Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1986, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 19.04.1986, Side 6
míofmss^fáH aiiBfÍ TOÖHhó iM .idfcmlöxð; | •.fofifcaÉfe aciáE .^^ferfri&nH am\W -198 *LBbnulörí BnnBfríainiöf? fri98 Jsnníín i uðöisfiiBnnorí usiv öb jWsft .BrnÍBíi lörí ioibÍB HVERJIR VORU Baldvin Einarsson Jónas Hallgrímsson FJOLNISMENN? Jónas hefur gjarnan þótt holdtekning hins upp- flosnaða Hafnarstúd- ents, var líklega hallur að flöskunni á stundum og um kvenfólk gantast þeir Konráð í bréfum, þótt ekki væru tilefnin mikil. Það er ekki hin harðsnúna karlmanns- ímynd sem mætir okkur í bréfum Fjölnismanna. þeir eru hlýlegir, eigin- lega ástúðlegir við vini sína, tilfinningaheitir og bræðraþel er áberandi í umgengni þeirra við aðra karlmenn. 2. hluti greina- flokks eftir Sigrúnu Davíðsdóttur svipmyndum Fjölnismannanna ijögurra hér á eftir er einkum stuðzt við þá mynd, sem bréf þeirra gefa af þeim, en minni áherzla lögð á að rekja æviferil þeirra. Auk þess sem bréfin segja mikið um þá hvern og einn, er að finna í þeim sameigin- leg einkenni, sem eru upplýsandi um tíðar- andann. í kvenna- og karlamálumræðu nútímans er karlmönnum gjaman stillt upp sem harð- soðnum, yfirveguðum verum, sem byrgi inni tilfinningar sínar og láti þær ekki stjóma sér. En það er allt önnur karlmannsmynd, sem mætir okkur í bréfum Fjölnismanna. Tómas ávarpar Jónas elskan mín og svona mætti lengi telja. Þeir eru hlýlegir, eiginlega ástúðlegir við vini sína, tilfínningaheitir, tala stundum léttúðlega um kvenfólk, eigin- lega óvirðulega fyrir nútímasmekk, en líka stundum hlýlega. Bræðraþelið er áberandi í umgengni þeirra við aðra karlmenn. Og ef við gefum okkur það að mann- skepnan breytist ekki mjög á um 150 ámm, þá er víst óhætt að setja spumingamerki við áðumefnda mynd af nútímakarlinum og velta fyrir sér hvort skýringin liggi ekki fremur í tíðarandanum en karleðlinu. En þessum þönkum verður ekki sinnt frekar hér, þeim er aðeins varpað fram hér af létt- úð og alvöruleysi... En víst er að bréf þessa tíma em hinar merkustu heimildir um allt milli himins og jarðar. Þó fleiri kæmu við útgáfusögu Fjölnis, þá em það þeir Brynjólfur Pétursson, Jónas Hallgrímsson, Konráð Gíslason og Tómas Sæmundsson sem átt er við þegar Fjölnis- menn em nefndir. BRYNJÓLFUR PÉTURSSON Brynjólfur fæddist 1810, sonur Péturs Péturssonar prófasts á Víðivöllum. Sá var sagður auðmaður, svo honum varð ekki skotaskuld úr að mennta syni sína þtjá, sem allir luku háskóiaprófi. Pétur, bróðir Brynj- ólfs, varð á endanum biskup, Jón varð dóm- stjóri, Brynjóifur fór í Bessastaðaskóla 1824, varð stúdent 1828 og fór f Hafnar- háskóla 1829. Skólavegurinn varð honum beinn og breiður, hann útskrifaðist sem lögfræðingur 1837. Hann gerðist sjálf- boðaliði í Rentukammerinu eins og algengt var og fékk svo æ betri embætti þar. 1848 var stofnuð sérstök íslenzk stjómardeild og yfir hana var Brynjólfur settur. Framan af var hann að velta fyrir sér ernbættum heima, fékk reyndar sýslumannsembætti, en aldrei varð úr heimferð. Seinni hluta árs 1850 veiktist hann, varð líklega hálf mglaður með köflum. Hann hafði verið lélegur til heilsunnar áður, kenndi um of mikilli vinnu, sem hann dró þó ekki úr. Hann stundaði vatnskúra úti í Klampenborg sér til styrk- ingar, drakk þar vatn á hressingarhæli, sem Jón Hjaltalín, seinna landlæknir hér, rak. Sjálfur talar hann um að taugaveiki hafi htjáð sig. Sóttin elnaði og í vetrarbyrjun 1851 dó hann. Látum þetta nægja um lífs- hlaup Brynjólfs, en hvemig kom hann fyrir? Benedikt Gröndal lýsir honum sem háum og herðalotnum, nefljótum, með „smáar hendur og fætur og var ætíð snyrtiíegur í fötum og framgöngu; hann gekk með gull- gleraugu eins og Konráð. Hann var hneigður til hjartveiki, og málrómurinn veiklegur og skjálfandi. Hann var einhver hinn dreng- lyndasti og göfuglyndasti maður, sem ég hef þekkt, og þar eftir hygginn og séður“. Benedikt bætir við fémildi hans, Brynjólfur hafi oftlega vikið að honum pening óumbeð- inn, þegar þeir hittust á götu. Elzta bréfið í útgefnu bréfasafni Brynjólfs er til Jónasar, frá 1829. Brynjólfur segist hafa lítið fréttnæmt handa vini sínum, „Jeg les — Horatz Virgil Cicero Holberg Heiberg Ossian og allrahanda stóra menn enn þó held eg að eg sjálfur ætli ecki að verða neitt stór við það. Að sönnu finst mjer stundum að það vera farinn að lifna í mer ofurlítil Musa enn þegar eg fer að hugsa betr eptir því er það ecki annað en sú gáfa að geta talað so að hverki skilji aðrir eða sjálfur jeg.“ í seinni bréfum til Jónasar frá Höfn sézt að hann hefur m.a. reynt að greiða úr veraldlegum málum hans, t.d. peningamálum, þegar Jónas var ekki í Höfn. Þessi bréf eru hlýleg, full af glensi, hálfkær- ingi, og hálfkveðnum vísum, en oftast býsna efnislítil. Bréfin til Konráðs eru þessum lík, sami skólapiltaandinn, sem verður næstum óviðeigandi, þegar þeir félagar eldast. I bréfum til Jóns bróður er það ailt öðru vísi Brynjólfur sem talar. Auk þess að vera hlýlegur og innilegur, er hann alvarlega þenkjandi. Fréttir um lát föður hans hræra hann til óvenjulegrar einlægni „Mjer finnst ástir hjá mer til þeirra sem eptir lifa fái við þetta níar glæður, og verð jeg þó að segja að jeg hefi ætíð elskað Ikkur heitt í huga mínum, þó mótlæti (sem jeg hef þókst verða firir) hafi gjert mig nokkuð kaldranalegan í umgeíngni. Þegar sá stofninn er fallinn, sem við allir studdumst við, þurfum við því betur að stiðjast hvur við annan í ást og samheldni, til að gjeta staðið fastar í huga sjálfra okkar og líka í veröldinni." í Skuldafeni í bréfum til Jóns miðlar Brynjólfur honum heimsfréttum, ræðir danska pólitík og reifar skoðanir sfnar á íslenzkum málefnum. Honum er tíðrætt um stöðuveitingar hér, vill góða menn í embætti og er áfram um að koma Jóni í góða sýslu. Peningamál hans voru honum dijúgt umræðuefni. Brynj- ólfur var nánst alltaf í skuldafeni og er stöðugt að reyna að greiða úr þeim, m.a. með foreldraarfi og eignahlutum hér. Hann skýrir þó aldrei fyrir Jóni hvemig stóð á skuldunum, en Jón hefur vafalaust vitað sitt um það, því um skeið var hann samtíma bróður sínum við háskólann. Brynjólfur var alþekktur meðal landanna fyrir góð- mennsku, lánaði nauðstöddum og félausum löndum sínum, — og af þeim var nóg, ef hann mögulega gat. Gröndal segir Brynjólf einan hafa borgað 9. árg. Fjölnis, „ .. .hann hafði alltaf pening og sá ekki í skildinginn." I erfðaskrá sinni gaf hann sumum kunningj- um upp skuldir þeirra við sig. Hann nefnir nokkmm sinnum að ekki þýði sér að hugsa til kvonbæna, fjárhagurinn leyfi ekki slíka léttúð. Grímur Thomsen var góðvinur Brynjólfs, þó hann væri 10 ámm yngri. Hann gerði víðreist um Evrópu uppúr 1845 og þá gengu bréf milli þeirra. Þau em hressileg, þar bregður fyrir sama stráksskapnum og í bréf- um til Jónasar og Konráðs. Hann reytir í Grím fréttir úr Höfn og af íslandi í mun léttari tón en til Jóns bróður. Brynjólfur skipti sér lítið af stjómmálum. Hann reyndi sem ungur að láta kjósa sig til þings, en svo samræmdist slíkt brölt illa dönskum embættisferli. En skoðanalaus var hann ekki. Hann studdi hugmyndir um þing heima fyrir, sem færi með íslenzk mál. Síð- ustu árin vann hann með Jóni Sigurðssyni, þrátt fyrir andúð á honum, fannst hann of stjómsamur og var honum t.d. ósammála um þingstaðinn. En merkilegasta framlag Brynjólfs í þjóðmálaumræðuna er án efa grein í 8. árg. Fjölnis um íslenzku ríkisreikn- ingana. Þar sýnir hann fram á að andstætt því sem danskir létu gjaman í veðri vaka, þá voru íslendingar enginn bónbjargarlýður á Dönum. Það munaði býsna litlu að íslend- ingar skiluðu aftur að fullu, því sem Danir lögðu til landsins. Jón Sigurðsson hélt svo áfram að skrifa um einmitt þetta efni. Brynjólfur dó 41 árs, útslitinn maður, þreyttur á líkama og sál af mikilli vinnu og peningaáhyggjum. Lífið virðist hafa lagzt þungt á hann, hann var mæddur af mótlæti sem efldi hann ekki, heldur dró úr kröftum hans, eins og orð hans hér að ofan segja glöggt til um. JÓNAS HALLGRÍMSSON Jónas fæddist 1807, sonur aðstoðar- prests, sem dó, meðan Jónas var bam. Hann hafði því engan stuðning þaðan við nám sitt, fór í Bessastaðaskóla 1823 og útskrifaðist 1829 með góðum vitnisburði. Hann var skrifari hjá Ulstrup fógeta í Reykjavík þangað til hann komst utan til

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.