Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.1985, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.1985, Blaðsíða 7
Á bernskuárum horfði hann út á fjörðinn af hlaðinu á Snotrunesi og þar blöstu við honum fjölþætt svipbrigði hafflatarins. Stundum var hann eins og skuggsjá, sem speglaði formfegurð og litbrigði fjallanna. Þau litbrigði eru fágæt, því Borgarfjörður liggur á mótum tveggja ólíkra bergsvæða, blágrýtið ræður vestan fjarðarins en ljós- grýti (líparít) austan. I annan tíma horfði drengurinn á ygglibrún hafsins, þegar vindar blésu. Brigðult skaplyndi þessarar höfuðskepnu vakti með honum innri óró og löngun til þess að skyggnast lengur, og drengurinn undraðist ekki, þegar hann heyrði sagt frá sauðamanninum, sem í fyrndinni hafði gripið slæðuna þarna niðri í fjöruborðinu og steypt sér í sjóinn. Hann hafði líka borið nokkuð úr býtum, því þegar þau Snotra húsfreyja stóðu aftur í fjörunni niður undan bænum og hún komist að því, að hann hafði haft djörfung til þess .að fylgja henni eftir, enda sýnt henni sauðarrifið til jarteina, þá sagði hún: En Elías hélt út í hinn óræða heim handan hinna svipmiklu Dyrfjalla. hann réðst í brúarvinnuflokk Sigurðar Jónsson- ar og starfaði lengi með honum á sumrum, líklega ein 12 ár, en var í skóla á vetrum. Samfélag brúarvinnumanna var sérstætt á þeim árum. Þar komu saman lífsreyndir erfiðismenn, kóngsins lausamenn og lítt harðnaðir skólapiltar og unnu saman að mannvirkjagerð. Flokkarnir voru fjöl- mennari, en nú gerist, þar eð vélar og tæki voru ekki orðin jafn stórvirk og af- kastamikil enda ýmis tækniundur ekki komin til skjalanna. Störfin voru fjölbreytt og reyndu á fjölhæfni og dug starfsliðsins. Að loknum vinnudegi héldu menn til tjalda sinna og þar var skrafað og lesið. Bókakist- ur úr birgðageymslu Vegagerðarinnar komu og fóru. Og margt var bitastætt í þeim kistum. Það sagði mér virðulegur klerkur, sem var skólapiltur í brúargerð með Elíasi frá Snotrunesi, að eitt sinn hefðu þeir dvalist nær heilan dag um helgi að öðlast nokkra lífsreynslu, áður en þeir byrja formlegt nám, þannig að þeir búi yfir sjálfstæðri dómgreind. Ungum mönn- um hættir til þess að taka orð kennaranna of hátíðlega og ósjaldan sem endanleg sannindi. Skólinn boðar hvorki sannleika eða lygi. Nám myndlistarnema þar á frem- ur að vera leit undir leiðsögn víðsýnna kennara. Skólinn er nauðsynlegur, ef menn vilja ná umtalsverðum árangri. En mönn- um liggur alls ekki á að byrja myndlistar- nám á unglingsárum. Þegar ég var í Hand- íða- og myndlistarskólanum á árunum 1954—’58, voru þar margir ágætir kennar- ar. Sá sem ég tel mig hafa lært mest af þá var Sigurður Sigurðsson. Hann er góður kóloristi og lauk upp fyrir mér leyndar- dómum málverksins. Já, kennararnir voru ágætir, ef menn sýndu áhuga og dugnað. Þeir voru listamenn og áttu bágt með að skilja þá, sem ekki nenntu að takast á við viðfangsefnin af þrótti og viljafestu. Að vísu þótti mér nokkuð skorta á tækni- getur haft áhrif á hóp fólks, vakið áhuga fyrir listgrein sinni og þroskað smekk. Mynd á heimili er lúmskt afl. Börn, sem alast upp við myndlist, verða næmari fyrir umhverfinu og svo fer, að þau una ekki myndlausum veggjum. Góðar myndir eru eins og gluggar, sem fylgja fólki. Mér koma einnig í hug ungir leikarar. Fólk, sem hefur lært að tala vel. Kennarar kvarta mjög undan því, að þeir nái engum árangri í íslenskukennslu. Það tel ég hiklaust stafa af því, að ekki er kennd framsögn. Þegar framburður er vandaður og skýr, vilja menn læra rétt mál. Fjölmargir ungir leik- arar ganga atvinnulausir um þessar mund- ir. Þetta fólk gæti haft nóg að gera, ef komið væri á betra skipulagi og hræðslan við dreifbýlið yrði upprætt. Það gæti áreið- anlega vakið börn, unglinga og fullorðna til eindreginnar menningarviðleitni með áhugaverðu og skemmtilegu efni og lifandi kennslu. Það veitir sannarlega ekki af því að kenna fólki rétta og eðlilega tjáningu. Á Kjarvalsstaðasýningu síðastliðið vor: Elías við stærstu myndina, Blóðnætur205x900sm. „Hafðu mikla þökk fyrir, maður; þú hefir leyst mig úr ánauð. Það var lagt á mig að ég skyldi fara í mannheima og vera þar alla ævi nema hverja jólanótt skyldi ég mega vera í álfheimum. Maðurinn í hásæt- inu er konungur og maðurinn minn. Það var lagt til bóta að ef mennskur maður þyrði að fara á eftir mér til álfheima og sjá þar bústaði mína skyldi þessi álög ganga af mér og hefir þú nú hjálpað mér svo ég má fara heim til konungs míns, en þú munt verða hinn mesti gæfumaður ...“ Það fór eftir sem konan sagði og sauðamað- ur varð bóndi í Nesi og bjó þar við farsæld til hárrar elli. En síðan er bærinn kenndur við Snotru og kallaður Snotrunes. Er þessa bæjar alloft getið í þjóðsögum og sögnum. Ætt Elíasar B. Halldórssonar hefur búið þar lengi. f tvíbýli bjuggu þar báðir afar hans, Armann og Björn, og fjölskyldur þeirra. Foreldrar hans voru Halldór Ár- mannsson og Gróa Björnsdóttir, sem tóku þar við búsforráðum og eignuðust fjögur börn. Ekki hefur jörðin ennþá gengið úr ættinni, því þar býr nú systursonur Elías- ar. III Elías var barnungur, þegar hann missti móður sína og aðeins 15 ára fór hann að heiman. Hugur hans stefndi snemma til listrænna átaka, en lítt til búmennsku. Hann hafði löngum glímt við orðin, leikið sér að hugmyndum og sökkt sér niður í bóklestur. Heima í Snotrunesi var nokkur bókakostur og fyrir fermingu hafði hann m.a. lesið allar íslendingarsögurnar. Það hefur honum löngum reynst góð undir- staða. Bróðir hans, Ármann, sem lengi hefur verið kennari við Eiðaskóla, kom á þeim árum með bókmenntir heim með sér — nýja höfunda og gagnmerkar þýðingar. Elías svalg í sig þennan byltivæna skáld- skap. Þá var Halldór Laxness á þungu skriði, svo boðaföll hrifningar og andúðar náðu inn á hvern fjörð, snilldarþýðingar á kunnum verkum eftir þá Hemingway, Steinbeck og Sherwood Anderson komu eins og áhrifarík vakningarit, Steinn Stein- arr sló nýjan streng og tónar hann gerðust sífellt áleitnari og síðast en ekki síst gaf Magnús Ásgeirsson þjóð sinni fjársjóði ljóða frá ýmsum löndum. Allt varð þetta Elíasi jafn mikil fagnaðarföng og sauða- manninum ketið feita í álfheimum. Það var eins og að finna töfraslæðu á strönd- inni. Hann sá nýja heima opnast, varð að hlaupa út um víðan völl og fanga sem fjölþættust áhrif, svo hann gæti skrifað, brotið sér braut og orðið rithöfundur. Um það voru kannski skiptar skoðanir heima í Snotrunesi, hvort slíkt væri væn- legt til góðrar afkomu. Ekki voru þar þó bornar brigður á gildi skáldlistar, enda talin nauðsynleg með daglegu amstri. Orð væru svo sem alltaf til reiðu á hvíldar- stundum. hátt uppi í skógivaxinni fjallshlíð og haft með sér brjóstbirtu á fleyg og ljóðaþýðing- ar Magnúsar Ásgeirssonar. Hrifinn hafði Elías þá leitt hann inn í ljóðheima Gull- bergs og Frödings — aukinheldur sem hann kunni utanbókar þýðingu Magnúsar á ljóði eftir þann síðarnefnda, sem ekki hafði þótt við hæfi að birta á bók á þeim árum. „Þetta var mér ógleymanlega skemmtilegur dagur," sagði prestur ára- tugum síðar, „og mér er næsta hlýtt til listamannsins frá Snotrunesi og met hann mikils." En um þær mundir voru litir og form tekin að sækja fast á huga Elíasar. Snemma hafði hann séð ósvikin listaverk. Jóhannes Sveinsson Kjarval hafði löngum komið í Borgarfjörð eystra á sumrin og þar hafði meistarinn skilið eftir málverk, sem gerði litlar stofur stórar. — Frænkur hans tvær voru þar. Menn dáðu þennan hávaxna huldusvein og öllum var vel við hann, en litu hann aldrei sem venjulegan mann. Þeir voru hálf hræddir að nálgast hann og hann gekk með einskonar grímu. — Þannig komst Elías að orði, þegar við sátum í stofunni í Laufási á liðnu hausti og spjölluðum saman um lífið og listina. Og hann bætti við: — Þegar ég sýndi í Reykjavík árið 1967 kom Kjarval á sýning- una og keypti mynd. Þá fékk ég tækifæri til þess að sitja með honum einum og þá kom hann fyrir eins og venjulegur maður. Hann bar ekki á mig hól, en ræddi af alvöru og djúpum skilningi um myndirnar; var hvetjandi og fullkomlega einlægur. En um leið og einhver birtist setti hann upp þessa einkennilegu grímu svo erfitt var að henda reiður á hvert hann væri að fara. Þessi undarlega gríma, sem ég kalla svo, var vörn einfarans gegn truflandi ásókn forvitinna samferðamanna. Kjarval þráði umfram allt næði til þess að hugsa um viðfangsefni sín og að vinna. Ég er ekki í neinum vafa um það, að honum féll best að vera einn, þá var hann sjálfum sér nóg- ur. Það er einkenni mikilla listamanna. — IV Við Elías hittumst ekki til þess að ræða um Kjarval og því spyr ég hann, hvenær hann hafi sjálfur hafið myndlistarnám. Hann hugsar sig um litla stund og segir síðan: — Það mun hafa verið haustið 1954, sem ég hóf nám í Handíða- og myndlistar- skóla lslands. Þá var ég 24 ára og er þeirr- ar skoðunar, að það hafi alls ekki mátt gerast fyrr. Yfirleitt hefja menn myndlist- arnámið alltof ungir. Þeir mega til með kennslu í skólanum. Því fór ég utan að námi loknu og nam við akademíuna í Stuttgart í Þýskalandi og akademíuna í Kaupmanna- höfn. Var hálft ár á hvorum stað. Þar lagði ég sérstaka áherslu á modelteikningu, en var ekkert í málverkinu. Ég gleymdi að geta þess, að árin, sem ég var í Handíða- og myndlistarskólanum, var Lúðvík Guð- mundsson skólastjóri hans. Hann var mjög litríkur og skemmtilegur persónuleiki. Tók ég oft að mér að snúast fyrir hann og hjálp- aði til á skrifstofu skólans. Þá gaf hann mér eitt sinn eftirfarandi ráð: „Gættu þín á því, að tala aldrei við undirtyllur — farðu heldur beint á toppinn, ef þú á annað borð ætlar að koma málum þínum fram.“ V Þetta er mildur síðsumardagur og inn um opinn glugga berst söngur heiðagæsa neðan af Undirvellinum. Ég bíð eftir að Elías haldi áfram frásögn sinni, en þá segir hann allt í einu: — Annars hef ég takmark- aðan áhuga á því að rekja feril minn. Mér er eiginlega meira í mun að ræða stöðu listanna í landinu frá sjónarhorni manns, sem er að mála myndir norður á Sauðár- króki. Það er raunar undarleg staða, því flestir listamenn virðast hræddir við að dveljast utan Reykjavíkur, óttast þá að þeir gleymist í tærandi einangrun. En það verður mörgum að falli að verða frægur og þess vegna er gott að vera úti á landi, því þar er lítil hætta á því, að listamenn ofmetnist. Þar skortir hins vegar ekki næði til þess að vinna, og það er mikils vert að vera ótruflaður af þeirri spennu samkeppninnar sem þenur taugar margra listamanna á höfuðborgarsvæðinu. En víða um land vantar tilfinnanlega þá aðstöðu, sem listamenn eru í þörf fyrir. Eg er þeirr- ar skoðunar, að þorp og kaupstaðir úti á landi ættu að eiga lítil hús til afnota fyrir alls konar listafólk. Þar á að gefa því kost á fríu húsnæði og jafnframt mætti greiða því lítils háttar laun. Síðan á þetta ágæta fólk að standa fyrir listkynningum hvers konar. Þetta mundi tvímælalaust borga sig því listin vekur fólk til frjórrar hugsunar, eykur heilbrigða samhygð og viðsýni, gefur lífi þess lit og gerir það ánægðara með hlutskipti sitt. Atvinnufyrirtæki eiga að leiða listir inn á gafl hjá sér. Það mun efla þroska og andlegt heilbrigði starfs- fólksins og lyfta þá undir jákvæða þróun atvinnulífsins, auka á hagsæld allra. Lista- maður, t.d. málari, sem vinnur í þorpi eða litlum kaupstað, finnur fljótlega að hann Þannig yrði lagður grunnur að blómlegra leiklistarstarfi og heilsteyptari leikhús- menningu. Ég tel mikilvægt, að fjöldi lista- manna losni undan þrúgandi oki hégóm- legrar frægðarlöngunar. Hún veldur því oft, að menn þora ekki að brjóta upp list- iðkun sína og söðla um. T.d. myndlistar- menn, er dottið hafa ofan á vinsælt mynd- efni og stíl, sem fellur fjöldanum í geð og ekki síst þeim, sem hafa auraráð. Þeir þora alls ekki að söðla um og festast því í sama farinu, mála endalaust sömu myndina í nokkrum tilbrigðum. Þessir listamenn eru svo bundnir við myndina sína, að þeir fara ekki á sýningar hjá ungum myndlistar- mönnum. Nú eru ungir menn að gera hluti, sem ganga ekki í augun á fólki. Þeir eru áræðnir og verk þeirra vekja efasemdir og undrun, ekki síst vegna þess að samkeppn- isandi bættrar afkomu ræður viðhorfi fjöldans. Unga fólkið getur ekki selt, en eigi að síður þorir það að gera hlutina. Það er ekkert takmark að verða ríkur, en hins vegar er nauðsynlegt að listin geti komist til fólks — svo það geti notið hennar. Mér finnst nú mikils að vænta af ungu fólki, því það berst með réttu hugarfari. — VI Hér gerir Elías hlé á máli sínu og ég sveigi talið að list hans sjálfs. Eins og fyrr var að vikið, þá hélt hann málverkasýningu á Kjarvalsstöðum á liðnu sumri. Þar sýndi hann 79 málverk, flest voru mjög stór í sniðum. Þessi sýning hefur ekki liðið mér úr minni, enda sannfærðist ég um það, að Elías sé nú einn af stórbrotnustu og jafn- framt sönnustu myndlistarmönnum, sem nú eru á dögum á þessu eylandi. í orðum hans hér að framan felast raunar viðhorf hans og viðleitni. Hann er ekki veggskreyt- ir til þjónkunar úreltum smekk. Hann legg- ur það mat á hlutverk listarinnar, að hún eigi að vekja mann til nýs skilnings, en megi síst af öllu svæfa þá á hægindi þess sem er, svo að þeir geti unað því með værð. Elías virðist eiga hægt með að söðla um í vali myndefnis og aðferða, en þó efast maður aldrei um, að hörð innri átök felast að baki þeim umfangsmiklu afstraktverk- um, sem hann hefur unnið að undanförnu. Ummæli franska málarans Jean Bazaine geta átt næsta vel við um stefnu Elíasar B. Halldórssonar: „Hann hefur augun opin mót þessari veröld en því lengra sem á ferð hans líður, verður heimurinn innra honum ríkari í augum." Hitt hefur löngum verið ljóst, jafnt af grafíkverkum Elíasar, pastelmyndum og málverkum, bæði hlut- stæðum sem afstrakt, að hann hefur jafnan flutt áhorfandanum dýpkaða hugarreynslu sina í sérstæðu og persónulegu formi. Þegar ég spyr hann að því, hvort hann stefni á ákveðna átt til afstrakt-listar, þá neitar hann því og heldur síðan áfram: — Frá upphafi hef ég ýmist málað figurativt eða abstrakt. Það er líka erfitt að draga LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. NÓVEMBER 1985

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.