Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1983, Side 2
Síðari tíma abstraktmynd
eftir Finn: Tvístirni, 1975.
Andromeda, 1975.
Byggði hús fyrir
eina mynd sem
seld var í Noregi
Kafli úr texta Indriða G. Þorsteinssonar
í bókinni um Finn Jónsson
.2
Æ
Teningnum kastað, 1925.
Frægasta abstraktmynd
Finns og aiveg í sama stíl
sem varð allsráðandi hér
og víðar 30 árum síðar.
Fínnur
Jónsson
Ný listaverkabók
Um þessar mundir kemur út á vegum Bóka-
klúbbs Almenna bókafélagsins vönduð iista-
verkabók um Finn Jónsson, listmálara, sem
nú hefur senn einn um nírætt og er aldurs-
forseti íslenzkra listamanna. Frank Ponzi,
listfræðingur, hefur valið myndirnar í bókina
og spanna þær allan feril Finns, — og sér
hann einnig um útlit bókarinnar og útgáfu,
og ritar ítarlega ritgerð um list Finns Jóns-
sonar.
Indriði G. Þorsteinsson ritar í bókina um ævi
Finns og byggir á samtölum sínum við lista-
manninn og fara hér á eftir stuttir kaflar úr
ritgerðum þeirra Indriða og Franks Ponzi.
Finnur Jónsson er brautryðjandi abstrakt-
myndlistar á íslandi og því hefur Lesbók
valið myndir eftir hann af því tagi en í bók-
inni eru myndir sem sýna allan þann langa
feril sem Finnur Jónsson á að baki.
Gamla selaskyttan situr í djúp-
um stól í stofu sinni á Kvisthagan-
um í Reykjavík og lætur hugann
reika. Sextíu ár eru nú liðin síðan
Finnur Jónsson tók sig upp frá
myndlistarnámi í Kaupmanna-
höfn og hélt til Berlínar til að
læra upp á nýjan tíma. Sá tími
fyrirfannst ekki í dönsku listaaka-
demíunni. Þessi atvik rifjuðust
upp með óvæntum hætti þegar
Evrópuráðið efndi til málverka-
sýningar í Strassborg vorið 1970.
Þessi sýning var um myndlistina í
Evrópu árið 1925, og stóð frá 14.
maí til 15. september. f stofunni
hjá Finni eru þrjár myndir málað-
ar þetta ár. Tvær þeirra fóru á
sýninguna í Strassborg og skipuðu
honum á stundinni í hóp fremstu
expressjónista álfunnar frá fyrstu
áratugum aldarinnar. Þar situr
hann í hópi með Vassily Kand-
insky og Paul Klee. En þetta skipti
nú ekki miklu máli hér heima.
Danir voru ekki byrjaðir í fram-
úrstefnulist þegar Finnur var að
læra, og þess vegna gátu þeir ekki
verið með í sýningunni í Strass-
borg. Myndlistina í Evrópu árið
1925 töldu stjórnendur sýningar-
innar hápunktinn. Og þeir völdu
Sturm-tímabilið, en til Sturm-
hópsins taldist Finnur. Þá var
þyngdarpunkturinn í myndlistinni
í Berlín en ekki í París. En Frakk-