Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1986, Side 3
I.EgPiTg
HSffliHöisHiBiaaíimiiia
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.:
Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías
Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoð-
arritstjóri: Björn Bjarnason. Ritstjórnarfulltr.:
Gísli Sigurðsson. Auglýsingar: Baldvin Jóns-
son. Ritstjórn: Aöalstræti 6. Sími 10100.
Forsíðan
er vatnslitamynd eftir Eirík Smith af Snorra Hjartarsyni
skáldi og er hún birt í tilefni áttræðisafmælis Snorra
þann 22. þessa mánaðar.
Þúsundþjala-
smiður
Það er óvenjulegt að sami maður skipti sér milli margra
listgreina og nái markverðum árangri. Svo hæfileikaríkur
er Geoffrey Holder, blökkumaður frá Trinidad, að hann
er góður málari, en þekktari þó sem skemmtikraftur,
kvikmyndaleikari, leikstjóri og búningahönnuður.
Borgin
hefur fylgt mannkyninu alllengi og henni hefur verið lýst
sem keri, þar sem hlutimir blandast og breytast, segir
Þórður Ben Sveinsson myndlistarmaður í fyrstu grein
sinni um uppruna og þróun borga.
B
B
Draumasmiðjur
og þjóðfélagsveruleiki
Hver ung kynslóð á sér einhverja
drauma um eftirsóknarvert líf og
þetta gildismat breytist frá einum
tíma til annars. í glanstímaritunum,
sem upp hafa sprottið nýlega og
gefa í engu eftir sambærilegum út-
lendum tímaritum, sést þetta vel;
sama hvort þau heita Mannlíf, Nýtt líf, Lúxus eða Stíll.
Þegar þessum ritum er flett kemur í ljós ákveðið gildis-
mat: Maður á að vera ungur og sætur og vel efnaður,
láta ekki sjá sig öðruvísi en í nýjasta stælnum og að sjálf-
sögðu borðar maður yfirleitt úti á veitingahúsum. Heimil-
ið er staður þar sem maður kemur til þess að horfa á
myndband og sofa. Forðast skal að hafa það heimilislegt
en fremur eins og deild í húsgagnaverslun. Við sem eldri
erum köllum það sálarlaus híbýli, en draumasmiðjan í
glanstímaritunum segir að það skuli vera svona.
í helgarblöðum dagblaðanna, tímaritunum og Vikunni
er svokölluðu þekktu fólki slegið upp með forsíðumynd
og viðtali. Sífellt er sótt í sama hópinn og æði oft eru
það stjómmálamenn og listamenn. Það er út af fyrir sig
meira en réttlætanlegt, þegar það eru stjórnmálamenn
sem eitthvað hafa gagnlegt fram að færa, eða lista-
menn, sem unnið hafa markverð listræn afrek. En
draumasmiðjan er ekki umfram allt á höttunum eftir
fólki sem eitthvað hefur að segja og eitthvað gott hefur
látið af sér leiða. Dæmigerður viðmælandi í glanstímariti
þarf helzt að vera ungur og sætur; hann má gjaman
vera tæknimaður, t.d. á rás tvö, ellegar plötusnúður,
poppsöngvari eða spila í hljómsveit. En hvort sem hann
er í einhveiju af fyrmefndum glanshlutverkum eða öðru,
þá þarf hann að vera „uppi“, þ.e. framagjam einstaklings-
hyggjumaður með pottþétt plön um það hvemig hann
ætlar að verða ríkur fljótt. Nýlega var í einu tímaritanna
gerð grein fyrir því hvernig „uppar“ eiga að vera og
haga sér í einu og öllu. Það á að sjást langar leiðir á
klæðaburði þeirra meðal annars, því þeir em svo frjálsir
frá því hefðbundna, en um leið afskaplega ófrjálsir að
manni fínnst, því þeir verða að fara eftir forskrift til að
vera með á nótunum.
„Uppar“ eru sem sagt ungt fólk á uppleið og auðvitað
er ekkert sjálfsagðara en að ungt fólk sé á uppleið. Annað
væri fráleitt. En ef þessi uppleið byggist umfram allt á
kaldriíjaðri peningahyggju samkvæmt lögmálum frum-
skógarins þá þykir mér hún ekki geðfelld.
I glansveröld tímaritanna er mikil neyzla í hávegum
höfð; maður verður að eiga allt til alls, einkum það nýj-
asta. Jafnvel skólanemendur eru komnir á svo fulla ferð
í neyzlukapphlaupinu, að samkvæmt nýjum könnunum
vinnur stór hluti menntaskólanemenda með náminu. Ekki
er talið að það sé gert af knýjandi nauðsyn eða vegna
þess að nemendur geti ekki lengur búið og borðað frítt
heima hjá foreldrum sínum eins og löngum áður. Ástæðan
virðist vera sú að þetta unga fólk vill ekki láta sér lynda
að lifa eins og námsfólk hefur löngum gert. Menntaskóla-
kennari sagði mér að ótrúlega stór hluti nemenda kæmi
nú í skólann á eigin bíl og yfírleitt væri hægt að þekkja
bíla kennaranna úr, því þeir væru eldri og lakari.
Draumamir um paradís neyzlunnar sem skapaðir em
til að mynda í sjónvarpsauglýsingum og glanstímaritum,
geta skapað nýjan þjóðfélagsveruleika og gera það efa-
laust. Eitt af því sem fylgir þessum lífsstíl er að maður
hugsar fyrst og fremst um sjálfan sig og þess vegna
verður ekki rúm fyrir böm á heimilum „uppanna". Börn
passa einfaldlega ekki inn í það lífsmynstur. Samt á það
sér stað og mun eiga sér stað, að böm koma í heiminn,
þótt ekki hafi það staðið til. Ugglaust verður misjafnt
hvernig þeim famast; það fer eftir foreldrum hveiju
sinni. En því nefni ég bömin í þessu sambandi að nú
hafa borizt fregnir af því að skólaböm í henni Reykjavík
séu vannærð. Hvers vegna? Vegna þess að foreldramir
vinna bæði úti; þau borða heitan mat hjá ríki, borginni
eða einhveiju fyrirtæki í hádeginu og þykir ekki taka
því að hafa mat á kvöldin. Þá þarf aðeins að fleygja
einhveiju í börnin og þeim þykir ágætt að fá kókópuff
eða eitthvað álíka magnað fóður.
Þá verður spurningin: Hvernig vegnar kókópuffkyn-
slóðinni þegar hún fer að takast á við vandamál lífsins?
GÍSLISIGURÐSSON
Snorri Hjartarson
Þorp í
Sabínafjöllum
Stend á torginu við múrinn, horfi
á hlíðarnar fyrir neðan
silfurgráar af olíuviði
hinum fornu sífrjóu trjám
til annarra hæða og tinda
múrkrýndra, sólmisturblárra
yfir torgið, á konurnar við brunninn
fagurvaxnar stæltar
í spori líkt og þær
mæður kynslóða
sem rænt var héðan forðum
á aðra hönd virki og turn
til hinnar þrep upp að kirkju
breið og há
og lítið barn
hljóðlátt og eitt á auðum þrepunum
Sit í laufskála í Olevano
þungir þrúguklasar yfir mér
rökkrið sáldrast gegnum vínviðinn
yfir göturnar brattar og þröngar
himinninn roðnar dökknar
og þéttar fellur rökkrið yfir borðin
og rautt vínið
sem ég sit við hljóður í kliðnum
Þýt gegnum heitt myrkrið
í átt til Róms
frá fortíð til fortíðar
um veg og stund lifenda
hugsa um barnið í þorpinu
barnið
og sit þar á tröppunum, ekki
barn ekki lítill drengur
sem sér himininn opinn
og engla stíga niður til jarðar
nei þreyttur maður
kominn langan veg
dyrnar að baki mér luktar
og ljós leyndardómsins
brennur á fjarlægri hæð
utan sjónmáls, ég veit ekki hvar.
Birt í tilefni áttræðisafmælis höfundarins þann 22. apríl.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19. APRlL 1986 3