Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1985, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1985, Qupperneq 6
A5 skyggnast inn í innri heim mannsins Carl Th. Dreyer Um Carl Th. Dreyer frumherja í danskri kvikmyndagerð EFTIR MICHAEL DAL Norræni kvik- myndaklúbb- urinn Norður- ljós sýndi í september sl. í Regnboganum allmargar kvikmyndir eftir Carl Th. Dreyer, hinn mikla meist- ara danskrar kvikmynda- gerðar frá fyrstu áratug- um þessarar listgreinar. Á sýningarvikunni í Regnboganum gefst mönnum færi á að sjá bæði nokkrar af eldri kvikmyndum Dreyers eins og t.d. „Blade af Satans dagbog" (1921) og einnig nýrri kvikmyndir hans Ferill Carls Th. Dreyer sem kvikmyndagerðar-' manns og leikstjóra spannaði rúmlega 40 ár, og hann hafði lokið við alls 13 leiknar kvikmyndir þegar hann andaðist árið 1968. Jeanne d’Arc er fri 1926. Það er Jóhanna sjálf, sem bér sést. UPPHAFIÐ Carl Th. Dreyer var fæddur í Kaup- mannahöfn hinn 3. febrúar árið 1889. Móð- ir hans, sem var sænsk, dó skömmu eftir að drengurinn fæddist, og var Carl þá ætt- leiddur af danskri fjölskyldu, sem ól hann upp frá blautu barnsbeini og setti hann síðar til mennta. Að afloknu stúdentsprófi réðst hann til starfa hjá Ljósaveitu Kaup- mannahafnar, en hið daglega líf og starf hjá þessu borgarfyrirtæki var hinum unga Dreyer ekki að skapi. Hann kaus fremur starfa, þar sem eitthvað meira væri um að vera og sótti þess vegna um stöðu hjá Stóra norræna símafélaginu, en í þá daga áttu ungir menn einna helzt möguleika á að fara til starfa til útlanda á vegum þess fyrirtækis. Hann fékk svo sem nógu góða stöðu hjá Stóra norræna, en gallinn var bara sá, að hann varð að vinna þar sem bókhaldari í fjármáladeildinni. Þótt þessi staða opnaði honum í raun og veru leiðina til fyrirtaks framaferils og góðrar lífsaf- komu sem fastur starfsmaður fyrirtækis- ins, sagði Carl Dreyer samt starfi sínu hjá Stóra norræna brátt lausu. Þess í stað tók hann til að starfa sem sjálfstæður blaða- maður og hafði árum saman lffsframfæri sitt af að selja róttækum blöðum úti á landsbyggðinni greinar með leiklistar- gagnrýni frá höfuðborginni og ýmislegt annað efni. En síðar á blaðamannsferli sínum fékk hann þó stöðu sem fastráðinn starfsmaður hjá hinum stærri Kaup- mannahafnarblöðum og vann meðal ann- ars um skeið hjá Ekstrabladet. TlL STARFA HJÁ NORDISK FlLM Vorið 1913 réðst Carl Th. Dreyer til starfa hjá kvikmyndafyrirtækinu Nordisk Film Kompagni. Það gerist á þann hátt, að þáverandi framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins, Frede Skaarup, stakk upp á því við Dreyer, að hann tæki að sér að skrifa skýr- ingartexta þöglu myndanna. Þeir einfeldn- ingslegu textar, sem fram að þeim tíma höfðu verið notaðir við þöglar myndir hjá Nordisk Film, höfðu þá um skeið verið gagnrýndir hastarlega, bæði á opinberum vettvangi og eins meðal almennra áhorf- enda. Það var því mikil þörf á að bæta úr ýmsum vanköntum á þessu sviði og Dreyer tók starfstilboði framkvæmdastjórans með þökkum. Starfssvið Dreyers hjá Nordisk Film var svo nokkru síðar víkkað er honum var einnig falið að taka að sér samningu kvikmyndahandrita fyrir félagið. Carl Dreyer átti frumkvæðið að þeirri stefnu Nordisk Film Kompagni að taka að kaupa kvikmyndunarréttinn á ýmsum skáld- sögum, en þessi skáldverk endurvann Dreyer svo og umskrifaði sem kvikmynda- handrit. Ein afhinum frægu nærmyndum Dreyers úr Jóhönnu afÖrk. Árið 1917 fékk hann leyfi hjá stjórn Nordisk Film Kompagni til að annast sjálfur leikstjórn sinnar fyrstu kvikmynd- ar. Hann naut þá þegar þess álits að vera talinn einn af hæfustu og ötulustu starfs- mönnum fyrirtækisins, sem bæði kunni að skrifa kvikmyndahandrit og gæti líka ann- azt klippingu filmanna. Nú þótti honum tími til kominn að læra að leikstýra og stjórna kvikmyndatöku. Sem sitt fyrsta viðfangsefni í kvik- myndatöku kaus Carl Dreyer að taka fyrir skáldsöguna Forsetinn eftir rithöfundinn Karl Emil Franzoz. FORSETINN Kvikmynd Dreyers „Forsetinn" var frumsýnd 9. febrúar 1920 og reyndist vera átakanlegur og heldur betur voteygur harmleikur. Söguþráður myndarinnar, sem er í meira lagi væminn, snýst um austurrískan dómara, sem er forseti hæstaréttar. Hinn æruverðugi dómari lendir af alveg óviðráðanlegum ástæðum í þeim klassíska sálarháska að þurfa að velja á milli fullkomins vammleysis stöðu sinnar sem óhlutdrægur júristi og val- menni og þess að frelsa dóttur sína frá dauðarefsingu fyrir barnsmorð, sem hún hafði framið eitt sinn, þegar hún var sál- arlega ekki með sjálfri sér. Forsetinn kýs vitanlega að frelsa dóttur sína og tryggja sem bezt lífshamingju hennar en gengur sjálfur á vit hetjudauðans. Á þessum fyrstu árum kvikmyndanna var það alsiða, að kvikmyndaleikstjórar létu panta fyrir sig nokkra statista, þegar velja þurfti leikarana í aukahlutverkin. Dreyer sniðgekk hins vegar þessa venju- legu statistahópa en gekk þess í stað sjálf- ur um í borginni í því augnamiði að smala saman þeim persónugerðum, sem svifu honum fyrir hugskotssjónum í hin ýmsu aukahlutverk. Hann hafði nefnilega kom- izt að raun um, að það er nær ógerlegt að blekkja kvikmyndatökuvélina, því að hún afhjúpar þegar í stað allt það, sem ekki er ekta. Þess vegna verður gamalt fólk í kvikmynd að vera leikið af öldruðum leik- urum, því að farðaðir statistar geta tæp- lega blekkt myndavélina. |

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.