Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1986, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1986, Qupperneq 13
John Kennedy varðforseti Bandaríkjanna fyrir tihtiUi sjónvarpsins ogí embætti notaði hann þaðtilað öðlast meiri áhrif en nokkur Bandaríkjaforseti á undan honum. fleira fólk en áður kom á kosningafundi hans, og það var langtum áhugasamara um hann en áður. Fólkið fagnaði honum eins og nýjum heimsmeistara í hnefaleik- um, ekki eins og stjórnmálamanni á at- kvæðaveiðum. EFTIRMÁLINN Kennedy hefur verið nefndur fyrsti sjón- varpsforsetinn í Bandaríkjunum, enda hefði hann líklega aldrei orðið forseti án sjónvarps. Samskipti hans og sjónvarpsins voru sem ástarævintýri. Kennedy virtist fæddur fyrir sjónvarpsmyndavélarnar og sjónvarpið var að verða sá sterki miðill sem það er nú einmitt þegar það kom sér best fyrir hann. Hann varð fyrsta pólitíska súperstjarnan. Sem forseti notaði hann sjónvarpið til hins ýtrasta og sjónvarps- fréttamenn og sjónvarpsstöðvaeigendur elskuðu að láta hann nota sit: Hann var svo ótrúlega gott sjónvarpsefni. Eftir að Kennedy varð forseti varð nauðsynlegt fyrir alla áhugamenn um stjórnmál að eiga sjónvarpstæki — og horfa á það. Sjónvarpsstöðvar í Bandaríkj- unum, eins og víðast hvar annarstaðar, þrífast á því að bjóða áhorfendum efni sem þeir vilja horfa á, og ekkert sjónvarpsefni gat keppt við Kennedy hann sjálfan, Jackie, börnin, foreldrana, bræðurna; nafnið var sveipað ævintýraljóma. Fyrir óþægindin sem óhjákvæmilega fylgdu þessu öðlaðist Kennedy meiri völd en nokkur annar Bandaríkjaforseti hafði haft. Þau völd hafa síðan stöðugt vaxið. Kennedy gat með vel skipulagri fjölmiðla- herferð sannfært bandarísku þjóðina um nánast hvað sem var, og í framhaldi af því komið málum sínum í gegnum flokk og þing á allt annan og öflugri hátt en fyrirennarar hans. Hann var ekki forseti demókrata sem átti í höggi við stjórnar- andstæðinga repúblikana; nú var það for- setinn annars vegar og allir hinir hinsveg- ar. Forsetaembættið varð óháðara flokkn- um — valdið var sótt beint til þjóðarinnar í gegnum sjónvarpið. Ágætur vitnisburður um þessar breyt- ingar er að þegar Nixon varð loks forseti 1968, þá fyllti hann, eins og aðrir forsetar, Hvíta húsið af ráðgjöfum og aðstoðar- mönnum. En þeir voru ekki stjórnmála- menn heldur upp til hópa menn úr heimi sölumennsku, auglýsinga og fjölmiðla. Stjórnmál í Bandaríkjunum voru orðin allt annað en það sem var kallað því sama nafni tíu árum áður. Evrópa fylgdi í kjölfarið og síðan önnur lönd heims. Nánast allir helstu stjórn- málamenn síðustu tveggja áratuga hafa átt auðvelt með að tjá sig í sjónvarpi og haft kunnáttu til að notfæra sér það. Það eru helst leiðtogar þjóða sem ekki búa við lýðræði, sem lítið hafa þurft þjálfa sig í sjónvarpsframkomu. Gorbachev, hinn nýi leiðtogi Sovétríkj- anna, hefur þó augljóslega gert sér grein fyrir mikilvægi sjónvarps á Vesturlöndum. Hann hefur vakið vonir Vesturlandabúa um breytta og mildari stefnu Sovétmanna — ekki vegna þess sem hann hefur sagt heldur vegna þess að í þeim sjónvarps- myndum sem við höfum séð af honum hefur hann verið glaðlegur, hlýlegur og röskur á svip öfugt við þá Brésnév, Andro- pof og Chérnenko sem á undan honum komu. Þetta nýja útlit hans og framkoma er það sem vakið hefur vonirnar, ekki innihald ræðna hans. Svona er sjónvarpið magnað! Höfundur starfar viö auglýsingagerö og blaöa- mennsku I Reykjavlk. Aöalheimild er bókin „The Powers That Be“ eftir David Halberstam H o! R F T ' w A H E i M 1 N N — eftir Gabriel Laub Bðrn — feður — sjónvarp Nú eru böm á forskólaaldri ekki lengur óhult fyrir skoðanakönnun- um. Ekki veit ég hvort líta ber á þetta sem mikilsverðan áfanga í frelsisbaráttu æskulýðsins — aið vísindin skuli vera farin að taka rollingana alvarlega — eða hvort manni bæri kannski að klaga þetta fyrir einhverri bamavemdarstofnuninni. Altént skil ég vel að rannsóknarfólkið vilji snúa sér að hópi sem veitir heiðarleg svör. Það er tilbreyting í því. Látum það iiggja milli hluta — í norðanverðum Heilagaskógi vestur í Kalifomíu tók rannsóknarfólk upp á því að spyrja flögurra til sex ára böm hvort þeim þætti nú heldur vænna um pabba sinn eða sjónvarpstækið. Og 44 hundraðshlutar (ekki prósentustig) aðspurðra í „marktæku úrtaki viðkomandi þjóðfélagshóps" — eins og þessir leikfélagar vísindafólksins væntanlega heita á fræðimáli — sögðu hátt og snjallt að þeim væri sjónvarpstækið öllu kærara. Nú væri kannski ráð að kanna það sérstaklega hversu margir af foreldmm hinna 56 hundraðshlutanna, þeirra sem kusu föðurinn, hafi verið nærstaddir þegar böm- in vom spurð. Þó fímm- og sexámnum væri rétt alveg trúandi til að smjaðra svikalaust þó enginn föðursvipur eða móðuraugnaráð væri þar nálægt að minna þau á það að svara nú rétt. Ótmfluð svör baraanna hefðu vissulega átt að gefa sjónvarpstækinu miklu fleiri atkvæði en þetta. Samanber orðtak breska Lordsins víðfræga, en sagan segir að hann væri spurður að því hvort honum þætti nú betra jólahaldið eða ástaleikurinn. Honum þótti jólahaldið betra af því það væri oftar. Því sjá: Samkvæmt þessari sömu könnun eyða bandarískir krakkar á forskólaaldri meira en þriðjungi dagsins framan við skerminn. Hvað skyldu nú margir útivinnandi feður geta ejrtt svo mikl- um tíma með afkvæmum sínum? Og þó svo væri — þá eyða bömin, síglápandi á sjónvarpið, alls ekki þeim tíma í foreldra sína. Og — hvaða faðir ætli kunni helminginn af þeim ævintýmm sem imbakassinn hefur að bjóða? (Skynsemi barnanna er óspillt svo þau líta á hvað eina sem kemur í sjónvarpið sem ævintýri, fréttimar líka og fræðsluefnið). Ekki má heldur gleyma því að börnin em vön sjónvarpinu frá fæðingu og líta á sjónvarpstæki sem engu lítilsverðari „uppeldisaðila" en móður sína, svo ekki sé nú talað um föðurinn. Kassinn er ekki barasta langskemmtilegasti Qölskyldumeðlimur- inn heldur líka sá þolinmóðasti og meðfærilegasti. Foreldrar snúast þó öðm hvom til varnar. Mörg af þessum krílum hafa líka haft vit á því að svara: „Sjónvarpstækið" í samræmi við þá góðu reglu að „þegar hálfviti spyr má heimskan svara“ því ekkert "cr nú vitlausara en þetta: „Hvort þykir þér nú vænna um ...“ sem fullorðnir era síspyijandi bömin. Þau klámstu hafa náttúrlega kosið föðurinn af því þau skilja orðið samhengið á milli uppalanda og peninganna hans sem kaupa má sjónvarpstæki fyrir, ellegar þá hitt að sumir feður geta líka gert við bilað sjónvarpstæki. Böm em líka mannleg og fela hugsanir sínar. Þau láta gjarnan í það skína að þeim finnist alveg sérlega vænt um pabba, enda fá þau nú svo margt frá honum. Með tímanum lærist þeim að þegja kurteislega um þessar tilfinningar sínar, alveg þangað til að því kemur að heimta uppihaldið sitt af honum ellegar þá — eins og nýlega henti í Bandaríkjunum — að krefja hann um skaðabætur fyrir ófullnægj- andi undirbúning manns undir lifsbaráttuna. Fyrir rétti. Þá em tilfinningarnar ekki lengur í spilinu, bara peningar. Gott til þess að vita að vér feður skulum þræla undir börnunum og sjá þeim fyrir öllu, annars hefðum við litla von til að vinna kapphlaupið við sjónvarpstækin um ást þeirra. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. OKTÓBER 1986 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.