Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1987, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1987, Blaðsíða 13
ég bið forláts, læknaramir hafa verið settir svo maigir af því sjúkdómamir fjölguðu, ætiaði ég að segja, L; Hvað þér hafið ætlað að segja, kann vera sama; það getur skeð að sjúkdómamir séu fleiri en fyrrum. P: Ætli það sé ekki læknurunum að kenna? L: Svo ég taki þó orð yðar upp í bestu meiningu, ætla ég að samsinna þessari spum- ingu; fólk leitar nefnilega meira læknaranna, og telur sér fleira til veiki, síðan það átti kost á þeim; en það kann líka að vera að fólkið gjöri sér fleiri sjúkdóma með iðjuleysi og svalli en fyrrum. P: Satt að segja, sjúkdómamir em fleiri en voru, og held ég það komi til af afturför nátt- úmnnar. L: Afturför náttúmnnar? P: Já, ég er nú sextugur, og hefir mér mik- ið aftur farið síðan ég var fertugur, hví mun ei eins landinu og fólkinu í því, og öllu mann- kyni, fara aftur, og hnigna kraftar, eftir því sem heimurinn verður eldri? (—) Af samtali um prestastéttina heyrir hann að helstur kostur prests er að hann óttist guð og samviskuna meira en menn og manna álit; hann hlýðir á samræðu um draumspeki og móðir uppfræðir dóttur sína um allt milli him- ins og jaiðar og allt er það kerlingabækur: Dóttir: Hvað þýðir, móðir mín, í bamakvæð- inu „Dillidó og Dumma?" Kerling. Það er huggun við böm og þýðir að þeir em dauðir hann Dillidó og hann Dumma, það vom stríðsmenn Herodos kon- ungs sem hann sendi út að drepa bömin, skelfilega grimmir." (—) Ekki er skáldsaga sýslumannsins Jóns Espólíns öll rituð í jafn alvörugefnum tón eins og sjá má af þessari síðustu tilvitnun og af því sem hér fer á cftir; Ami hefúr komið víða við á hringferð sinni og er nú kominn á norður- land, hann leggur upp £rá Þingeymm í Húnavatnssýslu: Þjófaráð Þaðan fór Ami þar til hann kom að Blöndu, v;_>- hann lengi að vefjast þar áður en hann komst yfir um, hann fékk gistingu á einum bæ í Langadal, ég trúi hann neftii Æsustaði, og þó hann væri óspumll, varð hann brátt vís að þangað var von á tveimur bændasonum, neðan úr dalnum, sem vom eins og sumir fleiri, meðallagi rigtaðir, og mundu verða þar nætur- gestir vissra orsaka vegna, og látnir sofa saman. En er Ami vissi það, bað hann ei kosta sig að mat (þó var honum eitthvað gefið), en vegna sérlegrar forvitni að heyra tal þeirra, undirtal- aði hann við bóndason að láta sig í kistu, og bera hana inn að rúmi þeirra og það var gjört. Litlu síðar komu þeir, og töluðu fyrst stundar- kom við bónda fram í stofu, fóm síðan að hátta í því tiltekna rúmi, og létust sofna fljótt. En er þeir vom vissir um að allir vom sofnað- ir, fóm þeir að skrafa í hljóði. Ámi hlustaði vel eftir, en heyrði allra manna best, og nam þetta viðtal þeirra, vil ég kalla annan U. en hinn V. U: Hvaðan fékkstu peningana, lagsmaður, sem ég sá hjá þér í fyrradag? V: Það kostar nú nokkuð að segja þér, en allt er vin sínum vel segjandi. Eg vissi af skemmu hjá einum manni í Asunum, og hafði líka séð í henni kistur; hef ég haft ráð með að búa mér til lykla og komst í hirslumar, en þar var enginn gmnaður um nema Bjami gamli, sem var á ferð um sama leyti. En í hinn hið fyrra dag keypti ég fyrir það sem mér fénaðist rækalls vænan hest, sem ég ríð núna, Kavaju og púns extrakt á glasið mitt í kaupstaðnum, og þó átti ég það eftir sem þú sást. U: Hvaða skratti varstu heppinn? En ætli sé ekki meira eftir í skemmunni? V: Ekki af peningum, en mat gat ég ekki verið að dragast með. U: Mér er ekki um það heldur að skipta mér af því, en peningum vildi ég einhvers stað- ar ná ef ég gæti. Kanntu ekkert ráð til þess sem við gætum báðir af notið? V: Við skulum finna karlinn hann N. í K., og ætla ég að biðja hann að koma á eintal með mér, út undir vallaigarðinn, og út fyrir hann ef ég get, en þú skalt hafa hestinn þinn niður í brautinni, svo hann sjáist ekki, og liggja sjálfur utan undir garðinum. Við veiðum að stilla svo til að hann sé einn heima við bæinn, og á ég mér vinkonu sem lætur mig vita hve- nær þess er helst von; en sem hann er kominn í greipar okkar skulum við taka hann og hóta að drepa hann, ef hann hljóðar; láta hann síðan sveija okkur hvað mikla peninga hann á, og hvar þeir eru, og að segja aldrei frá þessu, ella skuli það gilda hans líf. En beri svo til hann segist eiga þá heima, skulum við fylgja honum heim hægt og vingjamlega, og inn og segja alltaf á leiðinni, við ætlum einasta að biðja hann að lána okkur tíu spesíur, en þá við erum inn komnir, skulum við hræða hann til að sýna okkur þá, og láta hann leysa líf sitt með að fá okkur þá alla eða mestalla; ég veit víst hann á mikla peninga. — En sjáum við ekki færi á að hitta hann einan í bænum, skulum við ei að honum ráða, og vetður þú þá að hugsa annað bragð, skaltu fá tvo part- ana ef þitt bragð tekst. U: Ég á málaðan sterkan stokk, hann skul- um við fylla upp með gijóti og forsigla, biðja síðan L. á M. að lána okkur smápeninga, ríxort og smærra, uppá sextíu spesíur, við þurfum þeirra með í bráð fyrir stærri peninga. Knýja fast á hann þar til hann kemur með þá, en stilla svo til, að við fáum ekki tíma til að taka upp úr stokknum fyrir aðkomu ann- arra. Afhenda honum hann síðan forsigiaðan, og segja áttatíu heilar spesíur séu í honum í pant En við skulum koma um tvo daga aft- ur, og telja þær sextíu út, biðja hann ei upp ljúka fyrr en við komum, vegna þess að bréf sé í stokknum sem enginn megi sjá. Ætla ég þetta takist því að hann er auðtrúa, og síðan skulum við gæta vel að, hvar hann lætur hann í stofúna, láti hann hann í ldstu, get ég feng- ið lykil að henni. Því næst skulum við koma aðra nótt, bijóta eina rúðu úr gtugganum, og opna hann svo og ná stokknum. Daginn eftir skulum við heimsækja hann, og mun hann þá „Deilu vinnukonu og húsmóður á bæ einum nemur Ami, en þorir ekki að skrá hjá sér samræðumar." Eitt sinn lét hann loka sig niðri í kistu og koma henni fyrir hjá rúmi, þar sem tveir grunsamlegir menn áttu að gista. Hann varð margs vísari um afbrot þeirra og giæpsamleg áform, en varð það á að hnerra og urðu þeir hans varir. horfinn vera, og haldinn stolinn, en við skulum láta stórilla yfír því. I þessu hnerraði Ámi í kistunni, þá mælti V: Svik eru dregin að okkur, lagsmaður. En þú í kistunni, drepa skulum við þig ef þú hrærir þig hið minnsta. Voru þeir í nærfötunum, gripu ytri klæði sín, því nótt var björt, og fóru burt; en Ami var svo hræddur að hann þoiði ekki að hræra sig, miklu síður að kalla, og sór með sjálfúm sér, að leggjast aldrei oftar í kistu, og hafa fríar fætur ef hann heyiði eitthvað. Þegar minnkaði í honum hræðslan, og hann vissi víst að þeir voru í burtu, gjörði hann svo vart við sig að einhver vaknaði, var honum þá hleypt úr kistunni, og sofnaði hann ein- hversstaðar annarsstaðar. En teiknaði viðtalið upp um morguninn og sýndi það fólkinu. Var honum þá gefin góð máltíð, og fór hann síðan af stað, og austur yfir Vatnsskaið, en þó ei fylgdarlaust. (—) Segir næst af Áma að hann hafði náttból í Langholti, „ekki fór hann lengra fyrir feil sem í honum var“. Hann nær þó að skrásetja þar samtal um lausamennsku, vinnufólki bar að fastráða sig og var reyndar maigiyndi í hvaða mynd sem það birtist litið homauga í þá tíð, einkum þó af yfirvöldum, veraldlegum, eða andlegum. Ámi Ijúflingur er augijós utanveltumaður í þessu íslenska 18. aldar samfélagi, sem hann flakkar um; hann er jafn utanviðsig meðal þjófa sem sauðtryggs almúgans, landshoma- lýðs sem embættismanna. Hins vegar sómir hann sér vel meðal þeirrar stéttar manna er allar götur frá hans tíð og til okkar hefur starf- að að því að umbylta heimsmynd hans samtíðar í naftii vísindalegs hlutleysis og orðið talsvert ágengt. Jón Espólín ritaði Söguna af Áma ljúfl- ingi yngra, sem önnur rit sín, í anda upplýs- ingastefnunnar og íhaldssemi á þjóðleg veiðmæti og leysir það vandasama verkefni að sameina þessi viðhorf, sem í fljótu bragði viiðast svo sundurleit: Ami er í senn hinn klassíski flakkari ogþó óseðjandi mannlífsskoð- ari; en yfirvaldið Es[)ólin á í erfiðleikum með að ná sáttum við svo viðundurslegan mann, í lok handritsins fer ftam svipuð umræða og í upphafí um að vinnusemi sé dyggð; umburðar- lyndi, langlundargeð veiði að eiga sér takmörk ef allt á ekki að renna út í eina allsheijar flatn- eskju. Espólín hefúr varla átt eftir að skrifa mikið af bókinni. Og honum hefur verið ljóst, er hann hófst handa við ritun hennar, að ein- hversstaðar varð að afla viðundrinu Áma ljúflingi þegnréttar, þessari manngerð, sem nú á dögum er hluti almenningsálits sem teygir sig um allar jaiðir fyrir tilstyrk fiölmiðlæ sjón- varps, útvarps, blaða. Þorvarður Hjálmarsson Leónardó í Cloux ÓLeónardó, vængir vorir vax og fiður, veröld vor vitfirring ein, vélar vorar hugarfóstur, höfuð vor full af hálmi, engin lína bein. Eilíf er hringrás andaogefnis, hringlaga erog hugsun vor, heimur tveggja handa, hugur vorgaldur, höndin töfrastafur, mistilteinn. Stjarna björt er jörðin, elur alla kvöl og von, völundarhús sem voreigin göng, tvírætt er og eðlið, andstæður dimmu og Ijóss. Vorarbænir, fagrar oghvítar myrkraverk vor, heljargrimm ogsvört meistaraverk er mannsaugað mannúð sprottin afríkiþess. Vængir vorir allir vaxogfíður, löngu flognir burt. Höfundurínn er ungur Reyk- víkingur og hefur aefiö út Ijóóabók. IngólfurJónsson frá Prestbakka .Eintal Ólafs pá i Sár er mér sonardauði sárari miklu en annað allt, sem á andvegum lífsins áður ég hefí kannað. Urð er nú akur sléttur óljós er sjónin mín. Beitt var þér Bolli sverðið blóðug er höndin þín. Bjart var brosið þitt, Kjartan, beinn og styrkur og hár varst þú sem vaxinn hlynur vinfús með hýrar brár mætti þar Mýraarfur Melkorku og Auðar sýn. Beitt var þér Bolli sverðið blóðug er höndin þín. Veist þú ég vildi, Kjartan vera í staðinn þinn horfínn með hærur gráar heyrirðu sonur minn. Vant er þó valleiðar slíkrar vart duga orðin mín. Beitt var þér Bolli sverðið blóðug er höndin þín. n Sækir að svartamyrkur, sá nokkur Ólaf pá gráta í gæfumissi, grafíð þið fyrir mig ná. Hildi ég ungur háði hvöss þótti eggin mín. Beitt var þér Bolli sverðið blóðug er höndin þín. Sæmdir, Já sonarbætur segja menn og þó, enginn og ekkert gefur aftur mér þann sem dó. Kemur þar Kjartansbani köld verða augun mín. Beitt var þér Bolli sverðið blóðug er höndin þín. Höfundurínn býr i Reykjavik og er ríthöfundur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. JANÚAR 1987 - 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.