Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1987, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1987, Blaðsíða 14
Hjónin í Stóra Nýjabæ: Kristín Bjamadóttir og Guðmundur Jónsson. GUÐLEIF GUÐMUNDSDÓTTIR Afbrýði / lausu lofti hangandi móðukennd efasemd. Línudansandi hugsanir og trúðurinn hiæjandi. Hreint andlitið megnar að sýna sálina og dýpstu hvöt þá trúðurinn leikur sér. Að baki grímu sorglegu augun. Suður með sjó Höfundur er einstæö móðir í Reykjavík. Fjölskyldan í Stóra-Nýjabæ Endurbirt vegna þess að við birtingu í síðasta jólablaði urðu þau mistök að niðurlagið vantaði á greinina. Stytzta og fljótfamasta leiðin til Krýsuvíkur, að minnsta kosti fyrir þá, sem á höfuð- borgarsvæðinu búa, er að aka til Hafnarfjarðar, suður og niður Hvaleyrarholtið og beygja við fyrstu vegamót til vinstri, halda síðan þvert yfir Kapellu- hraun, þar til að Snókalöndum kemur. Aka þá til hægri og halda ferðinni áfram upp í Vatnsskarð og enn áfram eins og leið ligg- ur meðfram Kleifarvatni, allt þar til kemur að Krýsuvík. En hún er, eins og mörgum er kunnugt, höfuðból Kiýsuvíkursóknar, en fór í eyði uppúr síðustu aldamótum. Um það bil 10—15 mínútna ganga var frá höfuð- bólinu í norðausturátt til Stóra-Nýjabæjar, sem nú er því miður hruninn. Bærinn stóð undir samnefndu fjalli (Bæjarfelli) stuttan spöl frá Krýsuvíkurkirkju. Um það bil 10 til 15 mínútna gangur var frá höfuðbólinu til Stóra-Nýjabæjar, sem var austan við Lambafell á Austurengjum. Stóri-Nýibær er þekktastur fyrir að ábúend- umir Guðmundur Jónsson frá Hlíð í Selvogi og kona hans, Kristín Bjamadóttir frá Herdísarvík, bjuggu þar myndarbúi og héldu lengst út við búskapinn allra þeirra, sem í Krýsuvíkursókn bjuggu. Þess ber að geta, að Guðmundur Jónsson frá Selvogi missti föður sinn, þegar hann var á fermingaraldri, með sviplegum hætti. En faðir hans féll niður um ís á Hlíðarvatni og drukknaði. Mikill harmur hefur það verið syninum. Og varð hann að taka að sér for- sjá heimilisins strax eftir fermingu. En sú þolraun, sem föðurmissirinn hlýtur að hafa orðið syninum unga, mun óefað hafa mótað hann og hert, enda var Guðmundur alla tíð mikill búforkur, jafnhliða því að vera af- bragðs formaður á vetrarvertíðum um áratugi. Næsti bær við Hlíð í Selvogi, var Herdís- arvík. Það gat því varla hjá því farið, að þau Kristín frá Herdísarvík og Guðmundur frá Hlíð kynntust. Tókust með þeim ástir þegar á unglingsámm. Og vom þau gefín saman í hjónaband í Krýsuvíkurkirkju af séra Eggert Sigfússyni á Vogsósum, þann 8. september 1895. Hún 18, en hann 29 ára að aldri. Eins og fram hefur komið, var Guðmund- ur í Stóra-Nýjabæ afburða búforkur og jafnhliða því mikill formaður. Gerði út bát frá Herdísarvík ámm saman í félagi við Símon á Bjamastöðum í Ölfusi og var enn- fremur formaður í Grindavík í þijár eða §órar vertíðir fyrir Júlíus Einarsson, ættað- an þaðan. Undirritaður ræddi við þau Nýjabæjar- systkini, Hrafnhildi Guðmundsdóttur og Sigurð Guðmundsson. Þau vom sammála um, að ekki hefði verið einmanalegt á heim- ili þeirra í Nýjabæ. Alltaf nóg að gera, segir Sigurður. Auðvitað gat það verið erfitt á stundum, t.d. var um fímm kflómetra gang- ur niður að Krýsuvíkurbergi og þangað þurfti oft að fara til fugla- og eggjatöku frá heimili okkar og austur að Herdísarvík var vegalengdin um það bil 10 kflómetrar. Og sama var að segja um leiðina vestur að ísólfsskála, svo til jafn löng. Þessi nefndu býli vom næstu nábúar okkar og oft heimsótt, þegar vel stóð á og veður hamlaði ekki, segir Sigurður að lok- um. Það vom Nýjabæjarhjónin, frú Kristín Bjamadóttir, heimasætan frá Herdísarvík og Guðmundur Jónsson frá Hlíð í Selvogi, sem lengst héldu út. Þau hófu búskap að Stóra-Nýjabæ í Krýsuvík árið 1893 og fluttu þaðan alfarin 1933 til Hafnarfjarðar og bjuggu á Jófríðarstöðum 8B, allt til æviloka. Þegar á það er litið að Nýjabæjarhjónin þraukuðu lengst af við búskapinn í Krýsuvíkursókn, á erfiðleikaámm eftir fyrri heimsstyijöldina, þá lýsir það skapgerð þeirra og dugnaði. í viðtali, sem Ámi Óla átti við Guðmund árið 1932 segir svo: „Hlunnindi em lítil, tijáreki er þó nokkur og eggja- og fugla- tekja í Krýsuvíkurbjargi, en síga verður eftir hveiju eggi og hveijum fugli. í Gest- staðavatni, sem er þar uppi í heiðinni, er dálítil silungsveiði. Var silungur fluttur þangað fyrir mörgum ámm, að ráði Bjama Sæmundssonar, og hefur hann þrifíst þar vel. Það hefði einhvemtíma verið kallað gott bú hjá bóndanum í Nýjabæ: 3 kýr, 14 hross og rúmlega 400 fjár framgengið. En hvað er gott bú nú? Ég hefí reynt að halda í horfínu, segir Guðmundur, og búið hefur ekki gengið sam- an. En nú er svo komið, að það er einskis virði, nema það sem fæst af því til heimilis- ins. í haust sem leið fékk ég 200 krónur fyrir jafnmargar kindur og lögðu sig á 1100 krónur á stríðsámnum. UU og gæmr telur maður ekki Iengur.. Fyrir 10 punda sauða- gæm fékk égt.d. kr. 1,50 í haust sem leið.“ Það var kreppan, sem skapaðist í heimin- um eftir fyrri heimsstyijöldina, sem svarf að Nýjabæjarheimilinu, eins og fleimm. En Guðmundur í Nýjabæ var ekki á þeirri reim- inni að gefast upp, eða að óska eftir aðstoð. Ekki sótti hann um lán úr Kreppulánasjóði, og enga aðstoð þáði hann vegna ómegðar. Þau Nýjabæjarhjónin komu öllum sínum sautján bömum vel til manns. Og öll urðu þau myndar- og dugnaðarfólk. Það verður að teljast þrekvirki. Sautján afkomendur og allt dugnaðarfólk. Það er hvorki meira né minna en ein til tvær skipshafnir. Hve mikils virði er það þjóðfélaginu, þegar að hjón frá afskekktu byggðarlagi skila slíku ævistarfí? ÓLAFUR E. EINARSSON ÓMAR SIGURÐSSON Æ I hverju skrefi Þau eru einkennilega löng skrefin á milli herbergja fortíðar og framtíðar. Sú hugsun sem fæðist þegar þessi skref eru tekin er ekki hetjuleg. Nær værí að snúa við meðan tími er til og reyna að hlaupa inn í fortíðina til hins þekkta. En löngunin í hið óþekkta er sterk svo þú heldur áfram þrammi þínu milli herbergja. Skyndilega kemur lítið bam á móti þér. Þú hrekkur við þegar þú sérð barnið breytast; stækka, eldast í hveiju skrefi sem það færist nær þér. Og þegar þið mætist þá horfið þið eitt andartak í augu hvors annars. Þú sérð ekkert annað en andlit gamals manns með óttann þinn í augum sínum. Höfundurinn er þritugur húsasmiöur i Reykjavík. BRAGI ÓLAFSSON Danskvæði Nú þegar amma er hætt að borða meðulin sín og farin að stíga dans — gömlum hljóðum sporum — við ímyndað fólk inni í stofu, rennur upp fyrír mér að skyggnigáfa hefur alltaf fylgt ættinni, og mun alltaf gera á meðan ímyndað fólk stígur dans við ömmu inni í stofu. Höfundurinn er ungur maöur og býr á Seltjarn- arnesi. Hann hefur nýlega gefiö út fyrstu Ijóðabók sina, Dragsúg.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.