Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1987, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1987, Blaðsíða 6
Vegna Stefáns Harðar í byrjun þessa árs kom út ný ljóðabók eftir Stefán Hörð Grímsson og vakti það nú eins og áður verulega athygli þeg- ar þetta fágaða skáld gefur út bók. Hann nefnir hana Tengsl og hér í Lesbók birtist ljóð úr henni seint í janúar með góð- fúslegu leyfi skáldsins. En Stefán Hörður setti tvö skilyrði fyrir birtingu ljóðsins, bæði óvenjuleg. í fyrsta lagi mætti ekki senda honum ritlaun fyrir birtinguna, því peningar væru oftast til óþurftar. Hitt skilyrðið, sem kannski mátti fremur líta á sem ósk, var það að undirritaður verkamaður í víngarði Lesbókarinnar teiknaði eða málaði mynd við annað ljóð úr bókinni og að það yrði birt síðar. Nú hef ég reynt að verða við þessari ósk, en það geri ég þó yfirleitt ekki þótt beðið sé um slíkt. Ég hef valið ljóð, sem fjallar um sársaukafulla endurfundi, þegar ljóst er að sá sem heilsar er ekki sá sami og sá sem kvaddi. Stefán Hörður líkir því við öskufall eftir eitthvað sem hefur brunnið. Ekki er ætlunin að myndlýsa ljóðmál skáldsins, heldur finna öðruvísi og umfram allt myndræna lausn til að túlka sömu kennd: Eitthvað sem brotnar og gengur manneskjunni að hjarta. GÍSU SIGURÐSSON STEFÁN HÖRÐUR GRÍMSSON Að farga minningu Sá sem kemur aftur er aldrei sá sami og fór Sú sem heilsar er aldrei sú sama og kvaddi Ævintýri eru eldfim bæði Iífs og liðin Sagnir um öskufall við endurfundi hefur margur sannreynt jr U R G LATK I STUNN I PIKU SKRÆKUR Eftir EGGERT ÓLAFSSON Handrit það sem eftirfar- andi ljóð er sótt í er tæpra tvö hundruð ára gamalt, lítið (spönn á langveginn og hálf á þverveginn), allþykkt. í því eru eingöngu ljóða- upgskriftir, einkum rímur. Á bókinni eru þrjár rithandir, sú fyrirferð- armesta er jafnframt ljótust og lýkur bókinni með nokkrum orðum rituðum sömu hendi og má af þeim álykta um það klór sem á bókinni er; eigandinn, Bjöm Magnússon, gerir grein fyrir snoturi rithendi síðasta rit- ara: „Þetta hefur monsignor Eiríkur Laxdal skrifað með eigin hönd fyrir mig, Bjöm. Látum svo vera og hjartans þakkir fyrir. Hann var í tveimur skinnpeysum og... Því er það svo vel skrifað." Bimi var kalt og svo var oftar er hann skrásetti ljóð annarra manna í poesíbók sína. Þess vegna klórið. Eiríkur hefur skráð fyrir hann í bókina rímnaflokk eftir sjálfan sig, á þær síður, sem þá voru eftir ónotaðar af bókinni, hefur hann, líklega til að hafa hroll úr þeim báð- um, skrifað afmorsvísur, forvitnilegar. Sum þeirra kvæða eru kunn, önnur ekki svo sem það sem hér fer á eftir er sýnir væntanlega kunnan mann í skemmtiiega óvæntu ljósi. Eiríkur ritan Kvæðið Píkuskrækur eður samtal munks Uppskrift Eiríks Laxdals Formálsorð eftir Þorstein Antonsson og nunnu kveðið af vicelögmanni sáluga Munkurinn Eggerti Ólafssyni með sinni fögru melodíu. Þeklgum vær, kvenna sinni kænlegast. Hnekktu þær, oft það sem þeim er kærast. Formálinn Þær brúka stór, brellin undanbrögð og gums. Munkur og nunna Þér eins fór, þú lést sem þér væri drumbs. mannlegar kunna Þér eins fór, þú lést sem þér væri drumbs. freistingar fá. Ef að dæmi til kæmi Nunnan enginn þá Þekki ég meir, ungra drengja eðlishátt, þessu má okkar þeir, einatt reyna veikan mátt. neita, þar er langt í frá Iðjan sú, oft viðskiptist aflar vott. Bæði karl og kona Fyrr en nú, vissi ég ei það var svo gott. kunna að láta svona. Fyrr en nú, vissi ég ei það var svo gott. Hér dæmið eitt hafí það fyrir ekki neitt, Munkurinn fæstir neistum ná. Hana þá, skemmstu leiðir skal fara. Eg vil sjá, hvort það er þín alvara. Munkurinn Nunnan Ó mín hjartans ástar baugabrú, til þin, því að engin er sem þú, Skil ég þig, að þú niðist á mér frekt. hugtrú, hef ég gefíð, heyrðu mig. Að fella mig, það er æði kallmannlegt. Viltu afmá þann sem elskar þig? Að fella mig, það er æði kallmannlegt. Viltu afmá þann sem elskar þig? Munkurinn Stattu við, má ég ekki, mér er annt, Nunnan dálítið, ég skal vita hvað þú kannt Þó ég nei kvæði við ókjassmálig ég vil sjá, hvort þér verður við mig bylt. vil ég ei afiná þann sem elskar mig samt þín mök, svífa drífa á heljarstig (?) Nunnan mín er sök ein ei nein þótt æsir þig, Hana þá, gerðu við mig hvað þú vilt. mín er sök ein ei nein þótt æsir þig. Hana þá, gerðu við mig hvað þú vilt. Munkurinn Sértu fljót, það er ekki að æsa sig, unga snót, ég þó teygi á þennan stig. Undrar mig, ef ei leiðast lætur til. Gimd kvenlig, gjðrir þar á greinaskil. Gimd kvenlig, gjörir þar á greinaskil. Nunnan Það er satt, iengur enginn leyni því, með sinnið glatt, kallmannsok ég undir sný. Mæli ég um, hrund ef undir okið ber, stúlkunum öðrum líki eins og mér, stúlkunum öðrum líki eins og mér. Munkurinn Fyrir sann, slíkar píkur geðjast oss. Nunnan Að bera mann, þykkir okkur þykir kross. Þvi raunar, hold og blóð er hvert um sig. Stúlkumar, aðrar fiðrar eins og mig. Stúlkumar, aðrar fiðrar eins og mig. Ljóð þetta var birt með nokkrum orða- mun í „Kvæðum Eggerts ólafssonar“. Bókin var gefín út f Kaupmannahöfn 1832 og sýnir Eggert í öðru ljósi en samtíminn hefur varðveitt hann. Þann Eggert sem Eiríkur þekkti. 6

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.