Lesbók Morgunblaðsins - 16.11.1985, Page 12
Var Snorri Sturluson
gerður jarl af Folksn?
ilefni eru verðmæt, ef til vill verðmætari
heldur en virst gæti í fljótu bragði, því þau
eru til þess fallin að leysa orku úr læðingi.
Þess konar orka hefur verið virkjuð með
ýmsum hætti í tímans rás. Margvísleg lista-
verk og mannvirki eru til vitnis um það.
Sé þetta haft í huga liggur við að það jaðri
við ábyrgðarleysi að nýta ekki tilefni þegar
þaugefast.
Á síðastliðnu ári var þess minnst að liðin
væru 700 ár frá dauða Sturlu Þórðarsonar,
sagnaritara og skálds. Sturlu var minnst
á svæði Háskólans, greinar birtust um
hann á prenti og í útvarpi voru þættir um
Sturlungaöldina. Þrátt fyrir þetta er eins
og greinarhöfundi finnist að Sturla hafi
átt meira skilið. Hvers vegna kom íslenska
sjónvarpið ekki við sögu þessara hátíðar-
halda? Og hvað voru Norðmenn að hugsa?
þeir munu hafa látið þessi tímamót af-
skiptalaus með öllu.
Sjónvarpsmyndaflokkur
UmÖldSturlunga
Um það bil fjórum árum fyrir 700. ártíð
Sturlu Þórðarsonar hafði undirritaður
heitið sjálfum sér því að freista þess að
setja saman handritsdrög að sjónvarps-
myndaflokki um öld Sturlunga, sem væri
skoðuð með augum Sturlu sagnaritara
Þórðarsonar. Það var ekki ætlunin að fá
Folksn, fundist mér bera viss skylda til
þess að greina frá því, sem þar bar fyrir
augu. Nú hefur ártíð Sturlu Þórðarsonar
og sú Sturlunguumræða, sem í kjölfar
hennar hefur fylgt orðið mér hvatning til
þess að láta verða að því. Skulu nú dregin
fram nærfelt sjö ára gömul minnisblöð úr
Folksnarferð og valdar ljósmyndir úr
miklu safni, sem teknar voru í ferðinni.
Upplýsingar um eyjuna Folksn, ættu að
verða til þess að varpa nokkru ljósi á
Stytturnar af Snorra — önnur í
Ileykholti, sú að neðan íBjörgvin.
ttðL
—.......;...... ... ................................
Konungsgarðurinn í Folksn. Bæjarhúsin þar eru sögð rera frá því
um 1700.
Folkns. Hér var búsældarlegt um að títast og miktír ræktunarmögu-
leikar fyrir búmann á borð við Snorra Sturluson, sem sagt var
umað hefði haft góðar forsagnir á ötíu því er gera skyldi.
Nokkrar hugleið-
ingar í tilefni 700.
ártíðar Sturlu Þórð-
arsonar
Eftir Erlend Sveinsson
tryggingu fyrir því fyrirfram, að slíkur
myndaflokkur yrði einhvern tíma gerður.
Hér var verið að gæla við enn eina draum-
sýnina, sem vill loða við íslenska kvik-
myndagerð, drauminn um kvikmyndun
fornbókmenntanna. Að sjálfsögðu tókst
ekki að ljúka þessu ætlunarverki á tilskyld-
um tíma og er enn langt í land til að svo
megi verða. Til þess að bregðast ekki heit-
strengingunni góðu frá árinu 1980 fullkom-
lega á 700. ártíð Sturlu Þórðarsonar venti
undirritaður sínu kvæði í kross og tók til
við að semja þrjár blaðagreinar um af-
markað efni í Sturlungu út frá eyju nokk-
urri fyrir mynni Þrándheimsfjarðar í
Noregi, sem í Hákonarsögu Sturlu Þórðar-
sonar nefnist Folksn. f greinum þessum
verður síðan einkum fjallað um Sturlu
Þórðarson og Snorra Sturluson, lykilper-
sónurnar í fyrrgreindum sjónvarpsmynda-
flokki.
Ég lít ekki á þessar greinar sem fræði-
greinar, heldur sem bakgrunnsathuganir
fyrir kvikmyndaverk. Það er trú mín, að
spurningar þær sem reifaðar verða í grein-
unum, ásamt ferðalýsingunni til Folksnar,
veki forvitni lesenda Lesbókar Morgun-
blaðsins og að um þetta leikmannshjal
geti orðið Sturlu í Hákonar sögu átt við:
„Betr er slíkt mælt en eigi“.
Á Slóðum Snorra Sturlu-
SONAR OG STURLU ÞÓRÐAR-
sonarÍNoregiSíð-
SUMARS 1978
Sumarið 1978 gafst undirrituðum kostur
á því að ferðast um slóðir Sturlungu og
Heimskringlu í Noregi, ásamt Sigurði
Sverri Pálssyni, kvikmyndagerðarmanni
og Oddvari Foss, norskum sagnfræðingi
og starfsmanni norska sjónvarpsins, sem
var leiðsögumaður í ferðinni. Við höfðum
ákveðið að verja heilum degi til að skoða
eyjuna Folksn fyrir mynni Þrándheims-
fjarðar. Nafn eyjunnar hefur breyst í ald-
anna rás og heitir hún í dag ýmist Fosen
eða Fosna / Stórfosna. Einhvern veginn er
það svo, að mér hefur ætíð síðan ég dvaldi
þennan eftirminnilega dag úti í eyjunni
spurninguna um folgsnarjarlsnafnbót
Snorra Sturlusonar og ef til vill vinnubrögð
Sturlu Þórðarsonar, sem færði frásögnina
um hana í letur. En áður en við hefjum
upp frásögn af för til Folksnar og lýsingu
á staðháttum þar er nauðsynlegt að gera
lítils háttar grein fyrir því vandamáli, sem
hér um ræðir og er svo nátengt eyjunni
Folksn.
SNORRI Folgsnarjarl
„Ok var það sögn Arnfinns, at hcrtoginn
gæfi Snorra jarlsnafn, ok svá hefir Styrmir
inn fróði ritat: „Ártíð Snorra fólgsnarjarls,"
— en engi þeira íslendinganna lét þat á
sannast“ (Sturl. 143 kap.)
Óhugsandi er að fjalla um Snorra Sturlu-
son, án þess að velta fyrir sér afstöðu hans
til norska konungsvaldsins. Hefur mikið
verið rætt og ritað um það efni og menn
ekki verið á eitt sáttir, hvernig beri að
skilja heimildirnar og hvernig túlka eigi
viðhorf Snorra. í þessu sambandi hefur
jafnan skipt miklu máli, hvaða skilning
menn leggja í ofanskráða tilvitnun, þótt
fjölmargt annað komi til álita. Merkir
fólgsnarjarl leyndur jarl (af íslandi), eins
og flestir álíta og skólabækurnar og opin-
ber sagnfræði hefur staðfest eða felst í
orðinu folgsnarjarl merkingin jarl af
Folksn(íNoregi)?
Frásögn Sturlu í 143. kapítula fslendinga
sögu (Sturlunguútg. 1946) þess efnis, að
Skúli hertogi hafi gefið Snorra jarlsnafn
sver sig mjög í ætt við orðsveim. Engin
staðfesting fékkst fyrir þessu á dögum
Sturlu sjálfs og því er það ekki vandalaust
og ef til vill útilokað að komast að niður-
stöðu í málinu mörgum öldum síðar. Lík-
lega yrði frásögn af þeim toga sem hér um
ræðir flokkuð á okkar dögum undir slúður-
sögu. En oft er fótur fyrir slúðrinu og
hver hefur ekki heillast af því að reyna
að komast til botns í sannleiksgildi slúður-
sagna? Sturla segir, að engir íslending-
anna, sem voru í boði Skúla, þegar hann
átti að hafa gefið Snorra jarlsnafnið, hafi
staðfest, að þetta hafi átt sér stað. Á því
gætu reyndar verið ýmsar skýringar, m.a.
sú, að upplýsingar þar að lútandi gátu
komið þeim sjálfum í koll. Olafur Þórðar-
son, einn þeirra, sem var viðstaddur at-
burðinn, var bróðir Sturlu. Hvað svo sem
hefur farið síðar á milli þeirra bræðra um
þetta mál, þá hefur Ólafi ekki tekist að
eyða grunsemdum Sturlu um að Snorri
hafi verið gerður jarl, sbr. tilvitnunina í
Styrmi: ... ok svá hefir Styrmir inn fróði
ritat. Önnur heimild Sturlu er Norðmaður-
inn Arnfinnur Þjófsson, stallari Skúla, sem
var þar af leiðandi einn nánasti samverka-
maður hertogans og hefði átt að vera gjör-
kunnugur málinu. „Ok var það sögn Arn-
finns", segir Sturla. Sturla átti þess ekki
kost að hitta Arnfinn að máli. Arnfinnur
lést í Noregi árið 1241, sama ár og Snorri
Sturluson. Og fjórum árum síðar lést höf-
undur ártíðarminnisgreinarinnar, Styrmir
hinn fróði, príor í Viðeyjarklaustri.
Hér er því margt á huldu. Svo sem
kunnugt er þá er mikið af slúðri og ýmis
konar dylgjum í íslendinga sögu Sturlu,
sbr. þegar sagt er um tiltekin mál, að sumir
hafi sagt þau vera svona en sumir segja
að þau hafa verið öðru vísi, eða hvað skal
segja um ummæli eins og: ... ok hélst sá
orðrómur lengi síðan, eða ... þat er sögn
manna, at ... eða ... ok var þat sumra
manna mál, at Snorri letti lítt Loft upp-
reistar á mót Birni. Þannig mætti lengi
upp telja. En segjum sem svo að það hafi
verið fótur fyrir slúðrinu í þetta sinn, sbr.
tilvitnunina í Styrmi, sem Sturla getur
ekki alveg leitt hjá sér, því hann veit að
Styrmir hefði mátt gerst vita um málið,
er þá allsendis víst, að Sturla og samtíðar-
menn hans hefðu lagt sama skilning í
folgsnarjarlsnafnbótina, sem gert er á
okkar tímum, að Snorri hafi verið gerður
leyndur jarl yfir íslandi. Það kemur hvergi
fram í sambandi við það jarlsnafn, sem
hér um ræðir, að það hafi verið tengt
jarladæmi á íslandi. Hins vegar má minna
á, að Snorri hafði áður verið gerður lendur
maður konungs í Noregi. Var það útilokað
að Snorri hafi verið gerður jarl í Noregi í
þetta skiptið? Hafði Skúli hertogi ekki um
annað þarfara að hugsa á þessum tíma en
að ná völdum á íslandi fyrir tilstilli Snorra,
sem hann vissi af fyrri reynslu, að ekki