Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1987, Page 6
Upphaf
bílaframleiðslu
Daimlers
Og
Benz
Nafn hennar varð vörumerki: Þessi
unga stúlka erMercedes, dóttir Jellin-
eks, sem var austurrískur konsúll í
Nice og óforbetranlegur bíladellukall.
Daimler smíðaði sérstaklega híla fyrir
hann, sem hann nefndi eftir dóttur
sinni.
Báðir voru þeir Daimler
og Benz frábærir braut-
ryðjendur og báðir fengu
þeir að kenna á erfiðleik-
um vegna kreppunnar
eftir fyrra stríðið. Til
að bæta stöðuna var
ákveðið að sameina fyr-
irtækin 1926 með ár-
angri sem allir þekkja nú.
En eitt það merkilegasta
við þessa sögu er það,
að þeir Daimler og Benz
sáust aldrei.
Eins og greint var frá í síðustu Lesbók átti
Karl Benz heiðurinn af því að hafa smíðað
fyrsta vélknúna ökutækið með innbyggðum
mótor sem verðskuldaði að kallast bíll, eða
automobile á tungum annarra þjóða. Daimler
hafði ásamt nánum samstarfsmanni sínum,
Maybach, hins vegar tekið þá stefnu að ein-
beita sér fyrst og fremst að smíði mótora
sem mætti nota í sem fjölþættustum til-
gangi á láði sem legi.
Eftir að Benz hafði farið sína jómfrúrferð
á fyrsta Benzinum þann 3. júlí 1886 lagði
hann megináherslu á endurbætur og smíði
nýrra bíla. Bíllinn virðist þó hafa verið nokk-
uð á undan sinni samtíð því árið 1888 hafði
Benz aðeins tekist að selja þrjú eintök. Hin-
ar slæmu viðtökur landa hans ollu því að
Benz var í örvæntingu sinni að því kominn
að gefast upp og hætta því frekari tilraunum
með bíla. Óvænt kom þá kona hans, Berta,
honum til hjálpar. An vitundar manns síns
tók hún sig til nótt eina og ók ásamt báðum
sonum þeirra hjóna frá Mannheim til Pforz-
hefm, um 100 kílómetra Ieið. Þessi ferð
markaði tímamót í sögu bílsins. Hann hafði
þar með ekki aðeins sannað gildi sitt og
getu sem fólksflutningatæki heldur var
meðhöndlun þessa háværa furðuhlutar ekki
flóknari en svo að ,jafnvel“ kona gat ráðið
við hann.
SkriðanáFram-
LEIÐSLUNA 1891
Þessi ferð reyndist fréttnæm og beindi
sjónum almennings að þessum nýja ferða-
máta. Yfir 20 bíla til viðbótar tókst Benz
að selja á komandi fjórum árum en með
nýrri gerð, Viktoria, tókst honum loks árið
1891 að koma skriði á framleiðsluna. Viktor-
ia skartaði þeim helstu nýjungum að fjórða
hjólið hafði bæst við undir vagninn og sjálf-
stæðar beygjur voru á hvoru framhjóli í
stað þess að öllum framásnum væri snúið
til að beygja eins og á hestvögnum. Smám
Eftirsóttur safngripur, sem mundt kosta svimandi upphæð, ef
hann væri seldur: Mercedes-Benz sporthíll, árgerð 1929.
Auglýsing fyrir Benz frá 1888.
Palenlirl m allen Industricstaalcn'
Neu! —<"*-■— Praktisch!
FaUnt-Hotorwagea
init Ganbctriöb durcli IVtrnlciun. Hoiizin. \ii|ilitn Hi-.
Iamer aogleícK betriebsfiíiig! — Bequeo ucd xbsolut gefihrlos'
í
!J
?I V71 \ri i
-i !i ■
Pitent-Kotorwagen mit abnebmbirem Halbverdeck und Spriuleder.
B EIN Z & C, o.
Rheinische Öasmotoren-Fabrik
M A N N H E I M.
v i Waldhofsti asse
Bílar
jr
I
100 ár
ANNAR HLUTI
EFTIR JÓN BALDUR
ÞORBJÖRNSSON
Daimlerfrá 1889. Bíllinn eraðfá sitt
sérstaka form og fjarlægist hestvagn-
inn. Teinafelgur eru komnar til
sögunnar.