Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1986, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 12.04.1986, Blaðsíða 3
@@H@@[N][B][r]®[|][I]|T][N][»] Forsíðan Myndin er af norska skáldinu Rolf Jacobsen, sem rætt er um í blaðinu. Myndina tók Knud Ödegárd, höfundur greinarinnar um Rolf og forstöðumaður Norræna hússins. Höfuðlausn Egils Skallagrímssonar heldur áfram að vera mönnum íhugunarefni. Að þessu sinni leggur Guðmundur J. Guðmundsson cand. mag. sitttil málanna ogtelur að Egill hefði aldrei sloppið lifandi, ef hann hefði í raun framið það afbrot, sem sagan greinir frá. Trélífsins er nafn á risahöggmynd eftir rússneska útlagann og myndhöggvarann Neizvestny. Þessi mynd á að vera á stærð við íbúða- blokk; í henni eiga líka að vera allskonar vistarverur, en þetta er ennþá eftir að fram- kvæma. Síðari grein Braga Ásgeirssonar um Neizvestny. Rolf Jacobsen er eitt af höfuðskáldum Norðurlanda um þessar mundir og einn þeirra sem útnefndir voru til Norðurlandaverðlauna í bókmennt- um í ár. Landi hans, Knud Ödegárd, skrifar grein um skáldið en jafnfram birtast ljóð eftir Jacobsen í þýðingu Jóns úr Vör og Matthíasar Johannessen. SERGEJ JESÉNÍN Piltur og stúlka Geir Kristjánsson þýddi úr rússnesku Hættuþessum grettum, þú hrellir ekki mig; ég elska semsé aðra, aðeins ekki þig. Þetta veistu líka, svo Ijós erhegðun mín — aldrei lít ég á þig; og ei kem til þín. Afrælni gekk égframhjá, það rak ei áhuginn — miglangaði bara aðeins aðlíta uppígluggann þinn. (1925) Sergej Jesénín (1895-1925) er eitt af þekktustu Ijóðskáldum Rússa á þessari öld. Hann var af bændafólki kominn, og lýsing- ar á rússneskri náttúru og sveitalífi eru veigamikill þáttur í Ijóða- gerð hans. Um tíma var hann giftur danskonunni frægu, (sadoru Duncan, og ferðaðist með henni, m.a. til Ameríku. Hann batt sjálfur enda á líf sitt í Leningrad 1925. Þýð. Ástarlíf og fiskveiðar R ví verður ekki á móti mælt, að sú kynslóð, sem er að taka völdin í landinu útá prófskírteini sín en um margt föður- betrungar, það þurfti nú ekki afburðamennina til, en þessir gemlingar okkar hafa lítinn eða engan skilning á hefðbundnu atvinnuvegun- um, enda fæstir þeirra aldir upp við þá. Þeir halda, að það sé bara að færa tölur á blað í rólegheitum inni á skrifstofu að stunda landbúnað og fiskveiðar í landi þar sem á öllu gengur um tíðarfarið og spretta og afli misjafn eftir árferði til lands og sjávar og aflann verður að sækja undir högg veður- guðanna. Ég held að fáir, sem eitthvað þekkja til fiskveiði, gleymi skýrslu sem tveir ungir menn tóku saman af sínum lærdómi og sönnuðu þar að aflabrögð fiskiskipa væru ekkert komin undir skipstjóranum, það væri gömul bábilja. En það kalla ég vellukk- aðar skýrslur sem eru svo vitlausar að enginn tekur mark á þeim, jafnvel ekki fjölmiðlar. Þær mættu betur vera fleiri af því taginu. Fiskveiðar eru veiðimennska eins og nafnið bendir til. Þær eru ekki iðnaður, eins og ungir menn halda, og meðan við lifum á fiskveiðum á stefnan ekki að vera sú að samræma veiðamar iðnaðinum heldur reyna hina leiðina að samræma iðnaðinn veiðun- um. Það er fyrir sig að ungir menn, sem lokaðir hafa verið inn í skólum öll sín æskuár og helftina reyndar líka af mann- dómsárum sínum, hafi ekki fullan skilning á hefðbundnu atvinnuvegunum, en hitt ergir mann, að þeir skuli enga virðingu bera fyrir þeim. Þessu veldur uppeldisleysið, það er hætt að kenna unglingum að taka ofan fyrir gömlum mönnum og standa uppúr sætum sínum fyrir óléttum konum, en það eru einmitt til óléttra kvenna, sem ég ætla að sækja skýringardæmi mitt. Það á nefnilega alltaf að tala við ungt fólk á máli sem það skilur. Meðan ástalíf er stundað með hefð- bundnum hætti er ekki hægt að koma í veg fyrir að kona verði annað veifið ólétt. Á sama hátt er það í fiskveiðunum, að það er ekki hægt að koma í veg fyrir að fískimað- ur fái of mikið í veiðarfærin, í báðum tilvik- um eru menn að kasta og kasta og renna blint í djúpið, og svo fyllast bæði vörpumar og konumar. Eiga menn að forðast físk, eiga menn að forðast konur? Á netaveiði- maður að forðast að leggja net sín á bleyð- unni, sem hann veit físksælasta eða nóta- veiðimaður að kasta á fallega torfu eða togaramaðurinn að kasta á fallega lóðningu? Eiga menn að hlaupa í öfuga átt, ef þeir sjá fallega stúlku? Hvað gerið þið „piltar mínir", sem eruð að leggja fiskimönnunum lífsreglumar, ef þið sjáið fallega stúlku, kastið þið ekki, ef þið getið það og hvað oft kemur það svo ekki fyrir ykkur, að þið ráðið ekki við það sem þið kastið á? Það er meira að gera en segja það, að taka aldrei meiri afla en svo að hægt sé að skoða uppí hvem fisk og hugsið svo einhvem tímann um vinnuaðstöðuna um borð í fiskiskipum sem hamast á öllum endum. Og hvað getur ekki farið úr skorðum fyrir ykkur í rúminu, þegar svoleiðis gengur til? í fjölmiðlum er nýgengin yfir alda í ný- græðingum í fiskimati, sem vitaskuld hófu starf sitt með skýrslugerð áður en þeir vissu nokkuð um starfíð sjálft. Það er ekki nema eðlilegur gangur mála nú, en það sem fór í taugamar á manni var þessi tugga um að draga úr afköstum til að auka gæðin. Og til þess er ég hér á ferð að segja ykkur, strákar mínir, að þetta land byggðist upp á þessari öld á hinu sjónarmiðinu, að forðast eftir getu að draga úr afköstum á veiðunum I og stefna að því að auka gæðin líka. Mikil afköst í fískveiðunum og mikil gæði byggðu upp þetta land, ef stefnan hefði verið hin: mikil gæði — lítil afköst, væmm við enn í moldarkofunum. Þetta sjónarmið, að draga úr afköstum til að auka gæðin, hefur verið kallað krata- sjónarmið, en það úreltist eins og annað og líklega er allt eins rétt að fara að kenna það við Framsóknarmenn, ef ekki Sjálfstæð- isflokkinn, þann flokk, sem eitt sinn átti alla helztu forystumennina í fiskveiðum okkar og jafnframt mennina, sem mest stuðluðu að uppbyggingu landsins. Nú hefur þessi flokkur spyrt sig saman við Framsókn- arflokkinn í kvótakerfi í öllum okkar at- vinnuvegum, nema innflutningsverzlun, en þar er þá kominn alþýðudómstóll í verðlags- málum. Svo bregðast krosstré sem önnur tré í fískveiðimálum. Ftjálshyggjupostulinn mikli, Hannes Hólmsteinn, skrifar harðar greinar um aukna stjórnun í fískveiðum, byggða á hafrannsóknafiskiríi. Manni þykir dálítið vænt um hann Hannes Hólmstein af því að þetta er gáfaður náungi og kjarkur- inn óbilandi, en haltu þér, Hannes minn, við grundvallarfræði frjálshyggjunnar. Aldr- ei villtust kommúnistar á sinni tíð yfír í raunveruleikann. Þeir héldu sig við grund- vallarfræðin og ræddu um Wall Street og Sovét, hvað sem var að gerast í Bolungar- vík — og halt þú þér við fræðin og Hong Kong. ÁSGEIR JAKOBSSON LESBOK MORGUNBLAÐSINS 12. APRlL 1986 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.