Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1987, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1987, Blaðsíða 11
Sagan af Arna ljúflingi yngra - UTANVELTUMANNI í ÍSLENZKU 19. ALDAR SAMFÉLAGI - EFTIR JÓN ESPÓLÍN KYNNING EFTIR ÞORSTEIN ANTONSSON Til er í handriti skáldsaga eftirJón Espólín sagnritara (1769—1836), rituð á ámnum 1834—36, forvitnilegt uppgjörþessa afkastamikla rithöfundar viðsamtíðina á síðustu æviár- um hans. Jón hafði ekki lokið við bókina er hann féll frá en var langt kominn meðhanaog væri vel við hæfi aðgefa hana út þótt ekki væri fyrir listræna verðleika hennar, sem eru litlir, heldur fyrir sögulegt gildi. Hugsunarhætti fólks á mörgum þjóðfélagsstigum er ágæt- lega lýst, stílIJóns Espólíns ersvipdrátturíslenskrarþjóðarsögu, sem ekki er vertaðhorfa fram hjá, og saga þessi afÁmn Ijúflingi yngra er önnur kunn tilraun íslendings á síðari . öldum til að rita skáldsögu, sem talist geturhafa náðþví markmiði, fyrstur varEiríkur Laxdal (1743—1816). Stuttur kafli hefur verið birtur úr Sögunni afÁma Ijúflingiyngra í fræðiriti, annars virðist hún ekkihafa orðið mönnum kunn lesning fremur en aðrar tilraun- ir manna af þessu tagi fyrir ritunartíð Pilts og stúlku Jóns Thoroddsens, sú saga var skrifuð 1848— 49 ogkom út ári síðar. Hvemigskyldi Áma Ijúflingi reiða af í bókaflóði? Líklega ekki vel. Jón Espólín sýslumaður var talsvert ábúðarmikill höfundur, siðferðilegar umvandanirstóðu þessu strangayfírvaldi ekkifjarri, lesandi skáldsögunnarþarf að yfírvinna uggeða am.k. tortryggni ífyrstu; fær reyndarafþvi tilefhi snemma hluttekningu með aðalpersónunni, Áma Ijúflingi, fíækingi, sem leggur upp íhringferð um landið, ogkemst langleiðina í sögunni; Ami hlerar eftir samtölum manna hvarsem hann kemur ogskrifarþau niðurhjá sérítómi, stundum á milli bæja, en hefur víst ekki uppburði til að leggja neitt til samræðnanna sjálfur. Sagan er afar einföld að byggingu, aðaleinkenni hennar er samtöl tveggja; Ámi hinn óvirki vitundar- vottur, sem höfundar raunsæisskáldsagna ogfylgismenn þeirrar stefnu áttu helduren ekki eftir að taka íkarphúsið. Sagan verður kynnt meðþessari samantekt og fyrstgripið niður í upphaf hennar. Flakk var bannað með lögum íHúsagatilskipun um miðja 18. öld: Ami fór sinna ferða, stund- um milli bæja, og í baðstofur, hvar hann þó oftast sat úti í homi, og talaði fátt, ellegar í skoti, og stóð þar svo og svo lengi, en stundum út um hóla og auðnir, þá menn vissu ekki gjörla hvað hann var að sýsla, og var hann þess vegna af sumum kallaður Ámi ljúflingur, það nafn höfðu menn í 14. og 15. öld, og svo síðan, gefíð álfafólki, sem sumir ætluðu byggi í steinum og hólum, og munu hafa dregið það af hýrlyndi þess, að sinni meiningu, en nú var það orðið að viðundurs nafni, en þó til í mál- inu enn; köllum vér hann nú síðan til aðgrein- ingar frá öðram Ama ljúfling er lifði í miðri 18. öld og fékk það nafn af umgengni sinni við álfafólk, Áma yngra ljúfling. Dvaldist hon- um á austurlandinu sitt áðurgreinda ferðalag, til tvítugsaldurs, án hrekkjapara. IJPPHAF LEEÐANGURSFERÐA Á íslandi er ekki mikið yndæli náttúrannar; ver megum því sjaldan vænta að heyra vom viðundurs riddara ferðast um grænblómgaða völlu, yndislega dali, fögur skógarrjóður, hvar næturgalans söngur gæti töfrað hann, með hægt rennandi blómgirtum lækjum, eður koma að háum staða sortum, já, allsjaldan ríðandi, nema ef hann kann að fá einhversstaðar láns- meri, þegar hann nennir ekki að ganga, eða er orðinn skólaus, sem þó mun torsótt, þar hann hefir ekkert fyrir að gefa, þess vegna getum vér ekki sagt frá öðru sem fyrir hann hafi komið á hans leið, en mýrasundum, þúftia- reitum, einstöku bala í milli, sandgígum, illfærum þverám í klettagljúfram, grýttum stígum, hraunum, klettum og þessháttar. Líka stundum að honum hafi mætt hrafhar, og ein- stöku sinnum álftir á flugi, en nóg hundgá þegar hann kom á bæi, eður fór af stað. Og er nóg að telja þetta upp í eitt skipti fyrir öll, svo lengi sem ekki er að geta neinnar sérlegr- ar torfæra, er venju framar gat angrað hann. Nóg að minnast hér á (þetta) áður en að því kom að hann framfylgdi sínu merkilega hug- boði, að sjá sig víðar um en á austurhomi landsins einu saman, hvar við hann hafði sjálfs sín ráð en einskis annars. Á næsta bæ við Hof í Vopnafírði, hvar hann dvaldi eitt sinn nætur- sakir, á vetri, var greiðasamt fólk, sem gaf honum væn leðurskæði, og stafþrik með broddi í — tók nú vor kappi sér göngu á hendur og heitstrengdi með sjálfum sér að ganga í kring- um allt Island, hvað sem á bak kæmi. Hann kvaddi fólkið um morguninn sem hann hafði gist að, og fór, að ég trúi, yfir um ána í þeirri von að leita til síns faaðingarstaðar, fyrsta. Hvar hann nú fór eða ekki, kom hann að Refsstað um kvöld eftir dagsetur, guðaði, sem kallað er, á gluggann, og bað lofa sér að vera, fékk hann það, var lokið upp og hann látinn setja sig inn á pallinn, var þá tekin til að lengj- ast vaka. Prestur sá þar var fyrir ráðandi, sem ég vil kalla séra J., var hýsingagjam, og vora tveir komnir fyrir, þó sinn hvers háttar, annar hreppsijóri úr Þingeyjarsýslu, Guðmundur að nafíii, en hinn flökkudrengur þar innlendur, sá hét Bjami. Kallaði prestur á hreppstjórann inn í bað- stofuhús um það leyti Ámi kom, og talaði þar við hann um stund. Læddist þá Ámi að dyrun- um, og var í hug að komast á njósn um hvað þeir ræddu, þó svo hægt að ei yrði eftir tekið. Eitt sinn í samtalinu bar þá svo til, að hrepp- stjóranum varð litið fram til þilsins, sá hann á því mjótt nafargat, og horfði fram í gegnum það, þá varð hann vís að drengur sat þétt við dymar, og lét ei á bera; enn sem hann gekk fram, leit hann til hins sama, sem enn þá sat kyrr, og merkti hver vera mundu, þvi hann hafði séð hann áður; hann settist þá á rúm frammi, en presturinn kom litlu síðar fram úr húsinu og gekk um gólf á pallinum, eða gólf- inu; tók þá hreppsfjórinn Guðmundur til orða, og varð maður til að ansa honum sem eftir fylgir- VÍSDÓMUR ÁRNA JAFNINGJA Hreppstjóri G: Ég trúi ég hafí komist í for- þenkingu, prestur góður, fyrir það ég talaði við yður einslega áðan, eða að minnsta kosti forþenkir sá annan hvorn okkar, sem hlerar eftir hvað við tölum. Er það annars siður á yðar heimili, ef einhver talar við yður eins- lega, að svo sé gjört? Pr: Ekki gjörir mitt heimafólk það. Hrst: Það var heldur enginn af því, en þess- ir flökkudrengir hafa ei annað að gjöra, það er líka forsjálegt af þeim, þeir geta máské innunnið sér þess heldur næturgreiða á næsta bæ, með nýjum fréttum sem þeir hafa numið. Presturinn gaf þessu litla vakt, gekk inn í hús sitt, og Ámi vor sat þegjandi eins og físk- ur, en drengurinn Bjami, sem hafði orð fyrir að vera málgefinn, tók þetta að sér, og svar- aði, — Ég held yður komi það ekki við, Guðmundur góður, hvort ég fer um sveitina eða ekki, eða hver lofar mér að vera, og hefi ég ekki troðið marga um tær í hreppnum yðar. Hrst: Ég talaði nú ekki svo eiginlega til þín, en fyrst þú tekur það að þér, þykir mér vel þó þú eigir sneiðina, og þar ég þekki þig ekki veit ég ekki nema betur væri gjört fyrir mig, að áminna þig nokkuð, ef ég gæti, með- an ég kann ekki enn þá að segja, né vil til þess tilgeta, að þú sért svo heimskur, að. mál tæki eigi heima hjá þér; að illt sé að snolra, því framgimi orsakast oft af illu uppeldi og athugaleysi, sem lagast getur hjá þeim sem ekki era hrekkvísir, með skynsamlegum for- tölum. En svo ég standi við orð mín, þá vil ég það enn segja, að því er verr og miður, að þeir era allt of margir, nú um stundir, sem strax í æskunni era einráðugir, sjálfbirgir og óhlýðnir, svo enginn getur um þá tætt, fara síðan á flæking, læra að hnýsa og slaðra, og þar næst að Ijúga og stela, en ekkert að vinna, og með því móti fyllist land vort í ónytjungum og skaðræðismönnum. Get ég ekki þó kennt þetta þessum ónytjungum sjálfum einungis, því meðan þeir era ungir, eða milli vita, sem menn segja, og jafnvel þó fullorðnir séu, að áram, því þeir era samt óvitar og böm, eiga aðrir að hafa vit og ráð fyrir þeim, og líða þeim ei allan ósóma. En það hefur lengi fylgt mönnum, og ekki síst okkur íslendingum, að vilja bæði vera agalausir sjálfir, og leiða hjá okkur að aga ungdóminn, hvað lítil heldni sem finnst hjá einhveijum venju framar í sinninu, helst ef ekki era okkar eigin böm, því sumir iáta sér þeirra velferð ganga nokkuð nær en sveitabamanna. Og af þessum líðunarsama þenkingarhætti í tilliti til agans, sprettur önnur dygðinn, sem er að gjöra öllum jafnt til, með hýsingar og veitingar hvemin sem þeir haga sér, sem ég þori að segja að bæði er þvert á móti guðs orði, og konungsins lögum. B: Já, já, ég á prísa hvað tillagagóður þér erað við aumingjana, Guðmundur minn! Og verði ég einhversstaðar að því spurður, get ég ekki annað sagt en satt er, ég skal líka gjöra það, því það er eins vert að segja frá illum tillögum þeirra sem þær láta af sér leiða, sem góðgjörðum hinna, — sérdeilis þegar þeim sem útleggja til kemur það ekkert við, sem þeir sletta sér fram í. Hrst: Ég hugsaði öllum kæmi við að tala sannleikann, ef þeir era þess kvaddir, og líka oft þar fyrir utan; en hvað oft ég má gjöra það ótilkvaddur, er ekki þitt að dæma, og raunar einskis annars enn minnar eigin sam- visku, sem býður mér að tala eður þegja um hann eftir eigin þörf, og hvar enginn á dóm á nema hún, og enginn má neyða mig að víkja frá hennar ályktan; en hvað þú sagðir, að þú mundir geta um tillögur mínar við aumingja, sem þú kallar þig og þína líka þá banna ég þér það ekki, mundi líka það forboð til lítils koma, enda ætla ég ekki að feta í þeirra, — því miður! of mörgu fótspor, sem byggja virð- ingu sína á kjaftalofi húsganga; hvert allt of almenna ranga álit er kiöftug fram æsing laus- gangaraskapar, og allrar þeirrar miskunnar sem heitir skálkaskjól; er aldrei að búast við að óskipun og óþörfu flakki og annarri var- mennsku létti af landi vora, fyrr en menn læra nokkuð almennt, að aðgreina sanna virð- ingu frá falskri, og sannar velgjörðir frá útorsakandi og rangt kölluðum velgjörðum, og þetta skeður ekki fyrr en alþýða lærir að þekkja að gagni fleiri dygðir en eintóma vals- lausa gestrisni. — Annars þurftir þú ekki til mín að víkja, að ég hefði neitt illt til þín lagt LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. JANÚAR 1987 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.