Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1986, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1986, Blaðsíða 7
ísland vantaði söngvara, sem kynnu sitt fag, sagði faðir hans. Menn, sem bæru text- ann fram eins og fólk, tilaðmynda á orðum einsog Flut og Blut. Erlendis voru góðir kennarar, sem gátu hjálpað mönnum með mikia rödd. Það var líka greinilegt, að tónlistarskyn íslendinga fór vaxandi. Það þurfti ekki ann- að en lesa tónlistargagnrýnina í blöðunum til að sjá það. Dögum oftar brast gagnrýn- endurna orð til þess að lýsa hrifningu sinni yfir afrekum söngvara og hljóðfæraleikara. Allt var þar frábært og stórkostlegt, að dómi þeirra. Sérstaklega, ef þeir voru að skrifa um frænda sinn eða son yfirmannsins hjá fyrirtækinu. Faðir hans hafði sagt hon- um, að fyrst þegar söngskemmtanir voru haldnar í plássinu heima, hefðu karlarnir staðið upp í miðju lagi, fengið sér í nefið og spurt hver annan: Hvað varstu að fiska, elskan? Það var nú liðin tíð. Menn sátu hljóð- ir og klöppuðu á réttum stöðum. Hljóðfallið var náttúrulega grundvallarat- riði í tónlist. Þar var allt spuming um tíma. Faðir hans hafði ungur verið í kanadíska hemum. Þeir höfðu gefið honum 20 sekúnd- ur til þess að ktjúpa niður úr réttstöðu, hlaða riffilinn 6 skotum og hitta þeim í mark, standa síðan á fætur aftur og axla byssuna með útúrdúrakenndum seremoníum og slá loks saman hælum í réttstöðu. Eftir þetta skildist föður hans, að það væri æviniega nógur tími í músík. Eitt var víst. Piltinn langaði ekki til þess að verða statisti í ópem hér heima. Faðir hans hafði ekki grínast svo lítið með söguna af Ólafi Þvaran, sem hafði eitt sinn fengið dálítið hlutverk í ópem. Hann hafði átt að koma inn á sviðið í fyrsta þætti með sendi- bréf og syngja nokkur orð á ítölsku. Þvaran hafði tekið þetta hlutverk svo alvarlega, að allan þann vetur og fram á vor, sást hann ekki á almannafæri, öðmvísi en í skósíðum vetrarfrakka með stóran trefil um hálsinn, hóstandi eins og heilsutæpur stórsöngvari með astma. Dagmar fannst veröldin yndisleg og fög- ur. Einkum og sérílagi fjöllin. Hvað það yrði gaman að fara að búa hér fyrir austan með píltinum, sem hún unni. Kannski mundu þau byija í litla húsinu hennar Maju hei- tinnar inni á Gmndum. Hann mundi fara með hitabrúsann í rassvasanum til vinnu á morgnana og þegar hann kæmi heim í há- deginu, hefði hún matinn tilbúinn. Kannski mundu þau fá sér hesta. Það yrði ekki amalegt að ríða ijöruna inn að ánni, þar sem hún mynntist við hafið, svo stórt og blátt. Ó, að þess söngur mundi ekki þurfa að eyðileggja allt. Hvað hún vonaði, að hann kæmi bráðum heim til þess að vera hjá henni. Svo mundu fæðast böm, sem lékju sér á kambinum, en þau mættu nátt- úrulega ekki fara niður á bryggju, nema í fylgd foreldranna. Hennar söngur var tón- list þúsundvængjaðrar kríunnar á vorín, sönglandinn í blikanum, trillur hrossagauks- ins og djúpi tónninn í kúnum. Líka hljóðið frá fiskvinnslunni, þegar vélarnar vom í gangi. Eða erfíðistónninn í vömbílunum, þar sem þeir mjökðust upp brekkuna, fullir af loðnu. Henni fannst líka gaman í kirkjunni á hátíðum, þegar söngurinn hans Bjarna heitins í Siglufirði ómaði um allt. Þetta kvöld var aftanskinið í algleymingi á landi og sjó. Hún þræddi troðninga sauð- fjárins meðfram sjónum og hlýddi á ómfagra músík fuglanna í fjöruborðinu, bæði tjalds og sendlings. Hana langaði ekki suður. Hún vildi bara fá hann heim. Fuglarnir fljúga betur en nokkur flugvél; tónlist þeirra er góð og gild, ekkert síður en tónlist mannanna. Hún sett- ist í grasinu uppi í miðri hlíð. Þarna undi lambféð á beit og það kom styggð að einni ánni, svo hún tók á rás með lambið sitt og staðnæmdist ekki fyrr en uppi á leiti hinum megin við gilið, þar sem gimbillinn hennar fékk sér teyg til öryggis. Svo hélt hún upp bratta hlíðina, yfir stórgrýtisurð, þar sem mölin var öll á iði undir nettum fótum henn- ar. Steinvölur skoppuðu burt í hvetju spori. Áfram hærra, hærra. Hér var allt snævi þakið. Sleipt hjam vetrarins breiddi sig líkt og hjálmur yfir alla jörð. Ef hún kæmist fyrir klettanefið þarna ofar, þá tækju við hrífandi víðáttur fjallsins. Hún horfði á lambféð jórtra í fullkominni alsælu í hlíðinni fyrir neðan. Héðan sá líka allt í sjó fram. Hún fikraði sig varlega eftir skaflinum, blá- hvítum í kvöldhúminu. Leitarmenn í björgunarsveitinni fundu hana örenda um morguninn. SMÁSAGA eftir gunnar björnsson. Ragnhildur Ófeigsdóttir Augu þín Ljónagryfja Guðs / Ó Daníel Ijónin með logandi makka sólarlagsins sleikja hendur þínar til blóðs blóð þitt sætara en hunang er vín rautt flóandi vín sem flóir í botnlausan bikar Guðs n Ó Daníel eldur Guðs sleikir hörund þitt Ijónynja Guðs hringar sig utan um þig hristir logandi makka sinn þú stendur með hendi þína á höfði hennar blóð þitt er áfengt þú hefur drukkið af Guði Augu þín fjólur sem uxu í garði næturinnar munnur þinn sætasta epli hunangsdögg hendur þínar ó hendur þinar hvítar sem máninn sem hangir í greinum tijánna struku líkama minn eins og náttblærinn ^ sem beygir strám ug blómin með ilmandi kossi sínum sem gælir viðmoldina oglaufin hvíslandi ég elska þig moldin errök af saknaðartárum döggin er áfeng af sorg Höfundur er félagsfræðingur og húsmóðir í Reykjavík. Horft til gömlu Reykjavíkur Löngum var sagt að Reykjavíkurskáldin væru úr sveit og alltaf að yrkja með eftirsjá um túnið, fjallið eða fjöruna heima. Hitt gerist líka, þótt í minna mæli sé, að fólk hafi flutzt frá Reykjavík út land — og þá yrkja sumir samskonar ljóð, full af trega og eftir- sjá eftir bænum þeirra við Sundin, sem nú er allur annar en áður var. Svo vill til, að þessi ljóð bárust sitt í hvoru lagi, en á sama tíma, austanfrá Hvolsvelli Pálmi Eyjólfsson Við Laugaveg Timburhús á háum grunni með hlýja sál í minningunni, sól á gamla götu skín. Innarlega á Laugavegi lék ér mér á æskudegi, þar átti heima hún amma mín. Ómálaður eldhúsbekkur ellilegur diskarekkur ausur koparkatli hjá. Á sumardögum sólskinsheitum var saltfiskur á stórum reitum það um gluggann gamla ég sá. Lítil stofa, glaðir gestir gólfpláss þröngt er voru flestir, vinir hennar voru úr sveit. Aldrei heyrðist amma kvarta átti veröld hljóða og bjarta, trygg í lund og trúarheit. Þá varkreppa og kyrrð í bænum kýr á beit í túnum grænum, lítil vinna, lítið byggt. Fáir bílar fólk á hjólum, fótatak frá gúmísólum, hófadynur, hestalykt. Nú er líf á Laugavegi lifað hratt á hverjum degi. Hver sinn hag í huga ber. Einföld virðist ömmu saga, átti hún þó bjarta daga, gladdi aðra, gleymdi sér. Höfundur býr á Hvolsvelli og starfar hjá sýslumanni. Ljóð eftir hann hafa áður birst í Lesbók. Margrét Björgvinsdóttir Gömlu Vatnagarðar / Vatnagörðunum vöppuðu tjaldur og lóa og vonglaðar stelpur úr Kleppsholti slógust í hópinn. Lífið var alls staðar fullt af fegurð og hlýju og fallið höfðu að stöfunum skólanna hurðir. Holtið var klettótt og gróska var lítil í gróðri gerðarleg smáblóm þó skutu upp kolli í gkjóli við steinana, bústaði álfa, sem elskuðu lífið óskuðu vorinu gengis og varpfuglum lukku. Miðaldra herrar frá Kleppi þeir kunna að meta þá kosti, sem Gelgjulaut hafði upp á að bjóða. Þar héldu þeir til í heitu sólskini dagsins í hvítum fötum úr lérefti, svolítið daprir. Úti á sundinu kúrði hún Viðey í kyrru. Kannski var svolítil gára á firðinum utar. Esjan sem bakgrunnur blasti við forvitnum augum barna, sem röltu í fjörunni snemma í júní. í alkyrru lágnættis heyrðist stóðhestur hneggja hryssan hún Gletta var köstuð folaldi hvítu sem brá sér á spenann, er sólin í vestrinu settist og Sigurður Ólafsson dáðist að stóðinu sínu. En nú eru umbreyttar æskustöðvarnar fögru athvarf bama og dapra vistmanna af Kleppi. Nú er þar athafnasvæði — öskur og læti ýlfur í flautum og korngeymsla hátt upp í loftið. Höfundur er ritari á Hvolsveili. I LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. OKTÓBER 1986 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.