Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1978, Page 7
Gísli Sigurðsson rœðir við
KRISTJAN KRISTJÁNSSON
hljöðfœraleikara og fyrrum hljðm-
sveitarstjðra. Fyrri hluti
„ÆFÐI MIG
SVO UNDIR
TÖKÍ
SYÐSTAKOTSBÆNUM
Bærinn Syðstakot, skammt frá Sandgerði. Þar er Kristján fæddur og uppalinn og par hófst
tónlistarferill hans. Myndin er af málverki Þorláks Halldórsen.
Við flettum saman gamalli úrklippu-
og myndabók og ilmur liðinna daga
vaknar og ræöur ríkjum í stofunni á
Laugalæk 11 pessa stund: Kristján meö
fyrstu hljómsveitina í Mjólkurstöðinni,
Svavar Gests og Hallur Sím og fleiri með
honum. Svona var veröldin ung áriö
1947. Síða úr jassblaðinu, sem greinir frá
jasshljómleikum K.K. og stórhug hans.
Þar söng Haukur Morthens, en Kristján
var sjálfur meö átta manna hljómsveit
... Tveir ungir menn, nýkomnir úr peim
fræga Juílliard School of Music: Kristján
og Svavar Gests ... K.K. á hljómleikum
jassblaðsins með saxófóninn og Kristján
Magnússon og Ólafur Gaukur rétt eins
og fermingardrengir. Item að Gunnar
Ormslev var kjörinn vinsælasti jassleik-
ari íslands árið 1951 og burstaklippingin
ekki komin til skjalanna. Jón bassi er
parna líka og Árni Elfar, blautir á bak við
eyrun fyrir æsku sakir og útlendar
stjörnur í heimsókn: Tyree Glenn og
Stan Kenton. Gulnaöar úrklippur í
dagblöðum greina frá hljómleikum í
Austurbæjarbíói, par sem K.K. er
potturinn og pannan og dregur fram í
dagsljósið nýja söngvara. Nú muna víst
fáir eftir Tanner-systrum, sem komu
fram með K.K. sextettinum í Austurbæj-
arbíói og víðar og kannski er líka farin
að fyrnast frægöarför sextettsins til
Noröurlanda og Englands. Einkum og
sér í lagi var peim félögum tekiö með
kostum og kynjum í Noregi: „Island
overrasker með meget god jazz“ segir
í Verden rundt í maímánuði 1954.
Já, svona var veröldin ung eftir stríð
og vinnukonurnar komu í Mjólkurstöð-
ina á fimmtudögum, pví pá áttu pær frí
og allir vissu að fjörið var par sem K.K.
spilaði. Ennpá, löngu eftir aö Kristján
blés síðustu taktana og kvaddi heim
öldurhúsa og dægurlaga, sem verið
hafði líf hans í hálfan annan áratug,
minnist fjöldi manns K.K.-sextettsins
meö gleði, — enda trúlega ófáir, sem
hafa stofnað til kynna við elskuna sína
viö undirspil frá Kristjáni og félögum. En
hvenær og hvernig byrjaði K.K.-sextett-
inn?
Kristján: „Við byrjuöum í Mjólkurstöð-
inni í október árið 1947 og margt hefur
nú breyzt síðan. Þá voru hafta- og
skömmtunartímar og ýmislegt sem vant-
aði ennþá í búöirnar eftir stríðiö. Hugsaðu
þér; þar fréttist kannski að von vaeri á
skóm og fólk fór aö bíða utan við búöina
einhverntíma um miðja nótt og haföi meö
sér kaffibrúsa. En fólk vildi skemmta sér
þá ekkert síður en nú og einn samkomu-
staður, sem allir þekktu þá var í
Mjólkurstööinni viö Laugaveginn. Þar kom
K.K.-sextettinn fyrst fram og þaö var
Svavar Gests, trommuleikari hljómsveitar-
innar, sem átti hugmyndina að nafninu.
Auk okkar voru í sextettinum Steinþór
Steingrímsson á píanó, Hallur Símonar-
son á bassa, Guömundur Vilbergsson á
trompet og harmoníku og Trausti Thor-
berg á gítar. Sjálfur lék ég á alto-saxófón
og klarinet.
Við Svavar Gests vorum raunar búnir
að bralla talsvert sarhan áöur; höfðum
verið í hljómsveit, sem spilaði meðal
annars þarna í Mjólkurstööinni áriö 1945
og það var upphafið að ferli mínum sem
atvinnumaður í dansmúsík. Ekki man ég
alveg, hvernig þetta atvikaöist, en við
vorum fjórir: Róbert Þóröarson á harmon-
Þeir sem voru að
skemmta sér um
og eftir 1950,
kannast ugglaust
vel við pessa
hljómsveit, sem pá
var sú vinsælasta á
landinu:
KK-sextettinn með
Kristján í farar-
broddi. Sigrún
Jónsdóttir syngur.