Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.1980, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.1980, Blaðsíða 5
Sturla Friöriksson Fæðukeðja Úr fjarlægö varpar sólin geislaglóö og gulll slær á fjöllin hvít og bleik, og vötnin spegla loftsins litaflóð. En landiö er að hyljast kolareyk. Og niöur fjalliö seitlar silungsá, hin silfurtæra, himinbláa rák, sem vökvar grænan lund og stöku strá meö standard olíu og fitubrák. í þessum lundi ungur ormur skreiö í aldinleit um fögur reynitré. En undir lágri grein hans bani beið á blaöi, sem var úöað D.D.T. Þar veittust þresti auðveld fæöuföng er feitan orminn setti nefið í, og lét um skóginn óma ástarsöng, sem ekki heyrðist fyrir vélagný. Og þennan litla vorfugl valur sló, því varla nokkur undan honum flýr. En vargur þessi sjálfur síöan dó, er seinna festist hann á gaddavír. En fálkann tamið haföi máttur manns, sem miklum jaröarauöi kom í þrot. En seinna munu finnast förin hans, viö fornan öskuhaug og sprengjubrot. Þetta kvæði var jafnframt ort á ensku og nefnt „The Oid Web of Life“. Var það flutt í lok alþjóðaráðstefnu um umhverfismát, sem haldin var hér í Reykjavík í júnt 1977. Fjallaði hún um „Vöxt án vistkreppu“ (Growth without Ecodisaster) og var skipulögö af hinum þekkta líffraeðingi Nicholas Polunin. En ráðstefnuna sátu fjöldi kunnra vísinda- manna. Erindin, sem þar voru flutt, birtust í bók, sem gefin er út í Bandaríkjunum og þar með þetta kvaaði á ensku. Martin Götuskeggi Frost föðurlandsfylkingin fylkist um flokkinn og leiðtogann hanzkar og belti og stígvél sameinast um fánann og heilsa honum lúörablástur gefur til kynna viðbragðsstöðu hraöbrautir leggjast á landslagiö draga aö sér vegfarendur sem fæöast klæöast og læöast á færibandi inn í eilífðina úr speglinum horfast í sólgleraugu viö raunveruleikann Þorsteinn Gylfason FJÓRTÁNLÍNUNGUR EFTIR FJÓRTÁN SKÁLD Sá einn er skáld, sem skilur fuglamál. Og skýjaflotar sigla yfir lönd. Svo rétt oss lífsins djúpu, dýru skál: viö dvöldum ein viö hraunsins gráu rönd. Láttu þá hjartaö vera fullt af friö, svo fljótt kom grasiö undan ís og snjó. En lakast mun þó flestum feörum viö: þú feröast gegnum dimman kynjaskóg. En veiztu aö seinna sól þín vex af mér — nú svífur vetrarnóttin dimm og löng —- vorboðinn Ijúfi, fuglinn trúr sem fer meö fimbulþassa undir helgum söng! Sú heimsvon öll, sem barmur mannsins ber, þaö boröar hana dalakindin svöng. VERÐLAUNASAMKEPPNI Höfundurinn hefur notað fornfrægt form, þar sem því bragði er beitt að raða saman ljóðlínum kunnra skálda: Hér eru fórtán ljóðlínur eftir fjórtán skáld. Til ‘gamans verður efnt til verðlaunasamkeppni af þessu tilefni. Lausnin er fólgin í að telja upp skáldin í sömu röð og þau koma fyrir í ljóðinu og er skilafrestur til 30. júní. Komi margar réttar lausnir, verður dregið úr þeim og verðlaunin eru heildarútgáfa Skuggsjár á verkum Einars Bene- diktssonar. CENTO Langt er síðan menn fóru að gera sér það til gamans að raða saman ljóðlínum skálda og mynda þannig ljóð. Formið heitir Cento á latínu og má geta þess, að Hellenar gerðu slíkar samantektir úr verkum Hómers og Rómverjar sóttu í Virgil. Löngu síðar — á miðöldum — tíðkaðist, að menn færu í smiðju til Rómverja og þá Virgils. Algengast var þá að farið væri í verk eins skálds og ljóðlínur stokkaðar saman, stundum í alvöru en stundum í spaugi. Á Endurreisnartímanum átti sér einnig stað, að þetta væri reynt í óbundnu máli; til dæmis kom þá út sérstök bók — Cento — þar sem hver setning er eftir Cicero. Þessi iðkan deyr síðan að mestu út, en einkum og sér í lagi átti þetta sér stað, meðan sjálfsagt var að námsmenn lærðu latínu og kunnu þá skil á Cicero, Virgli og Hórasi. Þorsteinn Gylfason kvaðst ekki vita til þess, að þetta hafi verið reynt fyrr á íslenzku. Tilefnið var fimmtugsafmæli Matthíasar Johannessens og Sveins Skorra Höskuldssonar og gaf Þorsteinn þeim báðum ljóðið í afmælisgjöf.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.