Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1983, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1983, Page 6
Glerblásari aö störfum í rannsóknastofu í efnafræði. Smíði glertækja er mikilvægur þáttur í kennslu og rannsóknum. landi er nú þegar framleitt ammoníak í stórum stíl. Fram- leiðslutæknin og geymslutæknin er því mjög vel þekkt. Einu hrá- efnin sem til þarf eru loft og vatn, og orkan er raforka. Við höfum því hér allt sem til þarf: kunnáttuna, orkuna og hráefn- in. Ammoníakið er geymt á kút- um líkt og Kosangas við venju- legt hitastig og 5 loftþyngda þrýsting og það er ekki hægt að sjá neina alvarlega erfiðleika í að geyma ammoníak sem elds- neyti í skipum þar sem vélstjór- ar sjá um vélarnar. — Hefur ammoníak sem eldsneyti verið prófað annars staðar en hér? Geimferðastofnun Bandaríkj- anna (NASA) var svolítið að kanna þetta á síðasta áratug. Þeir hugsuðu sér ammoníak sem hernaðareldsneyti þannig að þeir flyttu með sér kjarnorkuver og gætu framleitt eldsneyti á staðnum. Þeir fundu út að amm- oníaki má brenna í vélum ef kveikt er í því með rafneista eða á einhvern annan hátt, t.d. með litlu magni af dieselolíu. Þá hafa Kanadamenn á und- anförnum árum sýnt talsverðan áhuga á ammoníaki sem elds- neyti og mér er kunnugt um að þeir hafa þegar keyrt stóran flutningabíl á ammoníaki þvert yfir Kanada, frá austri til vest- urs. Meginástæðu þess hve notkun ammoníaks sem eldsneytis er lítill gaumur gefinn, hygg ég vera þá, að þær þjóðir, sem velta fyrir sér framleiðslu tilbúins eldsneytis, hafa yfirleitt aðgang að kolum eða jarðgasi, en þá er tvímælalaust hagkvæmara að framleiða methanól eða benzín. I löndum með takmarkaðar kol- efnisbirgðir en næga óvirkjaða vatnsorku, gæti niðurstaðan á hinn bóginn orðið sú þegar tím- ar líða, að ammoníak reynist heppilegra eldsneyti en methan- ól. Kanada og ísland eiga það sameiginlegt að í báðum löndum er enn fyrir hendi óvirkjuð vatnsorka. Það er því e.t.v. ekki óeðlilegt að meðal þessara þjóða hafi vaknað sameiginlegur áhugi á ammoníaki sem elds- neyti. — Og hvernig hafið þið staöiö að þessu? Ammoníaksrannsóknir við Háskóla íslands hófust á árinu 1980 þannig, að við burstuðum rykið af gömlum Volkswagen- -mótor, sem á sínum tíma var notaður til að knýja rafstöð á Vatnajökli. Mótorinn var út- búinn með hitara til að breyta ammoníakinu í gufu og þrýsti- jafnara til að stjórna ammoní- aksgufunni inn á vélina. Það gekk mjög vel að kveikja í amm- oníaksblöndunni, hins vegar náði vélin aidrei fullum snún- ingshraða og skilaði ekki nema um helmingi af því afli sem hún skilaði ef keyrt var á benzíni. Við vitum nú hvað þessu veldur og hverjar úrbætur þarf að gera ef keyra á hraðgenga benzínvél Úr bókasafni verk- og raunvísindadeildar. á ammoníaki. Meginniðurstöður tilraunarinnar urðu hins vegar þær, að enda þótt ammoníak væri að öllum líkindum nothæft á benzínvélar, þá væri það mun álitlegra fyrir hæggengar dies- elvélar. Það varð því úr, í árslok 1982, að ákveðið var að kanna notkun ammoníaks í dieselvélum og jafnframt að framkvæma rann- sóknirnar í samvinnu við pró- fessor Hodgson sem starfar við vélaverkfræðideild Tennessee- háskóla í Bandaríkjunum. Pró- fessor Hodgson stjórnaði á sín- um tíma hluta af ammoníaks- rannsóknum NASA og er vafa- lítið með færustu sérfræðingum í heiminum á þessu sviði. Að auki er rannsóknastofnun hans mjög vel útbúin til hvers kyns athugana á eiginleikum elds- neytis og til að prófa vélar. Til tilraunarinnar var keypt ný 110 hestafla Caterpillar dies- elvél. Vélin var tengd mælitækj- um í eigu Tennessee-háskóla, sem mæla afköst og orkunýtni vélarinnar, en þar fara prófanir á henni fram 1 fyrstu. Síðastlið- ið sumar fór að mestu í að þróa og smíða heppilegt kerfi til að koma eldsneytinu inn á vélina, en aðaltilraunakeyrslan fer fram nú í október og nóvember. Við tilraunirnar í Tennessee starfar ungur íslenzkur véla- verkfræðingur, Gestur Val- garðsson, sem er þar í fram- haldsnámi undir handleiðslu próf. Hodgsons, en þátttaka Gests í tilraununum er viss trygging fyrir því að sú þekking sem aflast í Tennessee skili sér heim til íslands. — Hvað tekur svo við? Verði niðurstöður tilraunanna í Tennessee jákvæðar, en á því virðast nú talsvert miklar líkur, er í ráði að vélin komi til íslands nú um áramótin og verði sett niður í skip og keyrð þar í til- raunaskyni um tíma sem ljósa- vél. Landhelgisgæzlan hefur þegar látið í ljós áhuga á þess- um rannsóknum. Að því loknu ætti að liggja fyrir allgóð vitn- eskja um það hvort unnt sé að brenna ammoníaki í núverandi vélum íslenzkra fiskiskipa, hvaða breytingar þurfi að gera á vélunum, og hvað þær muni kosta. — Nú varst þú með hug- myndir um að auka nýtnina í ammoníaksvélum. Já, það er hugsanlegur mögu- leiki að kljúfa ammoníak í vetni og köfnunarefni áður en það er sett inn á vélina, með því að láta gasið fara gegnum hvata og hita það upp með útblástursvarman- um frá vélinni. Með því ynnist tvennt: Útblástursvarminn, sem annars er fleygt, væri nýttur, og vélin gengi raunverulega á vetni, en ammoníakið væri bara vetnisgeymsla. Við höfum þegar athugað þetta nokkuð og vitum að hægt er að kljúfa a.m.k. 15% af ammoníakinu á þennan hátt. Ef þannig tækist að kljúfa allt ammoníakið, mundi orkunýtni eldsneytisins batna um 20—25%. Það þýðir aftur að ammoníakið mætti vera sem þessu svarar dýrara en olía til að vera samkeppnisfært. Einn framtíðarmöguleiki kann að vera sá að nota svo- nefnda „efnarafala" (fuel cell) 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.