Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1983, Qupperneq 16

Lesbók Morgunblaðsins - 19.11.1983, Qupperneq 16
Krossgáta Lesbókar Morgunblaðsins Lausn á síðustu krossgátu 1 ÓdiRT- AR D1IIA UNDlR eiMi 'fl Lir- | gNO- INA. JKfRA SKCL í ('—JH ‘i'J ~ 'ýv - ObfTT- liT pMlAi 5 Zj o u R i’/ÍI.C mta (133□ u M F A Ck -> M A Ð u ___ % 1 N N T L f KKI E 1 1 /iK ^ J HK-0 Aj 'A 5 A iJ MANWi- |»RA s 1 u P 'o T S S V ANA 6<AFA KltHF- AR K A a S A R r(rr »p?aa| b r T V 1 UTT~r LÓfJiD 1 N FU(tl O R R A KJ(H- S&c A T1 5 A NTT J*- SPIUO H Æ N u N A SL - AN6A N A £> R T KM’P- K Á F A R £md INCc jp Skaut Ð Fiama A N A C*IDH Vlt> Vo'RN K £ L A Ð 1 R *—> *Tr*R- u p P 1 FRum efr/l UK A xr <.£>.■ ÆRlMiJ H A Ck A Bkauic- AOl A N) L A ! 'o £KKI FARiD f y L A I 6 T FiáTAn M £ £> LAMSI FYPIR 5 L b 5 Pýg F i1 L L T Vimwi *f &ICTA H A M 1 5 T HniF- UR. F Kj A R F l TllflN- A A N FUC.L • rtc*,í earjA L ‘o A j< A duso/ PL L I TK-Klti FRum- T 'O L 1 N ÍAMHlI '0 5 1 Ð u R Llúk-A L 1 N N A iréfr- AR A Ð A L 5 Autl 9 A T 1 UM A N A S T ERf- INLT- R F A R uí. £ 1 Listamaður á undan sinni samtíð Frh. af bls. 3. insky, Marc, Jawlenský, Klee, Macke og Miinter. Báðir þessir hópar féllu undir hið yfirgripsmikla heiti expressjónismi sem var upphaflega lausleg nafngift viðhöfð til aðgreiningar frá orðinu im- pressjónismi. Þótt Der Blaue Reiter stæði í nokkurri þakkarskuld við frönsku fávistana voru báðir hóp- arnir í aðalatriðum sprottnir beint úr huglægni Van Goghs, Gauguins og Munchs. Á meðan uppistaðan í verkum Dei Briicke-hópsins varð eftir sem áður fíg- úran, stundum með félagslegu ívafi, sýndu málverk Der Blaue Reiter frekar tilhneigingu til að tjá hið andlega og óhlutstæða (afstrakt). Þótt hreyfingarn- ar tækju viðfangsdefni sín mismunandi tökum áttu þær það sameiginlegt ásamt arftökum sínum að hafa megnustu óbeit á makráðri og hugmynda- snauðri list akademíunnar. Yfirlýst markmið þeirra og sannfæring var að tjá hið ljóðræna, innra eðli hlutanna beint og óþvingað með nýjum formum og þróttmiklu táknmáli. Þrátt fyrir ógrynnin öll af sýn- ingum ogfjölda tímarita, yfirlýsinga og stefnuskráa var það ekki fyrr en árið 1913 á fyrstu Herbst-Sal- on-sýningunni í Berlín sem Herwarth Walden átti veg og vanda af, að almenningur fékk víðtæka inn- sýn í djarflega listsköpun ungu kynslóðarinnar í Evrópu. Aftur á móti árið 1919 voru þeir sem fylgdu og störfuðu í anda nýju stefnanna orðnir kennarar í flestum aðalborgum Þýskalands. Auk þess sem Walter Gropius var að koma Bauhaus af stað í Weimar voru Otto Dix og Carl Hofer við kennslu í Berlín svo og Paul Klee í Dusseldorf, Max Beckmann og Willi Baumeister í Frankfurt, Oskar Schlemmer og Otto Mueller í Breslau og Oskar Kokoschka í Dresden. Námsmaðurinn ungi frá Islandi laðaðist ómótstæðilega að þessu listamannaumhverfi. Hérna kynntist hann og smitaðist af anda framúrstefnunn- ar sem barst með svo miklum sannfæringarkrafti frá menningarmiðstöðvunum Dresden og Berlín. Eftir dvölina erlendis sem getið hafði af sér dá- góðan fjölda nýrra verka hélt hinn þrjátíu og þriggja ára listmálari heim sumarið 1925 með það fyrir augum að halda sýningu í Reykjavík. í Morg- unblaðinu 22. júlí þetta ár var sagt þannig frá heim- komu hans: Finnur Jónsson málari, hefir dvalið í Þýskalandi um langt skeið, aðallega í Dresden. Og nú hefir „Sturm“ tekið af honum 12 myndir til sýningar og 16 HÁTÍÐ 5T«kjaH I r ■ Csf ^ 111 ÍKÍPIA V 5KU5JAR 6E IN 5Am - TENG- / N Immaki Húss L-'f K - \\ H l u r 1 p IáviTaði V TUflR. MOÐ ILLMR CiRIKlC ue. C\U£) 5PIL SKPTr F I S K - LVRIAJNJ fORQ.enJ- KAR. ífrxA MfÐ V» Slk MILCIIJIU 1 5katt UR ÍUEFok R’\K\- L'\ HE«- Q>£ZCl\ Borða Tó MiR. / y<V\ 1 R \ u V / L 2J R þ\J AÐ UR HLi FA RÆN- IM6.TA TveiR £INÍ VAR1.A FUUL I J /a! / L o £> - JVCINN LHFIN w 1 VERK- FÆI?| Kjf - re« c- l MCr flLDA ttón ^LFfí- AP- Mammj Nf\FN 5TJ4P JONUR. ÞbRS KJÁNAH* \I \ E> - BTóPttK IfEVKTI íaUNLA BLÆS ÖLMA VPv R0- ANDl ■ Dl?Fú- LlR ELC>- STÆÐIf) HVILT DVEL VJÍRitXv TrtL SPIL VIMDUR H O R - A Ðfí VcV L f- URN AR JKtViR * V£RK- FHP\ KUÍK Rnk- KORM Ti Mfl ■ 01M Ð FULLT TUNL L EKVt 1 &ÖMUL Kom- AST P/PA TviHLl. P % 1R.HLVT Sælu- NAFN LElvc- tækid Ihnun- Iaðifn Fljvc- INN ILL- L'sóöti sölu. Listaverslun „Sturms“ hefir sýningar um alla Mið-Evrópu. Myndir þær, sem verslunin tekur til sölu, fara því borg úr borg, og eru sýndar hvað eftir annað á sýningum „Sturms“. En „Sturm“ tekur ekki myndir nema þær sjeu gerðar í anda nýtískustefn- anna. Þegar listverslun þessi hefir einu sinni tekið verk af mönnum, þá heldur hún því áfram, meðan myndir mannsins eru gerðar eftir hinni ríkjandi nýmóðins listastefnu verslunarinnar. Fái myndirnar annan blæ, eru þær gerðar afturreka. Mjög eru skiftar skoðanir um listagildi „Sturms“-myndanna. Er Mbl. hitti Finn Jónsson hjer á dögunum, spurðum vjer hann að því, hvort hann ætlaði ekki að halda sýningu hjer í Reykjavík. Bjóst hann við því. Það mun þó ekki verða fyr en með haustinu. Sjeu myndir hans, sem hann sýnir hjer, áþekkar þeim, sem „Sturm“ hefir tekið hjá honum, verður sýningin nýstárleg hjer í Reykjavík. Greinin speglar vægast sagt skringilegar móttök- ur. Gefið er í skyn að eftir alllanga dvöl erlendis (ef til vill of langa?) sé Finnur Jónsson nú snúinn heim með einhverja útlenda og fremur vafasama list í föggum sínum; svo og að Sturm-fyrirtækið sé eins konar markaðsmiðlun sem selji og braski með ný- tískulegar listvörur af umdeilanlegu gildi. I niður- lagi greinarinnar gætir enn þessa niðrandi tóns og varað er hæðnislega við hinni enn ókomnu sýningu. Nokkrum dögum seinna reit listmálarinn ritstjór- anum bréf þar sem hann vill leiðrétta misskilning- inn sem fram kemur í greininni. (Bréfaskipti þeirra eru birt í heild í Blaðagreinum 1921—1929 aftar í bókinni). Þar upplýsti hann að Der Sturm væri ekki listmunaverslun heldur útgáfufyrirtæki sem, auk þess að sýna nútímalistaverk í sýningarsal sínum, væri þekkt fyrir útgáfu bóka um list, ljóðaskáldskap, tónlist, byggingarlist o.s.frv., og fengist ekki við tískustefnur og stundarfyrirbæri á sviði myndlistar. Þessu til stuðnings nefndi hann virta og þekkta listamenn sem þá voru kenndir við sýningar á veg- um DerSturm, svo sem Marc, Nolde, Chagall, Camp- endonk, Kokoschka, Gleizes, Picasso, Kandinsky, Archipenko o.fl. Útkoman varð sú að Valtýr Stef- ánsson ritstjóri, sem virtist hafa átt hlut í að skrifa fyrstu greinina, svaraði um hæl með annarri niðr- andi grein er birtist til hliðar við bréf listamannsins. Blaðadeilur um bókmenntir og bókmenntastefnur höfðu verið algengar hér áður, en sú orðasenna sem hér fylgdi í kjölfarið og gerði myndlist að ágrein- ingsefni sínu hefur ef til vill verið sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Með öðru og ekki síður hvass- yrtu svari frá listamanninum var þrætumálið lagt til hliðar um stund. En sökum þess hve tilfinninga- ríkir þessir andstæðingar voru í málinu og hve fast þeir stóðu á sínu báðir tveir, var ljóst orðið að hin fyrirhugaða sýning ætti tæplega í vændum hlut- lausa umfjöllun. Með sýningu Finns Jónssonar, sem haldin var síðla í nóvember árið 1925 í húsi Nathans & Olsens í Pósthússtræti (þar sem nú stendur Reykjavíkur- apótek) var brotið blað í sögu íslenskrar myndlistar. Vissulega hefur mikilvægi þessarar sýningar þar sem innlendur listamaður kynnti í fyrsta sinn heima fyrir hinn nýja tjáningarmáta afstraktlistar nú ver- ið viðurkennt þótt það gleymdist um skeið. Þýðing hennar fór fyrir ofan garð og neðan hjá flestum, en fáeinir, aðallega listamenn, skrifuðu greinar hinum umdeildu málverkum til varnar. Þegar þessar kyn- legu myndir bar fyrir augu höfðuðu þær eins og skiljanlegt er lítt til almennings því að hin langa bókmenntahefð sem átti sterk ítök í vitund hans vísaði einkum til sögu landsins, staðháttalýsinga og ættfræði. Þessir óvenjulegu og torræðu drættir hljóta að hafa verið fólki framandi og óskiljanlegir því að mikið bar á milli þeirra og hefðbundinna landslagsmynda, andlitsmynda af auðþekkjanlegum persónum eða myndefna sem leiddu hugann að forn- öldinni — eða samtímanum ef um slíkt var að ræða. Fólk leitaði því eins og venja var til á vit pennans manna til að fá skýringu og leiðbeiningar fremur en að láta pensil listamannsins vísa veginn. Því miður brugðust þeir sem skifuðu um list á þessum tíma gjörsamlega þeirri skyldu sinni að undirbúa jarð- veginn svo að almenningur sæi verkin í réttu ljósi og skildi þau. Þess í stað, en það mun ekki einsdæmi, réðu hér ferðinni fordómafull og villandi skrif sem höfðu meiri áhrif í þá átt að loka augum sýningar- gesta en að opna þau fyrir þessari nýju list. Útgefindi: Hf. Árvakur, Keykjavík Framkvjstj.: Ilaraldur Sveinsson Ritstjórar: Matthías Johannessen Styrmir Gunnarsson Ritstj.fltr.: Gísli SigurAsson Auglýsingar: Baldvin Jónsson Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 10100

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.