera stór stjarna — rétt viö tungliö. Þaö var engin umferö um veginn og svo bjart af tunglinu aö viö þurftum varla aö hafa bílljósin kveikt. Nú, þetta Ijós varö stööugt stærra um leiö og þaö nálgaöist og þá sáum viö aö þetta var engin stjarna. Svo breyttist stefnan á þessu, þaö fór fram fyrir tungliö — þá datt okkur Barney í hug aö þetta væri gervitungl. En þegar viö fórum út úr bílnum og fórum aö skoöa þetta í kíkinum, þá sáum viö aö svo var ekki. Þetta var alsett litlum Ijósum og var ílangt að lögun. Við ókum aftur af staö og Barney var alltaf aö segja mér aö fylgjast meö þessu út um gluggann. Þá sá ég aö þaö nálgaöist okkur og „sikk-sakkaöi" í 90 gráöu horn til og frá. Og þegar nær kom sá ég glampa á yfirboröiö, og þetta hringsnérist mjög hratt. Svo nam það staðar yfir þjóöveginum í álíka hæö og 10 hæöa hús. Ég sá tvöfalda gluggaröö og rauö Ijós sitt hvoru megin. Barney fór út og gekk nokkur skref frá bílnum. Þá fluttist þessi hlutur yfir akurinn bílstjóramegin við bílinn. Ég sat kyrr í bílnum og Barney gekk í áttina aö þessu, og horföi á þaö í gegn um kíkinn. Næsta dag sagöist hann hafa séö verur á hreyfingu í gluggunum og honum fannst þær gefa sér merki um aö nema staöar. Þá væri honum óhætt. En líklega varö hann hræddur því hann kallaöi: „Þeir ætla aö taka okkur". Barney hljóp aftur inn í bílinn og viö ókum burt á ofsahraöa. Hann æpti á mig aö fylgjast meö þessu út um gluggann. „Þeir eru beint yfir okkur," sagöi hann. Ég rak höfuðið út um gluggann en sá ekkert. Þegar ég fór aö tala í dáleiöslu seinna kom í Ijós aö ég haföi bara horft á botninn á þessu ferlíki. Þegar ég lokaði bílglugganum heyröum viö bæöi eins og suö í rafmagni og bíllinn titraöi. Viö mæltum hvorugt orö á leiöinni heim. Þaö var engu líkara en við værum aö vakna úr dásvefni. En ég sagði þó við Barney: „Trúir þú aö til séu fljúgandi diskar?“. „Láttu ekki svona", sagöi hann. Þá byrjaöi suöið aftur. Viö ákváöum aö segja engum frá þessu. En svo fór mig aö dreyma um þetta æ ofan í æ. Ég var viss um að þetta heföi veriö fljúgandi diskur eöa geimfar og vel gæti veriö aö viö heföu.n oröiö fyrir líkamlegu tjóni. En Barney varð alltaf reiöur þegar ég minntist á þetta. „Fólk heldur bara að viö séum snargeggjuð,“ sagöi hann. Svo komu tveir vísindamenn og yfir- heyröu okkur og þá kom í Ijós aö þetta hafði allt tekið lengri tíma en okkur var Ijóst. Þeir ráölögöu okkur aö fara til sálfræðings sem notaöi dáleiösluaöferöir og þaö gerðum viö í janúar 1964, þegar Barney var kominn meö innvortis mein- semd. Læknirinn dáleiddi okkur hvort fyrir sfg,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.