Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1983, Side 15

Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1983, Side 15
Gissur hafði yfirburði í mannafla af Suður- landi og hefði getað unnið stórorrustu, en þess í stað fór hann fámennur norður eftir Haugsnesbardaga. Þeir foringjarnir hitt- ust ekki þá, en þar var samið um — og svarið — að þeir færu utan, sem þeir og gerðu. Þar skyldi Hákon konung- ur gera í máli þeirra og voru þá lesin upp syndaregistur, og manndráp tíunduð — en að lokum úrskurð- aði útsendari páfa, að Þórður skyldi fara út til íslands. var við, og lét tjá honum alla málavöxtu þeirra. En er kardináli heyrði og skildi mannalát þau, er Þórður hafði fengið í skiptum þeirra Gissurar, þá veik hann þar mjög eftir og þótti jafnan sem hans hlutur myndi hafa við brunnið (Þórður myndi hafa beðið meira tjón). Vildi hann það eitt heyra, að Þórður færi þá til íslands en Gissur væri eftir — kvað það og ráð, að einn maður væri skipað- ur yfir landið, ef friður skyldi vera. (í Hákonarsögu er nokkuð með öðrum hætti sagt frá tillög- um kardinála um skipan mála á íslandi. Þar segir svo: „Þá var og sú skipan gerð til íslands að ráði kardinála, að sú þjóð er það byggði, þjónaði til Hákonar kon- ungs, því að hann kallaði það ósennilegt, að það land þjónaði eigi undir einhvern konung sem öll önnur í veröldinni") Þetta telur Ólafur Hansson mjög ósennilega eignað sendimanni páfa, sem á þessum tíma hafi staðið í baráttu við vaxandi kon- ungsvald í löndum kaþólsku kirkjunnar. „Þá var (þ.e. þegar Vilhjálmur kardináli var í Noregi) vígður Heinrekur biskup til Hólastaðar og dró hann mjög fram hlut Þórðar við kardinálann og svo við konunginn. Var þá allkært með þeim biskupi og Þórði. Um sumarið Ólafsmessu var Hákon konungur vígður undir kórónu. Hafði hann þá veizlu mikla út í naustinu. (Naustið var skipaskúr mikill, sem tjald- aður var og skreyttur fyrir veizluna, því að öll önnur húsa- kynni voru of lítil. Sturl. 1946.) Þá var það ráðið, að Þórður skyldi út, og var hann skipaður yfir allt landið. (Þetta telja fræðimenn að geti ekki hafa verið, nái ekki neinni átt, segir í formála Jóns Jóhannessonar, Sturl. 1946, Þórður hafi „einung- is verið skipaður yfir ríki þeirra Snorra Sturlusonar og Þorleifs í Görðum, en konungur taldi þau sína eign, af því að þeir höfðu farið út í banni hans 1239“.) Frh. síðar. ,15 Gissur geymdur greina, að þeir færu út á sama skipi, Þórður og Gissur, fyrst þeir höfðu ekki einu sinni geð í sér til að tala sig saman um sáttargerðina né heldur til að staðfesta sættina. „Þórður fékk ríkið til geymslu Hálfdáni mági sínum og skyldi hann vera á Grund og Steinvör og börn þeirra. Þar voru fylgd- armenn Þórðar, Kolbeinn grön og Álmar Þorkelsson. Þórður gifti Þuríði Sturludóttur (al- nöfnu systur sinnar sem giftist Hrafni, en þessi var dóttir Sturlu óskilgetin) Eyjólfi Þor- steinssyni. Skyldu þau og vera á Grund um veturinn. Þeir fóru utan með Þórði, Nikulás Oddsson, Þorsteinn Gunnarsson og Ingjaldur Geir- mundsson, en Önundur bisk- upsfrændi, Guðmundur Þórhild- arson og Þorleifur hreimur með Gissuri. Þeir komu hvorir tveggja til Noregs um haustið og fundu Há- kon konung í Björgyn og fóru með honum norður til Þránd- heims, því að konungur sat þar um veturinn. Mælti hvorugur öðrum í mót Hákon konungur lagði stefnu til mála þeirra Þórðar og Giss- urar. Á stefnunni lét Þórður lesa upp rollu langa, er hann hafði látið rita um skipti þeirra Haukdæla og Sturlunga. Birtist þar á margur skaði, er Þórður hafði fengið í mannalátum. Þá mælti konungur: — Hvað flytur þú hér í mót, Gissur? Gissur sagði: „Ekki hefi ég skrásett sagnir mínar, en þó kann ég hér nokkru í mót að svara. En þó kalla ég hér einarð- lega frá sagt vorum skiptum." Og þann orðróm fengu þeir báðir, að menn kváðust eigi heyrt hafa einarðlegar flutt en hvor flutti sitt mál, svo margt sem í hafði orðið. Mælti og hvor- ugur öðrum í mót eða ósannaði annars sögn. En það þóttust menn skilja, að konungur myndi heldur áleiðis víkja fyrir Gissuri um allt það, er honum þótti svo mega. Það höfðu menn fyrir satt, að það myndi mjög fyrir sakir Snorra Sturlusonar, þar sem lát hans hafði nokkuð af konunginum leitt. (Konungur hafði skipað það Gissuri hirð- manni sínum að færa sér Snorra eða drepa hann.) Þeir buðu málin öll á kon- ungsdóm, en konungur lét þá eigi festa (handsala) og engan úrskurð gerði hann á máli þeirra um veturinn. En um vorið fór konungur suður til Björgynj- ar og báðir þeir með honum, Gissur og Þórður og menn þeirra með þeim. Var þá enn tal- að um málið er þeir komu suður. En er Þórður kærði á um málið Snorra Sturlusonar, svaraði konungur þar fyrir og sagði, að hann ætti það að bæta en bað Gissur svara öðrum málum. Þótti mönnum þá, sem Hákon konungur myndi liðsinna Giss- uri um allt það, er honum þætti sér sóma eftir honum að mæla. Voru þeir nú báðir með kon- ungi.“ • • • (Nú er i sögunni stuttur inn- skotskafli um hugarangur Stað- ar-Kolbeins (Kolbeins kalda- ljóss öðru nafni) föður Brands. Hann naut hvorki svefns né matar eftir fráfall sonar síns og svo segir sagan: „Hann kom til Staðar að finna Jórunni (ekkju Brands) nokkru fyrir ólafs- messu hina fyrri og gisti að Stað og fékk ekki mælt við Jórunni né aðra hugðarmenn sína. Þaðan reið hann upp á Viðmýri til Ingigerðar, dóttur sinnar. Lagð- ist hann þar í rekkju, er hann kom þar og andaðist ólafsmessu hina síðari og þóttkmönnum, er gerst vissu, sem honum myndi mannamissir mjög grandað hafa. Var hann færður til Stað- ar og jarðaður fyrir sunnan kirkjuna hjá Brandi syni sínum. Kolbeinn var þá nær sjötugu er hann andaðist.“) Kært fyrir kardinála „Vetri eftir Haugsnessfund kom hingað í Norðurlönd og til Björgynjar Vilhjálmur kardin- áli sendur af páfa Innocentio til þess að vígja Hákon konung undir kórónu. Hann vígði og Postulakirkju í konungsgarði á Svithunsmessudag um sumarið. Hákon lét þá Gissur og Þórð kæra mál sín, svo að kardináli Á stefnunni lét Þórður lesa upp rollu langa, en hann hafði látið rita um skipti þeirra Hauk- dæla og Sturlunga. Birtist þar í margur skaði, er Þórður haföi fengið f mannalátum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.