Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.1987, Síða 8
U M H V E R F I
Nokkrar myndir úr Nordstan
Fimmunni eins og svæðið er
er Gustavs Adolfs torg með sti
þakglugga og þama blaktir n,
og sést yfir honum, að gluggi
ekki ýkja stórir. Þarna er al
margt um manninn.
Nordstan í Gautaborg,
Hagkaupshúsið í Kringlu
og Eiðistorg á
Seltjarnarnesi
Með tilkomu Hagkaupshússins í Kringlu höf-
um við fengið nokkurn fjölda verzlana undir
einu þaki; fyrirkomulagið er gamalþekkt frá
Ameríku og er kallað „mall“ þar í landi.
Hér er eins og allir sjá um hús að ræða,
en ekki yfírbyggða götu. Fyrsta tilraunin
í þá átt er raunar einnig frá þessu ári;
þar gerðust ráðamenn á Seltjamamesi
brautryðjendur og kem ég að því síðar.
Kringluhúsið markar einnig tímamót og
hefur þeirri nýjung verið tekið með
tilhlýðilegri forvitni og er þar jafnan margt
um manninn. Aðstandendur hússins gera
sér þó góðar vonir um, að þá fyrst sjái
fólk kosti þessa fyrirkomulags, þegar tíð
tekur að gerast rysjótt með vetri. Áreiðan-
lega em áratugir síðan fyrst var stungið
uppá því að byggja yfír götur í því skyni
að laða fram skárra umhverfí, einkum að
vetrarlagi. Umdirritaður hefur annað slag-
ið verið að ía að hugmyndinni í meira en
aldarfjórðung og aðrir hafa tekið undir;
þar á meðai listamaðurinn Þórður Ben
Sveinsson, sem haidið hefur sýningar þar
sem hann viðraði hugmyndir sínar um
yfirbyggða borg. Jafnframt ritaði hann
greinar um hugmyndir sínar hér í Lesbók.
Á hverju ári ungar menntakerfið út
sérfræðingum á skipulags- og byggingar-
sviði. Sífellt em nýbakaðir arkitektar að
hefja störf og sumir hafa sérhæft sig í
borgarskipulagi. Samt er varla hægt að