Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.1983, Page 4
■ÐEY
3. hluti
Gísli Sigurðsson
tók saman
Ólafur sekrétéri
Enn halda Stephensenar velli
og við búsforráðum í Viðey tek-
ur Olafur sonur Magnúsar.
Hann var lærður í lögum og
dómsmálaritari um tíma og af
þeim sökum ævinlega kallaður
Ólafur sekrétéri. Hann var
dugnaðarmaður, hélt búskapn-
um vel í horfinu og rak
prentsmiðjuna. Kannski bætti
hann engu við það sem fyrir var
í Viðey, en sérstaka alúð og
ræktarsemi sýndi hann skrúð-
garði þeim hjá Viðeyjarstofu,
sem Skúli hafði lagt grundvöll-
inn að. Lítið, eða raunar alls
ekki neitt, sést nú eftir af garð-
inum þeim.
Þegar mikið var við haft á
fögrum sumardögum, voru gest-
um gjarnan bornar veitingar út
í garðinn og sátu þeir þá á
bekkjum undir húshliðinni.
Fyrir kom, að þeir stukku upp
með ofboði, því æðarkollur
höfðu gert sér hreiður undir
bekknum og kroppuðu í fætur
gestanna. Þetta sýnir, að æðar-
fuglinn var orðinn svo taminn
og gæfur, að æðurin varp í nánu
sambýli við mannfólkið, allt í
kringum Viðeyjarstofu.
Ólafur sekrétéri andaðist árið
1872 í Viðey. Magnús sonur hans
tók þá við búi og hélt öllu vel í
horfi. Hann átti einn son, sem
nam guðfræði og varð prestur
úti á landi. Þarmeð slitnaði
þráðurinn; Viðey gekk úr eigu
Stephensenættar árið 1903, en
það var þó aðeins í bili.
Búskapur
Eggerts Briem
Ný öld, sem enn er ekki öll, nýir
herrar og nýir siðir, en grasið í
Viðey bylgjast enn sem fyrr og
Viðeyjarstofa stendur líkt og
tákn um 150 ára glæsilegt við-
reisnarskeið í eyjunni. Þá gerist
það á fyrstu árum aldarinnar,
að Eiríkur Briem prestaskóla-
kennari festir kaup á Viðey og
fær hana til ábúðar Eggert syni
sínum, sem var dugnaðarmaður
og hafði lokið prófi í landbúnað-
arfræðum í Danmörku.
Hjól atvinnulífsins tekin að snúast í Viðey. Spor iiggja frá stakkstæðunum á bryggjuna og hér eru tveir vagnar með saltfieki, tHbúnum tH
útskipunar. Ljósm. Magnús Ólafsson. Kópía: Ljósmyndasafnið h/f.
Thor Jensen varö driffjöörin í
Stööinni á Sundbakka. Þeir Pétur
J. Thorsteinsson og Thor Jensen
lögðu stórfé í fyrirtækið, en sam-
búðin við Möller forstjóra í Höfn
olli sárum vonbrigðum og höfðu
bæði Thor og Pétur verulegan
skaöa af, þegar þeir drógu sig út
úr rekstrinum.
Eggert reisti bú í Viðey vorið
1903.
Jónas Magnússon í Stardal
vann við bústörf hjá Eggert
Briem í Viðey og hefur hann
skráð endurminningar sínar um
þá veru og birtust þrjár greinar
eftir Jónas í Lesbók fyrir réttum
20 árum. Þar segir Jónas frá því,
að þegar á fyrsta búskapar-
sumri sínu byggði Eggert 48 kúa
fjós og heyhlöðu yfir 3.000
hestburði og mun þá engin
hliðstæða hafa verið til á land-
Hjónin Eggert
Briem
búfræðingur og
Katrín dóttir
Péturs J.
Thorsteinssonar
á Bíldudal, hófu
stórbúskap í
Viðey 1903. Þau
sátu þetta forna
höfuðból með
glæsibrag, en
erfitt var að
koma mjólkinni
á markað, fyrst
með báti yfir í
Laugarnes og
þaöaná
hestvögnum
niður í
Aðalstræti.
Stórbúskapur
og ■
Milljónarfélag