Lesbók Morgunblaðsins - 05.09.1987, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 05.09.1987, Síða 8
Gestur og Rúna á heimili sínu við Austurgötu í Hafnarfirði, þar sem þau hafa vinnustofur. Granítið mjúkt eins og meyjarvangi au eru oft nefnd bæði í einu: Gestur og Rúna. Þótt bæði séu sjálfstæðir listamenn, sem hafa markað sér persónulegan bás, er þessi sam- tenging ugglaust vegna þess, að í fyrsta lagi eru þau hjón og í öðru lagi kjósa þau að sýna GESTUR ÞORGRIMS- SON OG SIGRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR sýna í Galleríi Borg. saman. Að sjálfsögðu hafa þau ekki alltaf haft þann háttinn á. En sem sagt; þau standa núna saman að sýningu í Galleríi Borg við Austurvöll, sem opnuð verður í dag og eftir að hafa séð eitthvað af sýningargrip- unum heima hjá þéim við Austurgötuna í Hafnarfirði, er skrifarinn á þeirri skoðun að þetta verði afburða fáguð sýning, sem ber vott um langa þroskaleið og mikla rækt- un. Myndlist er ræktunarstarf og hin almenna regla er sú, að listamaðurinn þarf að rækta sinn garð í nokkra áratugi þar til hægt er að segja, að list hans standi í fullum blóma. En að sjálfsögðu er þetta einstaklings- bundið og til eru þeir, sem eiga sitt blómaskeið snemma á ævinni. Hitt er samt margfalt algengara, að myndlistarmenn séu að bæta sig á ýmsan hátt allt til sextugs og kannski er gleðilegast, að bein afturför er varla til þótt háum aldri sé náð. Má í því sambandi minna á síðustu tvo áratugina í lífsstarfi Kjarvals, sem undirstrika þetta sannarlega. Ég minnist á þetta hér vegna þess að Gestur og Rúna eiga langan feril að baki; samt hef ég ekki séð neitt hjá þeim áður, sem tekur þessum verkum fram. Þau hjón dvöldu og unnu á Sveaborg í Finnlandi um tíma líkt og ýmsir aðrir hérlendir myndlist- armenn fyrr og síðar og telja að sú vist hafi verið mjög gagnleg. Einkum virðist Gestur hafa tekið verulegan fjörkipp austur þar og „fundið sjálfan sig“ eins og stundum er sagt, í viðureign við granít, sem er eðlileg- ur efniviður myndhöggvara á hinum Norðurlöndunum og miklu harðari bergteg- und en þær sem mynda ísland. Höggmyndir Gests eru óhlutbundnar og áherzlan er á tvennskonar áferð steinsins, sem myndar hrífandi andstæður. Annarsvegar er gróf og eðlilega kornótt áferð steinsins og hins- vegar fletir eða myndhlutar, sem eru slípaðir af þvílíkri kostgæfni, að granítið sýnist mjúkt eins og meyjarvangi - og samt er það auðvitað glerhart. Skúlptúr af þesu tagi útheimtir mikla vinnu og þolinmæði og af- köstin geta ekki orðið mikil. í þetta sinn sýnir Gestur aðeins 10 höggmyndir og er ein þeirra með ívafi úr gulli. A vinnustofu hans getur að líta nokkra hausa af þekktum mönnum, en ekki verða þeir með á sýning- unni núna og heldur ekki vasar ogýmisskon- ar verk úr leir, sem Gestur hefur orðið þekktur fyrir. Granítskúlptúramir eru ný- mæli í list Gests; nýr kapítuli og áfangi i ræktunarstarfinu, sem aidrei tekur enda. Rúna notar sömu tækni og við höfum séð frá hennar hendi að undanfömu: myndir brenndar á flísar. Stundum lætur hún eina mynd ná yfír margar flisar, en í þetta sinn er algengara, að ein mynd sé höfð á stórri flís. En þar að auki sýnir Rúna teikningar á pappír og það er í senn nýstárlegt af hennar hálfu og forvitnilegt, að því hún er góður teiknari og myndir hennar njóta sín vel í þessari útfærslu. Myndefnið er oftast kvenfígúra, stílfærð að hætti Rúnu, en stundum andlit, fískar og minnið um eplið og höggorminn hefur hún notað einnig og útfært á mismunandi hátt. í myndlist síðustu ára hefur verið í tízku að vinna stórt; þau tíðkast þar in breiðu spjótin. Þeim verður síður við komið þegar unnið er með tækni af þessu tagi. Fínleikinn situr þá í fyrirrúmi enda á hann fullan rétt á sér. Vonandi heldur hann sínu gagnvart öllu því sem framleitt er á vorum dögum undir merki grófleika og jafnvel mddaskap- ar. GtSLI SIGURÐSSON I djúpinu, 1987. Steinleirsmynd eftir Rúnu. Paradísarheimt. Steinleirsmynd eftir Rúnu, li 8 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.