Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1983, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1983, Side 4
750 námsmenn í verkfræði- og raunvísindadeild Verkfræði- og raunvísindadeild var stofnuð árið 1968 þegar kennsla raungreina til BS-prófs hófst við Háskóla Islands. Verkfræðikennsla hófst við Háskóla íslands á stríðsárunum, þegar siglingar voru óöruggar eða tepptar til Evrópu, en lengst af var aðeins kenndur fyrri hluti verkfræðinnar hér heima, en náminu lokið erlendis, oftast í Danmörku. Síðan 1968 hefur Háskólinn útskrifað verkfræðinga með fullnaðarprófi. Nú eru skráðir í deild- inni tæplega 750 stúdentar, en hún skiptist í 18 línur í 8 skorum: þrjár verkfræðiskorir, byggingar-, véla- og rafmagnsverkfræði; eðlisfræðiskor með sérstökum línum í eðlisverkfræði og jarðeðlisfræði auk hreinnar eðlisfræði; efnafræðiskor með sérstökum línum í efnaverkfræði og matvælafræði auk efnafræðinnar; stærðfræðiskor og jarðfræðiskor sem skiptist í jarðfræði-, bergfræði- og landafræðilínur. Fastir kennarar deildarinnar eru 54, en auk þess kennir við deildina fjöldi stundakennara. Föstu kennararnir stunda flestir rannsóknir sínar á þremur stofnunum, Raunvísindastofnun háskólans, Verk- fræðistofnun háskólans og Líffræðistofnun háskólans, en fáeinir hafa rannsóknaaðstöðu á einhverri rann- sóknastofnana atvinnuveganna eða annars staðar. Nú liggur frammi tillaga frá Háskólanum um skipt- ingu deildarinnar í tvær, verkfræðideild og raunvísinda- deild, og verður vonandi samþykkt á yfirstandandi þingi. Rannsóknir við deildina Samkvæmt lögum Háskólans hvílir rannsóknaskylda á kennurum hans, enda er almennt talið að kennsla á háskólastigi sé markleysa ein nema kennarinn sé virkur í rannsóknum: Menn nýkomnir frá námi erlendis er.u að vísu ferskir og fullir af nýjungum, en þeir mundu tréna fljótt og festast í fari sínu ef virk rannsóknastarfsemi knýði þá ekki til að fylgjast með í fræðum sínum og leitast við að halda sér nálægt broddi fylkingar í fræðigrein sinni. Eðli málsins samkvæmt eru rannsóknir við deild- ina mjög margvíslegar, allt frá fræðilegum rannsóknum í stærðfræði til hönnunar á tækjum og tæknibúnaði. Einn af hornsteinum háskóla hefur jafnan verið talinn réttur til rannsóknafrelsis, þ.e. að einungis áhugi rannsókn- amannsins og þarfir viðfangsefnisins mörkuðu stefnuna, en ekki boð og bönn „að ofan“; hins vegar geta stjórnvöld og yfirvöld rannsókna að sjálfsögðu haft áhrif á stefnu rannsókna að einhverju leyti með fjárveitingum sínum, en of miklar tilraunir í þá átt þykja yfirleitt heldur óæskilegar og bera merki skammsýni. Innlend stóriðja í viðtali hér í Lesbókinni við próf. Þráin Eggertsson, forseta viðskiptadeildar, kom fram að ýmsir teldu þjóð- félög Vesturlanda vera haldin þeirri meinsemd að stríð- andi fylkingar stéttanna glímdu um sem stærstan hlut í þjóðarauðnum, en sinntu því ekki að auka hann og ávaxta, öllum til hagsbóta. Stjórnvöld hafa reynzt litlu framsýnni, a.m.k. hér á landi, eins og sést af því að heilar stofnanir hafa það verkefni að þróa orkulindir og fram- leiða orku, en fáir hugsa um það til hvers eigi að nýta hana þannig að þjóðin hagnist af. Margir af kennurum Háskólans hafa fengizt við rannsóknir í orkumálum, bæði þróun nýrra og óvenjulegra orkulinda og nýtingu þeirra. Einn þeirra er dr. Bragi Arnason, prófessor í efnafræði við Háskóla íslands, sem komið hefur fram með hug- myndir um nýtingu raforku til innlendrar stóriðju í formi eldneytisframleiðslu fyrir skip og bíla. Bragi vann að því í hálfan annan áratug að kortleggja jarðhitakerfi landsins með aðstoð vetnisísótópa sem lauk með doktors- ritgerð hans sem hann varði við HÍ árið 1974. Um þessar rannsóknir Braga sagði próf. Dansgaard, sem stýrt hefur hinum gríðarlega árangursríku rannsóknum Dana á Grænlandsjökli: „Det má blive et af monumenterne i isotop-hydrologien. Under læsningen kom jeg til at tænke pá Brahms kommentar, da han havde hort „An der schönen blauen Donau“ forste gang: „Jeg ville onske, jeg havde skrevet den.““ — Hvernig lentir þú útí þessum eldsneytismálum, Bragi? Þetta er eiginlega ágætt dæmi um það hvernig háskólarann- sóknir geta þróazt. Fyrstu árin eftir að ég kem að Raunvísinda- stofnun er ég að fást við að leita að upplýsingum um jarðhitann á íslandi, uppruna hans og eðli, sem sagt hvaðan heita vatnið kemur og hvernig það rennur í gegnum jarðlögin. Nú, eftir svo sem áratug var komin út úr þessu nokkuð góð yfirlitsmynd yfir rennsli heita vatnsins og yf- ir jarðhitann í heild, og ein- hverjar hugmyndir um það hversu mikil jarðvarmaorka sé hér í landinu. Þegar maður er að þvælast svona um landið og skoða orkulindir, og sér hversu mikil ónotuð orka er í landinu, þá kemst enginn venjulegur maður hjá því að fara að hugsa um hvað sé hægt að gera með þetta allt saman, hvort ekki sé hægt að reyna að nýta orkuna einhvern veginn frekar en að flytja helminginn af orkunni sem við notum inn í landið. — Svo þú ferð að spá í orkumálin? Það er náttúrlega mikið talað um það að virkja og selja orkuna erlendum fyrirtækjum sem hafa orkufrekan iðnað, en hinn möguleikinn hlýtur að vera sá„ að reyna að smádraga úr inn- flutningi á orku, nefnilega eldsneyti, og reyna heidur að nota sínar eigin orkulindir. Ein leiðin er að nota orkuna beint, raforku eða varmaorku, þar sem slíkt er hægt, en skip og bílar verða a.m.k. um næstu framtíð bundin við eldsneyti, þannig að HÁSKÓLI ÍSLANDS 3. HLUTI VERKFRÆÐI OG RAUNVÍSINDADEILD Eldsneytis- framleiðsla er einn möguleiki í innlendri stóriðju Sigurður Steinþórsson prófessor ræðir við Braga Árnason prófessor Hús Raunvísindastofnunar Háskólans. / 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.