Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1987, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1987, Blaðsíða 10
MÖÐRUVELLIR Það er við hæfí að fylgja leiðangursmönnum heim á eitt höfðingsset- ur, sem bersvo mjög af hinum lágreistu torfbæjum víðast hvar. Héreralkunn mynd Mayers af Möðruvöllum íHörgárdal, sem þá var setur amtmanns norðanlands ogaust- an. Þegar hér er komið sögu hefur nýtt steinhús risið á Möðruvöllum ístaðþess er brann 1826. Nýja húsið var kallað Friðriks- gáfa íhöfuðið á Danakóngi, svo sem algengt varerlendis um embættisbústaði, ogaðsjálf- sögðu erstíUinn danskur: Svipmikill kvistur og sneitt af risinu efstsvosem tíðkaðist lengi íDanmörku. Tvennt er athyglisvert við bæjarhúsin að baki. Annarsvegar hús, sem sýnist vera úrsteini líkt ogíbúðar- húsið’ og er með bogadregnu torfþaki. Hinsvegar hinar bröttu þekjur, sem sýna ef marka má myndina, að svo bratt ris hefur ekki bara verið sunnlenzkt fyrirbæri. Frið- riksgáfa entist ekki lengi, þótt byggð væri úrsteini. Húsiðbrann þjóðhátíðarárið 1874 og var fyrsti gagnfræðaskóli á Islandi reist- urá sama grunni. Þegar Gaimard-leiðangurinn kom hér við, varyfirvaldið á staðnum enginn annaren Bjarni Thorarensen, yfirdómari, amtmaður ogskáld. Gaman væri nú að eiga þö ekki væri nema eitt myndband afþví, þegar hann tók á móti Fransmönnum. Annarfundurá þessum bæ hefurþó orðið íslendingum hug- stæðari, nefnilega einasti fundur skáldanna Hjálmarsfrá Bólu ogBjarna. Þá varkot- MÆLIFELL Við skiljum við leiðangur Gaimards á Mælifelli í Skagafirði. Mayer hefur brugðið sér útá bæjarhólinn, teiknað mynd afbænum og trúlega skolfíð dálítið úrkulda, þ víþað er snjór í fjöllum, þótt um hásumar væri. Þetta kann þó aðfá staðizt. Örlygur Hálfdánarson bókaútgefandi segist einmitt hafa athugað sérstaklega hvernig veðurfari var háttað sumarið 1836 ogþá kom íljós, aðþað var framúrskarandi vot- viðrasamt. Við skulum einnig minnast þess, að ekki þarf lengra að fara en til síðastliðins sumars til að finna dæmi um skyndileg snjó- þyngsli á norð-austur öræfunum, sem sagt varfrá ífréttum. Þegarsá er þessar línur skrifar kom fyrst í Skagafjörð rétt eftir 1950, vakti sérstaka athygli, að torfbæir voru þar um allar triss- ur, enda þótt íbúðarhús ogpeningshús úr steinieða bárujárnsklæddu timbri væru þá víðast hvarísveitum. Efminninu má treysta, varþá enginn bær sjáanlegur, sem aðglæsi- leikjafnaðist á við Mælifell á mynd Mayers. Þarferallt saman: Ræktaður stíll, mikil alúð við listræn smáatriðisvo sem „branda- höfuð“ á vindskeiðum oggluggaumbúnað. Torfveggirnir tveirmilli húsanna sýnast nýhlaðnir og er frekar ósennilegt að þeir hafiekki verið úrklömbruhnaus, enda þótt það verði ekki séð af myndinni. Torfveggur- EYDALIR í BREIÐDAL Áfram halda leiðangursmenn um Djúpavog, sem þá var verzlunarstaður og koma sem leið liggur í Breiðdal, þarsem Mayer hefur brugðið upp fróðlegri mynd afþvotti og eldhúsverkum í Eydölum. Itexta bókarinnar segir svo: „Kona starfar aðþvotti ístóru keri og barn fylgist með. Griðkona heldurá pottloki, og líklega erþað prestsmaddaman Þóra Björns- dóttir, sem réttir upp höndog segir henni fyrir verkum. Prestur var þá Snorri Brynj- ólfsson. Hórtré, hór og höldupottur sjást yfir eldi og hangikjöt er uppi írótinni. Innsti hluti hússins til vinstri ereldiviðargeymsla hálffull aftaðstáli. Húsmyndin ersögulega merk. Þetta er að hluta til rennuhús án milliveggjar og vel viðað. Syllur eru felldar utan á stafi. Bitihvílir ofan á stöfum og sperrutærá bita. “ Það erþvílíkast sem konurnar hafi klætt sig upp oghaldið sér til fyrirþessum franska teiknara, sem kominn vartil aðfesta þær áblað. Varla hafa þær hvunndags gengið með skotthúfur innanbæjar og verður ekki annað séð afmyndinni en þær séu spari- klæddar við eldhússtörfín. inn hægra megin ergamall, slitinn og veðraður; hjólbörurnar aftur á móti tákn þess er koma skyldi. . Sjálfur hef ég teiknað Mælifellshnjúk oftaren einu sinni frá þessum slóðum og kannast ekki við að hann líti svona út frá neinu sjónarhomi. En það kcmur raunar víðar fyrir hjá Mayer, að hann sleppi ná- kvæmninni þegar kemur að baksviðinu. Hraunbrúnirogoghóla hefurhann víða hækkað til muna, Hklega vegna þess að honum hefurþótt þaðfara betur ímynd- inni, ogfjöllin eru „meðsínu lagi“. En það er ekki einhlýtt; sumstaðar teiknar hanp baksviðið af fyllstu nákvæmni. Við kveðjum Mayerogfélaga á Mælifelli, því þeir ætla ríðandi suður Stórasand. Eftir 150 árer hægt að segja, aðþeir áttu erindi sem erf- iði. Viðmunum halda áfram að rýna í myndir Mayers, meðan einhver hefur minnsta áhuga á fortíð þjóðarinnar. G.S. bóndinn Hjálmar að reyna að rétta hlut sinn ísakamáli ogyfirvaldið tók honum með venjulegum embættishroka. Bjarni vissi samt um skáldgáfu Hjálmars og vildi kveða hann íkútinn; varpaði fram þrælslcga snún- um fyrriparti: Vondirmenn með vélaþras að vinum drottins gera bríxl. Og Hjálmar svaraði að bragði: Kristur stóð fyrir Kaífas, klögumálin ganga á víxl.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.