Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1978, Side 15

Lesbók Morgunblaðsins - 24.09.1978, Side 15
«r hugskoti %Vood« *ll*n 1 BG FéKK FyœsTAHUSA 'a stelpum ptGftfZ ÉG MK 20 'AZA OG FÓf? í ,l/eknisle:ik"\/ie> stelpuma r' WOOPy FR/EUPt, SEGPU MÉR EITTHVAP UM STApREYNPIK HSSlNS. > ÉG veit; EN (?AO ER SKEMMTI- LEGRA, ÞEGAR |=>a 7-2L ..NEMA Þe.lM KAFLA, pEGAf? ÞÚ FÆRP GLAMPA í AUGJN OG PEPP AP FLISSA - __/ ERTU EKKI ORPINN LElPUR "A Þvi'? - Kostgangarar hjð Guörúnu ö Bökhlööustig 10 Framhald af bls. 5. nám erlendis. Jón hefur reist sér og fjölskyldu sinni bústaö á Helgastöðum í Biskupstungum og unir þar þegar tóm gefst frá störfum. A hesta og hefur gaman af þeim. Kona Jóns er Þóra Friðriksdóttir, þekkt leikkona. Óefaö er Jón meö mestu bassasöngvurum sem nú eru uppi, enda hefur hann sungið viö jafn fræga óperu og Stokkhólmsóperuna. Jón er léttur í máli og Ijúfur í viökynningu. Kjartan Jóhannsson. Varö frægur hlaupari á tímabili. Stundaöi verzlunar- nám. Maöur lipurlega vaxinn og léttur í hreyfingum. Kristinn Björnsson, nemandi í 6. bekk M.R. Maöur stilltur vel. Fálátur. Lauk stúdentsprófi um voriö. Hlaut verðlaun úr gullpennasjóöi skólans fyrir námsafrek. Er greinarhöfundi í minni, er Guörún mat- selja óskaöi Kristni til hamingju meö þennan sigur. Kristinn miklaöist ekki af þessu, enda gáfaöur maöur. Hann lauk kandídatsprófi í sálarfræöi viö Oslóarhá- skóla og stundaöi síöar nám í sálsýkis- fræöi barna viö Ríkisspítalann í Osló. Hefur nú starfaö í mörg ár sem sálfræö- ingur viö Sálfræöideild skóla í Reykjavík. Hefur haft mörg störf á hendi af skyldum toga. Kristján Georgsson frá Vestmannaeyj- um. Hann var viö nám í Verzlunarskólan- um. Kaupmannssonur. Stilltur maöur. Er nú nýlega látinn, langt um aldur fram. Théódór bróöir Kristjáns boröaöi þarna einnig, og kemur síðar aö honum. Leifur Haraldsson. Þjóökunnur maöur á sinni tíö og mun þar mestu hafa valdið persóna hans og ytra fas. Hann var fljúgandi greindur, málamaöur góður, skáldmæltur og ritfær. Um þetta leyti var Leifur prófarkalesari hjá Helgafelli. Eitt sinn var Leifur i fæöi á Ingólfskaffi. Einhverju sinni var hann fjarverandi frá matsölustaðnum. Þegar hann fékk reikn- inginn yfir síöasta mánuöinn haföi ekki veriö dregiö frá vegna daganna, sem hann boröaöi ekki. Þótti Leifi þaö aö vonum hart, og varpaöi hann þá fram þessari vísu, sem margir kunna: Ungu skáldin yrkja kvæöi án þess aö geta þaö. Á Ingólfskaffi er ég í fæöi án þess aö éta þaö. Stundum fylgdist sá sem þetta ritar meö Leifi eftir mat, út í bæ. Eitt sinn barst í tal frumvarp þaö, sem Jónas frá Hriflu flutti á Alþingi um þessar mundir varöandi titil íslenzkra kvenna. Lagöi Jónas til aö þær yröu allar titlaöar frúr, til þess aö komast hjá aö fara í manngreinarálit. Datt þá Leifi í hug eftirfarandi vísuhelmingur: Nú eru allar orðnar frúr, sem áöur voru piparmeyjar. Baö Leifur undirritaöan aö botna: Svona er allt í sama dúr, sem þeir vinna, þingsins peyjar. Leifur var ræöinn maöur, þó aö hann væri nokkuö málhaltur, stamaði mikiö. Hann veröur ógleymanlegur þeim sem honum kynntust. Leifur lézt sumariö 1972, rúmlega sextugur aö aldri. Hann var Samvinnuskólagenginn. Stundaöi skrif- stofustörf og þýöingar. Síðustu árin vann hann á pósthúsinu í Reykjavík — í orlofsdeild og átti oft annríkt þar. Leifur þýddi nokkrar bækur og smásögur, sem birtust í blöðum og tímaritum. Gaf út tímaritið Það bezta, en af því komu alls út þrjú hefti. Leifur var ágætur íslenzku- maður. Magnús Torfi Ólafsson blaöamaöur viö Þjóðviljann. Ekki veröur þaö sagt, aö Magnús léti mikiö á sér bera þarna. Hann gekk meö stúdentshúfu, enda skammt um liðið síöan hann lauk prófi frá Menntaskól- anum á Akureyri. Magnús hengdi frakka sinn snyrtilega upp frammi í anddyrinu og lagði stúdentshúfuna upp á hilluna þar fyrir ofan. Þaö sem auðkenndi Magnús Torfa öðru fremur var snyrtimennskan og hæverskan. Hann ræddi lítt viö menn af fyrra bragöi, en maöur komst ekki hjá aö veita honum nokkra athygli. Pétur Jóhann Magnússon, nam bók- band, síöar verkstjóri í Sveinabókband- inu. Glaösinna maður, þægilegur í viðkynningu. Geröi sér ekki mannamun. - Ur dagbök Göbbels Framhald af bls. 13 „Það er höfuðógæfa. Þjóðin þarfnast þess nú fremur en nokkru sinni fyrr að heyra í Foringja sínum og mér finnst óréttlátt að neita henni um það“ ... Það vekur furðu manns við lesturinn að Göbbles, virðist endrum og eins hafa gert sér vonir fram á síðustu stundu þrátt fyrir það, að þýzki herinn bíður sífelldan ósigur og herir bandamanna nálgast Berlín óðfluga. Hann er að ímynda sér, að hin eða þessi kraftaverk geti nú gerzt — skyndilegur matarskortur eða kjaradeilur verði á vesturlönd- um, Þjóðverjum takist að semja sérfrið við Sovétmenn o.s.frv. Hann hvetur Hitler til þess að láta þjálfa flugmenn til sjálfsmorðs- ferða, stofna hersveitir kvenna („Ætli karlmenn mundu þá ekki hugsa sig um tvisvar áður en þeir hlypust undan merkjum", segir hann), stofna herdeildir fanga o.s.frv. Hann rifjar upp fyrir sér mannkynssöguna og leitar með logandi ljósi að dæmum þess, að aðþrengdum þjóðum tókst að forða sér við ósigrum á elleftu stundu. Kemst hann að lokum að þeirri niðurstöðu, að „enginn efi leiki á því, að vér Þjóðverjar getum sigrað ef heppnin er með“ Hann gerir sér að vísu ekki vonir um algeran sigur. En hann ímyndar sér, að Stalín muni tilleiðanlégur að semja sérfrið („Stalín þarf ekki að taka neitt tillit til almenningsálitsins.“) Þeg- ar Þjóðverjar séu búnir að komast að friðarsamningum við Sovét- menn geti þeir snúið sér að bandamönnum af fullum kröftum. Fyrir kemur reyndar, að hann talar af viti. Hann spáir því t.d., að Churchill muni velta úr valda- sessi eftir stríðið. En mestan part er dagbókin þrugl, og allbrjálæðis- leg á köflum. „Gyðingar eru að sækja í sig veðrið", ritar Göbbels í marz. „Öllum, sem fá færi á því be.r skylda til að drepa Gyðinga eins og rottur hvar sem þeir fyrirfinnast. Svo er guði fyrir að þakka, að okkur Þjóðverjum hefur orðið vel ágengt í því að útrýma Gyðingum. Ég vona aðeins, að aðrar þjóðir beri gæfu til þess að taka okkur sér til fyrir myndar ...“ Tuttugu dögum eftir, að Göbbles endaði dagbók sína óku sovézkir skriðdrekar inn í Berlín. Hitler hafði framið sjálfsmorð daginn áður. Þá var öllu lokið. Göbbels gerði sér engar vonir framar. Hann gaf börnum sínum sex inn eitur, skaut því næst konu sína, og loks sjálfan sig. - Úr TIME.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.