Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1978, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1978, Qupperneq 13
í toll. Þegar hann kvaöst ekki hafa ráö á því voru gallabuxurnar teknar af honum. Vinur okkar frá Kongó haföi lagt þykkt rit með pólitískum ræöum Bresjnevs efst í sína tösku, svo ég dró í skyndingu þá ályktun aö þarna færi pólitískur heittrúarmaö- ur. En á milli blaðsíönanna var snyrtilega komið fyrir frönskum klámmyndum. Þær tóku tollararnir líka traustataki. Á skemmti- stað í Moskvu. Seinna geröi þessi ungi verk- fræðingur gys aö „bókmennta- áhuga“ tollaranna, því í írafárinu haföi þeim sést yfir nokkrar gallabuxur. Ekki veit ég hvort þetta klæöis- plagg gildir sem lykill að hjörtum sovéskra stúlkna eöa hvort hátt er á þeim gengiö á svörtum markaði. En augljóst viröist aö stjórnvöld ættu að vinda aö því bráöan bug aö hefja fjöldaframleiðslu á þess- um varningi sem stenzt samanburö viö þann vestræna, eöa eiga á hættu ella aö markaöurinn yfirfyll- ist af smygluöum gallabuxum. Reyndar rifjaöist þarna upp fyrir mér atvik frá því um 1960, þegar ég var á ferö í Leningrad. Ung dönsk stúlka Lis Christensen var nemandi viö hinn fræga Kirov-ballettskóla. Hún haföi togn- aö í fæti svo biö varö á því aö hún kæmi fram opinberlega. Þó var hún orðin þekkt — eöa ætti ég að segja alræmd — fyrir að spranga um götur í eldrauöum síöbuxum. Slíkur klæðnaöur átti ekki upp á pallborðið meðal rússneskra kvenna þá. Ensk stúlka sem var herbergisfélagi þeirrar dönsku sagöi mér: „Þegar Lis gekk niöur Newsky Prospekt geröu rússnesku konurnar hróp aö henni og sögöu aö hún gengi í karlmannsnærbux- um og því væri réttast aö taka hana fasta. En Lis skildi ekki rússnesku og lét sér fátt um finnast." Nú er öldin önnur. Stúdentarnir fóru úr lestinni í Minsk. Eftir aöra nótt í svefnvagn- inum var ég þreyttur og þvældur og þráöi aö komast í baö. Rúss- neska landslagiö er flatt og til- breytingarsnautt. Sums staðar gaf aö líta flokka landbúnaöarverka- manna á samyrkjubúum. Þeir virtust fjölmennir. Oftast hímdu þeir aögeröarlausir. Sumir stóöu þó viö slátt meö orf og Ijá. Ég spuröi unga lækninn hvers vegna tún væru ekki slegin fyrr en í september. Hann sagöi mér aö rússneskir bændur öfluöu ekki heyja fyrr en svona seint til þess aö taöan yröi fjörefnaríkari. Hins vegar virtust jaröarskikarnir í einkaeign í góðri rækt. Sé þetta viðhorf í landbúnaöar- málum ríkjandi í Rússlandi — og lítiö er reyndar á því aö byggja sem sést út um lestarglugga — þá er engin furöa þótt uppskeran á þessum slóöum hafi ollið vonbrigö- um síöustu árin. Klukkan 16 rann lestin inn á brautarstööina í Moskvu sem kennd er viö Hvíta-Rússland. Ég kvaddi lækninn unga sem bjóst viö aö hitta unnustuna á stöðunni. Venjulega taka fulltrúar frá Intourist á móti ferðamönnum á brautarstööinni eöa á flugvellinum og fylgja honum beint til gistihúss- ins. Ég haföi hins vegar þann hátt á aö ég fór sjálfur á skrifstofu Intourist til aö fá upplýsingar um, hvar ég ætti aö búa. Þá varö ég fyrir þeirri reynslu sem er algeng víöa um lönd en ekki í Rússlandi. Engan leigubíl var aö fá. En þá kom aðvífandi einn af þeirri manngerð sem sér sér hag í vandræðum útlendinga og bauöst til að aka mér fyrir 10 dali. Ég prúttaöi viö hann því þetta var meira en þrefalt eölilegt gjald. En ég var ekki búinn aö skipta peningum mínum í rúblur svo ég féllst á að borga honum 5 dali. Hjá Intourist kom í Ijós aö ekkert hótelherbergi var pantaö fyrir mig, og þegar ég sýndi kvittunina um aö ég væri búinn aö borga 2800 krónur fyrir ferðina meö morgun- veröi og gistingu, var mér sagt aö þeir á dönsku feröaskrifstofunni heföu ekki útfyllt þann reit á plagginu þar sem átti aö standa aö Rússar skyldu fá sína þóknun. Kvenfólkið handan viö af- greiðsluborðið var vingjarnlegt en einbeitt. Ég yröi aö borga þetta allt einu sinni enn og í erlendum gjaldeyri. Síöan fengi ég allt endurgreitt í Kaupmannahöfn. Þetta tók ég ekki í mál þar sem aleiga mín var 160 dalir en þessi greiösla hljóöaöi upp á 150 dali. Ég tók aö mótmæla hástöfum svo fleiri viðstaddir fengju aö heyra um þessa meðferð á mér. Ég dró upp bréf til staðfestingar á því aö ég ynni viö fjölda dagblaða. En ekkert dugöi. Loks er mér sagt að nafn mitt veröi skrifaö í dálk undir „óstaö- festar pantanir" og þaö látiö fylgja aö þeir þarna viti vel hvaö þaö þýöi af gamalli reynslu og hafi ákveðnar fyrirskipanir um hvernig skuli höndla slík mál. Loks komumst viö aö samkomu- lagi. Ég borga 31 dal fyrir eina nótt og málsverö og treysti því aö úr þessu greiðist á morgun. í þetta þras fóru þó þrír dagar af dýrmætum tíma mínum í Moskvu og lauk meö því aö danska sendiráðið í borginni bauð mér afnot af „telex“-tæki sínu svo máliö leystist. Byrjunin var því ekki upp á þaö allra bezta í þessari heimsókn minni, sem aö ööru leyti varö hin ánægjulegasta. dagbók Göbbels Um það bil, er Rauði herinn var búinn að ná Berlín á sitt vald, í maímánuði 1945, voru sovéskum þýðanda fengnir í hendur miklir staflar dagbóka úr neðanjarðar- byrginu þar sem Hitler og nánustu undirmenn hans höfðust við undir lokin. Þessar dagbækur lentu síðar á söfnum í Moskvu, Austurþýzka- landi og Vesturþýzkalandi. En nú ekki alls fyrir löngu kom ein þeirra í leitirnar og var gefin út. Þetta var ein af dagbókum Josef Göbbels, áróðursmálaráðherra Hitlers í 12 ár. Hún varð metsölubók þegar í stað. Sú var tíðin, að Vesturþjóð- verjar kærðu sig lítt um að rifja upp nasistatímann og seinnistríðs- árin. En tímarnir eru breyttir. Nú orðið seljast bækur um nasista einna bezt allra bóka í Vestur- þýzkalandi. Göbbels virðist hafa hugsað sér að hafa þessa dagbók sína að uppistöðu í aðra bók. Hann leiðrétti ekkert, strikaði út eða endurritaði, og ber bókin öll blæ líðandi stundar hverju sinni, þótt þar sé á hinn bóginn fátt að finna sem ekki var vitað fyrir. Dagbókin hefst í febrúarlok 1945 og henni lýkur 10. apríl. Það lætur að líkum, að höfundinum er jafnan heldur dökkt fyrir sjónum; það liggur við borð, að þýzki herinn bíði nýjan ósigur á hverj- um degi og bersýnilegt, að hann hlýtur að verða gersigraður innan fárra mánaða. Það má heita, að flestallir staðir sem nefndir eru i bókinni séu í rústum. Cologne „sú mikilfenglega borg er í rústum". Dessau „stendur í björtu báli og er hún gereydd. Enn ein þýzk borg fallin í rústir". Loftárásirnar eru „orðnar tryllingslegar. Við erum algerlega varnarlausir við þeim. Ríkið verður bráðum lagt í eyði ef þessu heldur áfram". Hinn 19. marz berast Göbbles þær fregnir, að gerðar hafi verið loftárásir á Wúrzburg. Þann dag ritar hann: „Síðasta fagra þýzka borgin lögð í eyði. Arfleifð okkar er á förum, og við munum aldrei heimta hana aftur“. Hann kemst svo að orði, að „líf ríkisins hangi í bláþræði" og þykir einsýnt, að bandamenn muni fara með Þýzkaland „eins og svertingjanýlendu í Afríku" eftir stríðið. Hann verður bæði. sár og reiður er hann fregnar það, að óbreyttir þýzkir borgarar hafi tekið banda- mönnum fagnandi. „Mér er ómögulegt að skilja það hve fólk hefur veitt bandamönnum litla andspyrnu“, segir hann um þetta. Einkum sárnaði honum, er hann frétti að fólk í heimabæ hans, Rheydt, hefði fagnað komu Banda- ríkjamanna. „Ég roðnaði af blygð- hafa gert neitt nema vitleysur, eigi hann „óslitinn feril mistaka" og sé það raunar engin furða að flugher- inn brást. En það sé höfuðorsök ósigursins. Ósigurinn sé því Göring að kenna fyrst og fremst. „Mesta ógæfan og höfuðorsök ósigursins var sú, að loftvarnirnar reyndust veikar ... Göring er rígmontinn asnakjálki, sem angar af ilmvatni og stendur varla undir orðunum, sem hann hengir utan á sig ... Foringinn hyllist til þess að Göbbels t.v. og Göring. un, þegar ég frétti það“, segir hann. „Meira að segja var dregin upp hvít veifa á stöng á húsinu þar sem ég fæddist.“ Hann átelur Bandaríkjamenn fyrir það „óviðurkvæmilega framferði" að þeir sungu „God bless America" að endaðri messu í dómkirkjunni í Cologne. Og 2. apríl skrifar hann: „Hverjar auðmýkingar skyldum við verða að þola enn áður en stund lausnarinnar rennur upp?“ Hann kennir hershöfðingjunum þýzku um ófarir hersins. Sakar hann þá um hugmyndaskort og vanhæfi til forystu. „Það er verst, að Foringinn hefur svo fáa hæfa herstjórnendur sér til aðstoðar". Verst er honum við flugherinn og einkum þó illa við Hermann Göring yfirmann hans. Hann kveður Göring gersamlega óhæfan til forystu, orðinn veikgeðja og spilltan og óskar þess heitt, að Foringinn taki í hnakkadrambið á honum. Hann kveður Göring ekki bera í bætifláka fyrir Göring. Það er afleitt. Mér finnst hann ekki eiga neina samúð skilið. Það er honum að kenna hversu komið er fyrir Ríkinu ... “ Yfirleitt hnýtir Göbbles í flest- alla samstarfsmenn sína, er hann nefnir í bókinni; honum liggur bara misilla orð til þeirra. Hann sveigir jafnvel að Foringjanum sjálfum. Að vísu kveður hann það ævinlega vekja sér „ákafa hrifn- ingu“ er hann sjái Foringjann. En hann er orðinn langþreyttur á því, þegar þarna er komið sögu, hve Hitler er óráðþægur. Hann fæst ekki til að þiggja ráð af neinum. Einkum gremst Göbbels það, að Hitler er ófáanlegur til þess að flytja ræðu í útvarp þótt það yrði örugglega til þess að stappa stálinu í þjóðina. Minnir Göbbels Foringjann á ræðuna, sem Churchill hélt eftir hrakfarir Breta við Dunkirk og ræðuna, sem Stalín hélt þegar Þjóðverjar réð- ust á Moskvu. En þetta kemur fyrir ekki. Hitler þverneitar að tala til þjóðarinnar. „Foringinn hefur einhverja óskiljanlega óbeit á hljóðnemanum", ritar Göbbles. Framhald á bls. 15 Dómkirkjan í Köln og húsarústir 1945. Litla myndin: Göring, Hitler og Göbbels.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.