Lesbók Morgunblaðsins - 05.09.1987, Síða 10
Björn Gillberg
- teikning úr
sænsku dagblaði.
lík þessari, algerlega óháð ríkinu, er mjög
óvanalegt fyrirbæri í hinu sænska velferðar-
samfélagi. Hún er eingöngu fjármögnuð af
ftjálsum framlögum og gefur forstöðumann-
inum fullkomlega frjálsar hendur um
verkefnaval og baráttuaðferðir. Gillberg
leggur á það áherslu, að það sé forsendan
fyrir starfseminni að vera hinu opinbera,
ríkinu og bæjarfélögum, óháður.
Sú baráttuaðferð, sem hann hefur ein-
beitt sér að, með góðum árangri, undanfar-
inn áratug, er að kæra fyrirtæki sem gera
sig sek um brot á umhverfísvemdarlögunum
og reka sjálfur málin fyrir dómstólum. Þar
leggur hann fram óyggjandi sannanir
byggðar á vísindalegum athugunum, sem
stofnunin sjálf stendur fyrir. Þessi mál em
mjög vel undirbúin og enn hefur Gillberg
ekki tapað neinu máli.
Málaferli - Besta
Aðferðin
Fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög hafa
verið neydd til þess að borga tugi milljóna
króna í skaðabætur til einstaklinga og borga
útlagðan kostnað stofnunarinnar við mála-
rekstur. Þannig má segja að lögbijótanir
sjálfir fjármagni að hluta til starfsemi
Miljöcentmm. Mikill tími fer nú í þessi
málaferli, en hann segir að þessi aðferð
skili betri árangri en þjarkið við embættis-
menn og stjómmálaþras.
Ymsu raunhæfu hefur verið áorkað. Þeg-
ar Miljöcentmm fór fyrst í málaferli, fyrir
rúmum 10 ámm, var það talið nánast óhugs-
andi að fá fyrirtæki dæmt til að greiða
skaðabætur fyrir brot gegn umhverfísvemd-
arlögum — en það tókst. Fyrirtækin skilja
þessa baráttuaðferð og verða nú að reikna
með áhættu þegar þau bijóta lög um hvað
megi setja í matvælin og losa af úrgangi út
í náttúmna. Dómamir fæla önnur fyrirtæki
frá því að reyna slíkt hið sama og úrskurð-
ir dómstólanna hafa skapað fordæmi og
tekið af vafa þar sem lögin hafa verið tvíræð.
Almenningur hefur vaknað til meðvitundar
um að hér sé ekki um að ræða einhveija
fordild fámenns hóps róttæklinga og
menntamanna. Gífurleg verðmæti, heilsa
og framtíð næstu kynslóðar er nú í húfí.
Fólk er í biðröð eftir því að fá hjálp frá
stofnuninni, en mörgum verður að vísa frá,
og Gillberg tekur fyrst að sér þau mál sem
hafa þýðingu sem fordæmi og þau sem
hann er nokkuð viss um að vinna fyrir dóm-
stóli.
Samt sem áður er starfsemi Miljöcentrum
barátta við volduga andstæðinga og sinnu-
leysi og spillingu í kerfínu. Það er ríkjandi
viðhorf að hin vemdandi hendi velferðarrík-
isins sé nægileg trygging fyrir hollri fæðu
og óspilltri náttúru. Þeir sem mótuðu vel-
ferðarríkið og trúa á það ganga oft út frá
því, að það búi yfír innri mætti sem tryggi
eftirlitið. Einstaklingar eru máttlitlir gagn-
vart þessu kerfí þó þeir hafi orðið fyrir
augljósum skaða. Þeir fá enga lögfræðiað-
stoð frá ríkinu við að reka slík mál enda
oft um ríkisstofnanir að ræða og sveitarfé-
lög. Versti andstæðingurinn sem Miljöcentr-
um á við að etja er einmitt oft hið opinbera
matvæla- og umhverfisvemdareftirlit. Þar
streitast þeir á móti við að viðurkenna brot-
in og vefengja sannanimar vegna þess að
þá sést það, svart á hvítu, að þessar eftirlits-
stofnanir hafa ekki gegnt hlutverki sínu.
Bjöm Gillberg er einnig snjall áróðurs-
maður og hefur öðlast mikla reynslu á því
sviði í gegnum árin. Hann hefur reynt að
koma málum sínum á framfæri innan stjóm-
málaflokkanna. Foreldrar Gillbergs vom
bæði starfandi í Jafnaðarmannaflokknum
og hann ólst upp í þeirri trú og starfaði þar
í 18 ár. Hann hefur einnig hrært upp í
Kristna demókrataflokknum, sem hann til-
heyrði í 4 ár, en sagt skilið við báða þessa
flokka þegar hann fékk ekki nægilegt svig-
rúm til að vinna að hjartans máli sínu.
Þeir sem eitra um-
hverfið ganga lausir
ekktasti baráttumaður fyrir umhverfísvemd í
Svíþjóð er Bjöm Gillberg. Hann er mjög um-
deildur og hefur komið víða við sögu. Það kom
mér á óvart að hann er ekki nema 44 ára því
hann var þegar á sjötta áratugnum þekkt
Pétur Pétursson ræðir
við BJÖRN GILL-
BERG, forstöðumann
Miljöcentrum og þekkt-
asta baráttumann fyrir
umhverfísvernd í
Svíþjóð.
nafn fyrir málflutning sinn og baráttuað-
ferðir gegn þeim sem bijóta lög og reglu-
gerðir um umhverfísvemd. Hann er einnig
þekktur fyrir beinskeyttan málflutning gegn
vísináamönnum og embættismönnum, sem
trassa matvælaeftirlit og hylma yfír með
afbrotum gegn náttúrunni vegna eigin hags-
muna eða kerfísins. Skemmst er að minnast
baráttunnar gegn lyfjafyrirtækinu Fer-
menta, sem rekið var með miklum hagnaði
en byggði á vísvitandi blekkingum og kerfís-
bundnum brotum gegn umhverfisvemdar-
lögum. Þegar það mál stóð sem hæst var
honum hótað lífláti og hann fékk þá lög-
regluvemd á tímabili. Blaðaskrif*Gillbergs
um starfsemi fyrirtækisins og forstjóra þess
skapaði öngþveiti í kauphöllinni og gerði
það að verkum að verðbréf fyrirtækisins
féllu í verði um fleiri milljarða króna á fáein-
um dögum.
FÉKK EKKILENGUR FÉ
Til Rannsókna frá Hinu
Opinbera
Björn Gillberg er fíl. lic. í lífefnafræði og
veit hvað hann er að tala um. Um skeið
vann hann að rannsóknum við Landbúnaðar-
háskólann í Uppsölum, en varð að víkja
þaðan þegar gagnrýni hans á stefnu yfír-
valda varð of óvægin og ógnandi ríkjandi
hagsmunum. Hann skrifaði fleiri bækur
þegar á sjöunda áratugnum, og benti á að
margir þeirra sem bera ábyrgð á eftirliti
með matvælum og umhverfínu, sitja sjálfír
í stjómum matvælafyrirtækja, eða eru á
ýmsan annan hátt tengdir fyrirtækjum og
stofnunum sem geta hagnast á brotum á
lögum um matvælaeftirlit og umhverfís-
vemdarlögum. Hann fékk aðvaranir frá
æðri stöðum, en ekkert dugði, það varð
ekki þaggað niður í Gillberg. Þá var það
að fjárframlög til rannsókna hans voru
stöðvuð. Þeir sem réðu þessum styrkjum
og greiðslum til hans vom sjálfír tengdir
stórfyrirtækjum, sem höfðu orðið fyrir barð-
inu á Gillberg, en opinberlega hét það að
rannsóknir hans væm of mikið miðaðar við
þróunarlöndin og hefðu ekki hagnýtt gildi
fyrir sænskan iðnað. Gillberg var þá boðin
prófessorsstaða í Bandaríkjunum og var að
koma sér þar fyrir, þegar hann fékk boð
um að koma heim aftur frá fijálsum samtök-
um umhverfísvemdarfólks, sem gekkst fyrir
söfnun til þess að gera honum kleift að vinna
áfram að rannsóknum og umhverfísvemd.
Þetta var upphafíð að Miljöcentmm, sem
sett var á laggimar 1971. Þar vinna nú sex
manns undir stjóm Gillbergs. Auk þess
starfar einn lögfræðingur, sem hefur eigin
lögfræðiskrifstofu, nánast eingöngu fyrir
Gillberg, og hefur hann sérhæft sig í mála-
rekstri varðandi umhverfisvemd. Þessi
stofnun hefur auk rannsókna það að mark-
miði að dreifa upplýsingum til fólks og vekja
almenningsálit til meðvitundar um umhverf-
isvemd. Það em um 2000 aðilar sem leggja
reglulega fram fé til starfseminnar. Stofn-
unin gefur út tímarit, sem Gillberg ritstýrir.
Algerlega Óháð Ríkinu
Miljöcentmm er eins konar sambland af
rannsóknarstofu, lögfræði- og áróðursskrif-
stofu. Þar er lítið en gott bókasafn, sem
hefur upp á að bjóða mikilvægustu tímarit
í náttúm- og vistfræði. Þar em nokkrar
skrifstofur og lítill samkomusalur. Stofnun
10