Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1978, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1978, Side 9
vera mannheld, nema á stöku stað. Börnin á Djúpuvík aö leik miðsvmðis í Þorpinu. Þau una sér vel, enda vantar par ekki viðlangsefni. systkin. Aðspurð eru öll börnin sammála um að hvergi vildu þau fremur eiga heima en hér á Djúpuvík. Fjóla Lýðsdóttir 14 ára og elst í hópnum. Hún hefur orðið: „Ég hef hvergi átt heima nema hér og veit ekki hvernig er að eiga heima annars staðar. Jú, ég hef verið í Skóla. Við förum héðan í skólann á Finnbogastöðum í Trékyllisvík. Við förum á bát út að Gjögri og þaðan oftast með bíl. Vegurinn teppist venjulega fljótt á haustin og þá er ekki hægt að komast nema á sjó.“ Getiö þið lokið grunnskólanámi á Finnbogastöðum? „Nei, en eftir þaö förum við á Reykjaskóla í Hrútafiröi." Og verðið þá líka að fara á sjó í skólann: Væri ekki betra að búa einhvers staðar annars staðar, t.d. á Hólmavík? „Nei, það held ég ekki. Þaö er allt í lagi að fara á bát.“ Ætlarðu aö vera kyrr á Djúpuvík, þegar þú ert búin í skóla? Lára vill ekki svara þeirri spurningu. En Lýöur Hallbertsson, faðir hennar ólst upp á Veiðileysu hinu megin fjarðarins en flutti svo til Djúpuvíkur. Hann er nú ásamt bróður sínum eigandi aö Dagrúnu en þaö er 19 tonna bátur og sá eini, sem geröur er út frá Djúpuvík. Auk þess er þar lítil trilla og er þá skipaeign þorpsbúa upptalin. Lára segir að Dagrún sé á rækjuveiðum, þegar þær standa yfir en þeir stundi einnig þorskveiöar og stundum grásleppu eftir árstíma. Rækjuna verða þeir að fara með til Skagastrandar en þorskinn salta þeir sjálfir á staðnum og selja síöan í skip þegar þau koma. Veistu hvað margt fólk býr í þorpinu? „Ég held um 30 manns. Fjölskyldurnar eru sex. í sumum húsunum búa fleiri en ein fjölskylda en nokkur hús standa auö.“ Hvaða atvinnu geta menn stundaö annaö en. sjóinn? „Sumir hafa kindur." En engar kýr? „Það er bara ein kýr og einn kálfur í þorpinu núna.“ „Gaman að leika sér í verksmiðjunni“ Við hvað getið þið leikiö ykkur, það sýnist ekki úr mörgu aö velja? „Það er svo margt hægt að gera, til dæmis leikum við okkur oft í verksmiöj- unni, þar eru stórir salir og skemmtilegt að vera í feluleik og boltaleik." Eru foreldrar ykkar ekki hrædd um ykkur í þessu gluggalausa og hurðalausa gímaldi? „Nei, ekki svo mjög. Alla vegu eru krakkarnir þar oft.“ Þegar unglingarnir á Djúpuvík eru spurö, hvaö helst mætti breýtast til batnaðar í þorpinu að þeirra áliti, hafa þau enga tillögu á reiðum höndum; sem sagt: hér er allt eins og best verður á kosið aö þeirra mati, hér má greinilega fá tyggju- gúmmí og trúlega gosdrykki og sælgæti í versluninni, og annaö sem barnshugur- inn girnist er á staðnum. Og þegar við knýjum dyra skömmu seinna á verslun staðarins, hverjum mætum við þá nema tveimur ungmeyjunum úr krakkahópnum á vagninum. Þær hafa það ábyrgðarstarf á hendi að afgreiða í búðinni fyrir afa sinn, Hallbert Guðbrandsson en hann hefur lengi verið útibússtjóri á Djúpuvík, en er nú fjarverandi sökum veikinda. Verslunar- húsnæðið er hvorki hátt undir loft né stórt aö flatarmáli, og lóöavogin á afgreiöslu- boröinu gæti vel verið frá tímum faktor- anna í kaupstööum landsins, en hún gerir sitt gagn engu að síður. Vörurnar fáum við afhentar með lipurð og Ijúfmannlegu viðmóti, þótt á sunnudegi sé. Fluttu frá Veiöileysu til Djúpuvíkur Þetta var um mannlífið frá sjónarhóli ungu kynslóðarinnar á Djúpuvík. En hvaö um eldri þorpsbúa, sem muna mega tímana tvenna? Um þá hliö lífsbaráttunnar fræðumst við nokkuö af Magnúsi Elíassyni og konu hans, Emelíu Þórðardóttur. Magnús er einn af elstu þorpsbúum. Við hittum hann á gangi, þar sem hann er að koma frá því að líta á túnblettinn sinn innan við þorpið. Hann hefur enn 25 kindur, hiröir þær og heyjar fyrir þær með aðstoð Þórðar sonar síns og barna hans, sem búa á Djúpuvík, en heilsa Magnúsar er tekin að bila enda varö hann áttræöur í fyrra. Magnús var áður bóndi í Veiðileysu og er enn jarðeigandi, á nú fjórða hlutann í þeirri jörð og einnig fjórða hlut í Kúvíkum, en þar var áður um langt skeið eina verslunarmiðstööin fyrir Stranda- sýslu, þó nú sjáist ekki lengur merki þess aö þar hafi staöiö byggð fram undir miðja 20. öld. Magnús og Emelía fluttu frá Veiðileysu 1960 til Djúpuvíkur. Síðan hefur heimili þeirra staðið í litlu húsi efs*. í þorpinu; þangað er upp bratta brekku aö sækja og sést þaðan vel yfir víkina og höfnina. Húsið hafa þau á leigu og segist Emelía hafa getað valið úr mörgum auðum húsum þá, en húsrými hefur lengi verið langt umfram eftirspurn á Djúpuvík, þó nokkur húsanna séu nú orðin óíbúðarhæf. Þau hjónin eiga 6 börn. Öll eru þau fyrir all nokkru flogin úr hreiðrinu og búsett á ýmsum stöðum á landinu nema einn sonur þeirra, sem ílentist í Djúpuvík. Barnabörnin eru 26, plús eitt barna-barnabarn, og ekki er óalgengt aö þau komi og dvelji á sumrin hjá afa og ömmu, auk þeirra sem heima eiga á Sjá nœstu l síðu ® Við vinnu á mjölloftinu í verksmiðjunni 1935. Talið frá vinstri: Magnús Elíasson, Jón Magnússon, Gjögri, Sörli Hjálmarsson Gjögri.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.