Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1978, Side 5
Guörún Karlsdóttir. Myndin tekin
á þeim árum, sem hún rak
matsöluna viö Bókhlööustíg ásamt
systur sinni Sesselju.
Minningar frá
námsárum í
Reykjavík við lok
síðustu
heimsstyrjaldar
Fyrri hluti
Eftir Auðunn
Braga Sveinsson
var glaösinna og hélt sig helzt meö
samnemanda sínum Kristni Björnssyni,
síöar sálfræöingi. Björn er nú kunnur
læknir í borginni, sérfræöingur í háls-,
nef- og eyrnasjúkdómum.
DósóÞeus Tímóteusson skáld og
lífsfílósóf sómdi sér vel á meöal læröra
manna, skólapilta og skálda. Hann var
ungur maöur. Hafði ort nokkuð af
Ijóðrænum kvæöum og umgekkst skáld-
lega sinnaöa menn. Birtust eftir hann Ijóö
á víö og dreif í blöðum og tímaritum, en
mun ekki hafa lagt í þaö fyrirtæki aö gefa
út bók á eigin kostnaö eöa betla á
útgefendum. Dósóþeus er þó meira skáld
en margur, sem meira hefur látiö yfir sér.
Finnur Ólafsson heildsali frá Fellsenda í
Dalasýslu. Hann rak heildverzlun mikla í
Freymóður Jóhannesson.
-öBökhlööustíglO
Austurstræti og var auöugur maöur. Hann
var sonur Ólafs Finnssonar hreppstjóra,
er var af Háafellsætt. Hann byggöi
steinhús á Fellsenda áriö 1903, meö þeim
fyrstu sinnar geröar á landi hér. Finnur átti
stóran hlut í hlutafélaginu Hvalur. Gaf
Dalasýslu Fellsenda fyrir elliheimili, sem
nú hefur starfað í allmörg ár. Dvelja þar
nokkrir vistmenn. Finnur var glaður maður
og lífgaði oft upp á lífið í matsölunni meö
léttu máli sínu um allt og ekkert. Hann
mun hafa veriö sjálfstæðismaður af lífi og
sál. Kom þaö glöggt fram, er kosiö var til
borgarstjórnarkosninga um veturinn, en
um þær var allmikiö rætt aö vonum. Á
kosningadaginn óku bifreiir um götur meö
flokksmerkjum í bak og fyrir og þótti
engum mikiö þá, þó að síöar þætti þaö
óhæfur áróöur. Á kjörstööum var sama
háttalag og látið kyrrt liggja af yfirvöldum.
Getur þaö veriö, aö frjálsræöi hafi heldur
minnkaö í seinni tíö? Finnur var allstór
maöur vexti og vel í skinn komið. Hann
var ókvæntur. Hafði dvalizt lengi erlendis
áöur en hann varö heildsali hér heima.
Freymóður Jóhannsson listmálari og
tónskáld. Hann var ræöinn og þægilegur í
viðmóti, snyrtimenni mikiö. Ekki kom
mönnum þá til hugar, aö hann væri
tónskáld, en það kom heldur betur í Ijós
nokkrum árum síöar, er templarar efndu
til danslagakeppni. Sendi hann lög í
keppnina ár eftir ár undir dulnefninu Tólfti
september. Fljótlega vitnaöist hver hinn
eiginlegi lagahöfundur var. Sönglög hans
eöa danslög eru mörg og munu lengi lifa.
Má þar nefna Heimþrá, Litla stúlkan viö
hliöiö og Viö fljúgum. Þessi sönglög eru
frábærlega fögur. Freymóöur var heflaöur
listamaöur, feguröardýrkandi. Málverk
hans af íslenzku landslagi eru einkar
eölileg, en ekki hlutu þau öll náö fyrir
augum listfræöinga og svokallaöra
abstraktmálara. Hann var ekki aö sýnast í
list sinni. Andlitsmyndir Freymóös eru og
kunnar. Þá skal því ekki gleymt aö
Freymóöur var framarlega í fylkingu
góötemplara til æviloka.
Garðar Ólafsson læknanemi frá
Grindavík. Sonur Ólafs Árnasonar kaup-
manns á Gimli s. st. Garðar lauk
læknisfræöiprófi frá HÍ 1954 og hefur
stundaö læknisstörf síðan, lengst viö
Sólvang í Hafnarfiröi. Svo vel vildi til, að
greinarhöfundur og Garöar unnu saman í
byggingavinnu í Rvík sumariö 1949.
Notaði Garöar stúdentshúfu sína í
vinnunni og var hún aö vonum tekin aö
láta á sjá. Um þaö varö til vísa, sem víst er
bezt aö komi hér:
Garðar drjúgum leggur lið
lífsins trúu dáöum.
Stendur nú í styrjarkliö
meö stúdentshúfupottlokiö.
Garöar sótti skemmtistaöi nokkuö og
sió ekki hendinni á móti lífsins lysti-
semdum. Bezti drengur. Gaman við hann
að ræöa í góöu tómi. Svo viidi til, aö faöir
greinarhöfundar haföi á unga aldrei
dvalizt á heimili Ólafs á Gimli í Grindavík.
Bar hann honum og því heimili vel söguna.
Gísli Kristjánsson hét einn ungur
maöur þarna, beinvaxinn og hár vexti.
Vann hjá prentsmiöjunni Eddu og hefur
lengi veriö skrifstofustjóri þess fyrirtækis.
Svo vildi til, aö greinarhöfundur kenndi
syni Gísla, Kristjáni, í Þinghólsskóla í
Kópavogi fyrir nokkrum árum. Sökum
fámennis þekkjast hér fleiri menn inn-
byröis en í öörum löndum. Því fylgir bæði
gott og illt.
Guðni Guðnason, nemandi í Samvinnu-
skólanum. Glaösinna. Hafði gaman af
Ijóöum. Söngvinn og spilaði á harmóniku,
þegar vinir komu í heimsókn hjá honum í
herbergið neöarlega á Laufásvegi. Hefur
starfaö við verzlun lengstaf frá því aö
námi lauk, stundum kaupfélagsstjóri.
Gunnar Sigurðsson, nemandi í Sam-
vinnuskólanum. Knálega vaxinn, stundaöi
íþróttir af kappi miklu. Var í KR. Nú
eigandi Skipaafgreiöslu Jes Zimsen í
Reykjavík. Bar sig vel, hressilegur í fasi.
Halldóra Ólafsdóttir kennaranemi frá
Lambavatni á Rauöasandi. Hún er systir
Magnúsar Torfa, sem allir kannast viö.
Hún lauk kennaraprófi áriö 1950, ári síðar
en undirritaður.
Haraldur Sigurðsson. Ekki gat fariö hjá
því aö tekiö væri eftir Haraldi, svo mikill
sem hann er um heröar og höfuö, enda
hefur hann sýnt svo ekki verður um villzt,
aö í honum býr talsveröur foröi vitsmuna
og starfsorku. Haraldur var fremur þurr á
manninn, en traustur mun hann vera.
Þegar þetta var, starfaöi Haraldur hjá
bókaútgáfu Helgafells, en hóf áriö 1946
starf í Landsbókasafni og hefur gegnt því
síöan. Kunnur þýöandi og rithöfundur.
Ber hæst kortasögu hans, sem hefur inni
aö halda kort af íslandi frá upphafi til loka
16. aldar. Von mun nú á framhaldi af
þessu mikla og þarfa verki, sem greinar-
höfundur mun ekki láta sig vanta fremur
en hiö fyrre Má segja, aö Haraidur sé
sjálfmenntaóur fræöimaöur í fremstu röö
slíkra hérlendis. Hann ræddi mjög viö
Stein Dofra fræöimann og virtist fara vel á
meö þeim.
J6n Sigurbjörnsson
Ingvi Ebenh'ardsson nemandi í Sam-
vinnuskólanum. Ljóshæröur, hrokkin-
hæröur, meðalmaður á hæö, broshýr,
þægilegur. Þetta er sú lýsing, sem bezt
hæfir Ingva. Hann hefur átt heima á
Selfossi alla sína starfstíö og unnið hjá
Kaupféiagi Árnesinga og sýslumanninum
á staðnum. Hreppstjóri á Selfossi frá
1962, þeim mannflesta hreppi landsins.
Ingvi hefur unniö vel og trúlega og á fyllsta
traust skiliö. Honum hefur vegnaö vel í
lífinu, enda ekki undarlegt. Til Ingva orti
undirritaður fyrir jólin 1945, en þeir voru
tveir af fáum, sem borðuðu hjá Guörúnu
um jólin:
Fram til dáöa fetar greitt
fræöabörinn slyngi.
Tíöum járniö hamrar heitt
heillakarlinn Ingvi.
Hljóttu yndi, ást og friö,
aldrei fjúki í skjólin.
Þarna kemur þakklætiö:
þú skalt muna jólin.
Jóhanna (Hanna) Karlsdóttir. Hún var
þá nýlega gift sr. Siguröi Einarssyni skáldi.
Jóhanna kenndi við Miðbæjarskólann.
Síöar varö hún skólastjóri Seljalandsskóla
undir Vestur-Eyjafjöllum, þegar maður
hennar var prestur í Holti í sömu sveit.
Hún var söngvin og Ijóöelsk og mun hafa
reynzt manni sínum mikil hamlngjudís,
eins og Ijóð hans Til Hönnu ber vitni.
Jón Marvin Guömundsson, nemandi í
Handíða- og myndlistaskólanum. Snotur
maöur og heflaður ’í framkomu. Hefur
veriö kennari viö Laugarnesskólann lengi
og kennt handmennt. Er íþróttakennari að
menntun þar aö auki. Hefur stoppaö upp
fugla og dýr.
Jón Sigurbjörnsson leikari og söngvari.
Þegar þetta var, vann Jón hjá Ludvig
Storr stórkaupmanni á Laugavegi. Sterk-
legur maöur meö djúpa rödd og dimma
nokkuð. Jón er fæddur á Ölvaldsstöðum í
Borgarhreppi í Mýrasýslu. Ólst upp í
Borgarnesi. Ásamt starfi hjá Storr
stundaöi Jón tónlistarnám í Tónlistarskól-
anum og leiklistarnám hjá Lárusi Pálssyni.
En þar viö lét Jón ekki sitja, en dreif sig til
New York og nam þar leiklist í tvö ár.
Söngnám stundaöi svo Jón í Milano og
Róm nokkru síöar í þrjú ár. Þar aö auki
hefur hann stundaö söngnám hér heima.
Jón er búinn aö leika frá árinu 1949, aö
undanteknum árunum sem hann stundaöi
Framhald á bls. 15
©