Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1987, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1987, Blaðsíða 2
TO M STU N DAGAMAN Smásaga eftir Max von der Griin Mynd Bragi Ásgeirsson Enn einu sinni starði Ger- hard Zieser á kassana fullur lotningar og dáðist að safninu sínu. Það sótti á hann á þriðjudögum og laugardögum að telja í kössunum til að ganga úr skugga um, að allt væri á sínum stað. Að svo búnu bar hann niðurstöður sínar saman við skrámar, sem hann hafði sjálfur útbúið og jók við í hverri viku. Grunnir og mjóir kassar, sem húsgagna- smiður hafði sérsmíðað, voru með læstu renniloki og stóðu á gólfmottum í kringum rúmin í svefnherberginu. Kassamir vom níu talsins og munsturmálaðir eins og um kákasískan hnetuvið væri að ræða. Gerhard Zieser var stoltur af kössunum, sem tóku sig svo vel út, þegar þeir vom læstir. Sá sem ekki vissi um innihald þeirra gat ímyndað sér að í þeim væri steinasafn eða skartgripir, handrit, teikningar eða hver veit hvað, altént eitthvað sem væri mikils virði fyrir safnara. En í kössunum vom tennur. Stundum þegar Zieser var önnum kafinn við að skoða tennumar rauk hann á fætur og leit niður á götuna út um svefnherbergis- gluggann. Því næst hlustaði hann eftir þmski í húsinu, kíkti niður stigaganginn og hljóp inn á baðherbergið. Þaðan horfði hann niður í garðinn og yfir byggðina að Haar- strang, en hann sá aðeins skakkan tuminn á mótmælendakirkjunni í Kamer. „Bölvuð turnspíran," sagði hann þá. Gerhard Zieser lagði ríka áherslu á ná- kvæma aðgreiningu einstakra tanna; fyrir honum vom tennur ekki bara tennur til að bíta og gnísta, bijóta og láta draga úr — tennur vom honum heimspekilegt fyrir- bæri, heimildir um þjóðfélagið. Hann átti kassa, sem vora fullir af fram- tönnum og kassa fullan af jöxlum úr efri og neðri góm, jöxlum sem höfðu tvær og þijár rætur, en uppáhaldsdýrgripimir hans vom augntennumar. Hann var stoltur af þessum tönnum. Að eigin sögn átti Zieser stærsta tanna- safti í Þýskalandi, trúlega í allri Evrópu. Hinsvegar hélt hann því fram gagnvart konu sinni, að reyndar ættu háskólamir ekki stærri söfn af skemmdum tönnum, en þó væri hans safn aðeins það stærsta í Norðurrínarhéraði. „Ég ætla að gera það að stærsta tannasafni í Þýskalandi, sagði hann stundum við hana, og komandi kyn- slóðir munu verða mér þakklátar, þó margir haldi nú að ég sé galinn." Bestu eintökin sín handlék hann aðeins íklæddur hönskum eða tók þau upp úr fóðr- uðum kössunum með frímerkjatöng, sem var vafín bómull, það vom tennur bmnnar af tannskemmdum, svörtum holum, gular, viðbjóðslega gular einsog fúl eggjarauða. Zieser hreifst ekki af hvaða tönn sem var, honum þótti lítill fengur í viðgerðum tönn- um, sem höfðu verið dregnar úr fólki. Áhugi hans var fyrst og fremst bundinn við tenn- ur, sem vom orðnar svo skemmdar, að tannlæknar áttu þess engan kost að bjarga þeim. Þá fyrst vom þær gjaldgengar í safn- ið hans. Og aldrei átti hann fleiri en tvær tennur sem höfðu sömu sjúkdómseinkennin. Hann var sérstaklega á höttunum eftir tönnum, sem vom svartar í rótina vegna bólgu í tannholdinu, og þær grannskoðaði hann oft í gegnum stækkunargler og smellti í góm af ánægju um leið og hann muldr- aði: „Það er aldeilis, þvflíkur dýrgripur. Það eignast enginn svona dýrgrip, ég verð öfund- aður af honum." Gerhard Zieser varði öllum frístundum sínum í söfnun tannanna, flokkun þeirra og umhirðu. Hann fór um borgina á hjólinu sínu, sem var svo vel útbúið af undmm tækninnar, að allir drengir öfunduðu hann af því. Hann vissi um allar tannlæknastofur í Dortmund og nágrenni og það mátti sjá til ferða hans í Hamm og Miinster, Schwerte og Iserlohn og Hagen. Þar laumaðist hann í bakgarða og kjallara til að leita að tönnum í mslatunnum tannlæknanna, rétt eins og soltinn hundur gramsar eftir beini. Hann leitaði líka í mslinu, sem hafði verið sett út á gangstéttina í augsýn vegfarenda sem horfðu á hann með undmn og viðbjóði. Zies- er kom sjaldnast ánægður heim úr þessum ránsferðum sínum, með plastpokann fullan af tönnum af öllum gerðum og höldnum hvers konar sjúkdómstilfellum. Heima hjá sér í kjallaranum notaði hann sterkan lampa til að athuga, hvort þær kæmu honum að einhveiju gagni. Átti hann þegar betra eða skemmdara eintak sömu gerðar í safninu? Hann var sjálfum sér samkvæmur; honum fannst skemmdari tönn betri og henni hélt hann en hinum henti hann án minnstu eftir- sjár. Oft fór hann erindisleysu til Hagen, Miinster eða Hamm. Það var dregið of lítið af ónýtum tönnum úr fólki. Með því að skoða tennurnar, sem hann náði úr mslatunnum tannlæknanna í Unna, reiknaði hann út viðskiptaveltuna hjá þeim og þó hann skorti sannanir frá skattstof- unni í Hagen, var hann sannfærður um að hann reiknaði alltaf rétt. Gerhard Zieser var stoltur af tönnunum sínum, af skemmdunum, af bmnnum og holóttum tönnunum. Hann mældi holurnar í tönnunum með sérsmíðuðum blýmæli og blýmóti, sem gerði honum kleift að mæla rúmmál þeirra uppá einn tíunda hluta úr millimetra. Hann giskaði á eða reiknaði út sjúkleika tannanna, orsakir fyrir tann- skemmdunum og hann ímyndaði sér þróun skemmdarinnar í hverri tönn. Niðursokkinn sat hann fyrir framan kassana sína — ætti hann engar tennur til að flokka, nægði hon- um að horfa á þær — og hann varð glaður eins og bam ef hann kom höndum yfir sjald- gæft eintak eftir margra vikna leit. Teldi hann það nógu gott til að taka það inn í hið einstæða safn sitt, bætti hann því líka þegar í stað í skrámar sínar. Hann neri saman höndunum af ánægju, dáðist að gripnum og óskaði sjálfum sér til hamingju með heppnina. „Ég er nú aldeilis lukkunnar pamfíll." „Hvílík dýrðarinnar skemmd!" hrópaði hann stundum, „hvflík dýrðarinnar hola! Þessi svarti blettur er dásamlegur! Ó, þessi kengbogna rót!“ Þá sökk Zieser algerlega á kaf í þann heim, sem hann hafði skapað sér og heyrði hvorki né sá, hvað fram fór í kringum hann. Stundum þegar hann skipti um umbúnaðinn á tönnunum — og hann skipti oft um til þess að skemmdar tennurn- ar skemmdust ekki — þá brá hann stækkun- arglerinu sem snöggvast yfir tönnina í frímerkjatönginni og hrópaði: „Stórkost- legt!“ Á meðan sperrti hann eymn, hann greindi smellinn í útidyrahurðinni, þaut upp og í miklu óðagoti iokaði hann kössunum og ýtti þeim undir rúmin. Hann hljóp inn á baðherbergið og þvoði sér um hendumar. Fáeinum mínútum síðar, þegar hann kom inn í eldhúsið, var konan hans farin að laga kvöldmatinn. „Þú kemur snemma heim í dag,“ sagði hann og leit tortrygginn í kringum sig í eldhúsinu og rannsakaði svip konu sinnar óttasleginn. „Já, ekki ber á öðm,“ svaraði hún. „Það tók ungur maður mig upp í bílinn sinn.“ „Hvað segirðu? Ertu loksins búin að finna einhvem sem tekur þig með.“ „Já, ungan mann, þú þekkir hann líka. Hann heitir Koller. Hann býr tveim götum neðanvið okkur." „Koller? Kol... ler? Ef til viil, ég er ekki alveg viss. Heyrðu, er hann með heilar tenn- ur?“ „Já, skínandi tennur." „Ósviknar?“ „Þó það nú væri. Ósviknari en ósviknar," sagði hún og hló lágt. „Það var leitt," tautaði hann. Það leit út fýrir að Gerhard Zieser hefði misst áhugann á þessum unga manni, sem hann þekkti ef til vill, en vissi ekki hver var, þegar hann heyrði að tennur hans væm heilar og ósvikn- ar. Hann sötraði súpuna, konunni stóð á sama um það, hún sat hljóð og borðaði ró- lega og þegar hún færði skeiðina upp að munninum, horfði hún út um gluggann á háa reykháfinn á móti og þakrennuna á Vélaverksmiðju Mayers-erfingjanna. Þak- rennan hafði lekið ámm saman og þegar rigndi, seytlaði regnvatnið sífellt niður á tröppurnar og ofan í garðinn, espandi og róandi í senn. „Ferðu burt á laugardaginn?" spurði hún. „Já, til Hamm. Það er nýr tannlæknir sestur þar að. Það er alltaf mest að fá hjá þeim í byijun. Allir hugleysingjarnir fara til nýju tannlæknanna, halda að þessir nýút- skrifuðu séu þeir fæmstu, sem valda minnstum sársauka." „Það kann vel að vera,“ sagði hún. „Er þér ekki sama, þó herra Koller taki mig með í vinnuna á morgnana, nái í mig á skrifstof- una og aki mér heim á kvöldin?" „Mér sama? Því skyldi mér ekki vera sama?“ „Æ, ég spurði bara.“ „Þarftu að borga honum eitthvað fyrir?“ „Nei, það held ég ekki. Hann hefiir ekk- ert minnst á það. Eg býð honum náttúrlega borgun, en hann kemur ekki til með að taka við henni.“ „Þá er það í lagi. Við hvað vinnur maður- inn eiginlega, úr því hann getur leyft sér að eiga bfl?“ „Hann á bara lítinn fólksvagn. Hann vinn- ur við stýritöflu í stórverksmiðju norður af Dortmund." „Spyrðu hann á morgun, hvað hann geri í raun og vera. Spyrðu hann til hvaða tann- læknis hann fari, spyrðu hann og gleymdu því ekki.“ „Ég skal spyija hann, en ekki á morgun?“ „Ekki á morgun? Nei, það er líklega rétt- ast. Bíddu með það í nokkra daga. Við ættum ef til vill að bjóða herra Koller heim einhvem tíma, ég gæti sýnt honum safnið mitt...“ „Nei! Gerhard, nei!“ „Allt í lagi. Slappaðu af. Það er heldur ekki ætlað almenningi, safnið mitt er alltof gott fyrir almenning, alltof gott. Ef við eign- umst einhvem tíma böm, sem kunna að meta þvílíkt safn, ætla ég að arfleiða þau að því.“ „Já, Gerhard, það er ábyggilega best. Og það er að minnsta kosti stórkostlega leyndardómsfullt. Það vita allir að þú átt stórt safn, en enginn hefur ennþá séð það.“ „Já,“ sagði hann æstur, „þar hefur þú á réttu að standa. Leyndardómsfullt, það er rétta orðið. Allir brenna í skinninu að sjá safnið mitt, en ég sýni það ekki, ekki þó öll heimsins auðæfi væm í boði.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.