Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1987, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1987, Blaðsíða 4
MANNKYN I Ð listír komu tilsögunnar á ísöld K völd eitt fyrir 17 þúsund árum nam piltur einn staðar sem snöggvast uppi á klettahrygg ofan við á nokkra í héraði, sem núna telst til suðurhluta Frakklands. Hann ætlaði aðeins að kasta mæðinni, áður en hann færi að klöngrast niður mjóa klettasyllu. Hann renndi augunum yfír frjósamt graslendið fyrir neðan sig, þar sem hreindýrahjörð var á beit lengst í fjarska en kofaþyrpingin, þar sem ættbálkur hans hafðist við, stóð nærri árbökkunum rétt fyrir neðan. Þá fór hann að fíkra sig niður sylluna að hellinum, þar sem ættarhöfðinginn beið hans ásamt öðrum fyrirmönnum ættbálksins. Hann staðnæmd- ist á ísköldu hellisgólfínu. Flöktandi skinið frá tólgarlömpunum magnaði fram dular- full kynjafyrirbrigði: Tíguleg hreindýr prýdd fögru, greinóttu homaskrauti virtust vera á hlaupum gegnum hellinn, ólmir nautgripir — um 5 metrar á lengd — virtust spenna vöðvana til átaka, svartir og rauðlitir hestar uppi í hellisloftinu litu ót eins og þeir væru þess albúnir að taka á sprett. Ættarhöfð- ingjamir, skreyttir vísundaskinnum og með bjúghymdar vísundakrúnur á höfði, biðu átekta inni í myrkrinu, þar til ógnþrungnir töfrar myndskreytinganna höfðu haft sín áhrif. Þá gengu þeir fram og leiddu hinn nýinnvígða í gegnum neðanjarðarvistarver- ur og sýndu honum þar annála ættbálksins, hefðir og átrúnaðartákn — þekkingararfur, sem var máttugri þeim er fenginn var fyrir tilstuðlan erfðavísanna. Vagga Menningarinnar Enginn veit þó með vissu, hvort slíkar vígsluathafnir hafi nokkum tíma átt sér stað í raun og veru í hinum víðfrægu mynd- skreyttu hellum í Lascaux í Suður-Frakk- landi — en sú staðreynd, að mannfræðingar Voru forfeður okkar á ísöld grimmúðugir, rýtandi villimenn? Nei, vísindamenn telja þá skoðun Qarri lagi. Þeir höfðu uppgötvað listina, bjuggu fremur í skýlum en hellum, mundu varla vekja athygli fyrir framandlegt útlit á götu í London eða París, væru þeir klipptir og klæddir eins og nútímamenn. Þetta voru Cro-magnon menn, sem komu fram á sjónarsviðið í Evrópu fyrir 35 þúsund árum og taldir hafa komið frá Suður-Afríku, þar sem þessi nýja manngerð er talin hafa átt uppruna sinn fyrir um 70 þúsund árum. hafa nú sett fram tilgátur þar að lútandi, ber á hinn bóginn vott um róttæka breyt- ingu á öllum skilningi þeirra á atferli frummanna. Sú var tíðin, að vísindamenn álitu tímabilið milli 35 þúsund og 10 þúsund ára í upphafí tilvistar hins vitiboma manns hefði verið hið myrka skeið í upphafí vits- munaþróunar mannsins. Nú orðið eru mannfræðingar almennt þeirrar skoðunar, að undir lok ísaldar hafí í raun og veru skollið á regluleg sköpunar- holskefla, er teljast verði sjálf vagga þeirrar menningarviðleitni, sem leitt heftir til nútíma menningar. Á þessum 250 öldum af síðari hluta ísaldar (oft kallað paleolítíska tímabilið á fræðimáli) tók mannfólkið meiri framförum á sviði tækni og listsköpunar heldur en á þeim tveimur milljónum ára, sem liður frá því að menn tóku að telja til fyretu steinverkfærin. í því menningarlega risastökki, sem tekið var fram á við, miðað við forfeðuma, fundu Neanderthalsmenn — þ.e.a.s. mannfólkið á síðari hluta ísaldar — meðal annare upp á því að nota tungumál, hófu Iistsköpun, frömdu tónlist og lögðu raunar grundvöllinn að verzlun og stéttaskiptingu og tóku jafn- vel að móta tízku. „Á síðari hluta ísaldar kom fram á sjónar- sviðið mannfólk af því tagi, sem við nútímamenn mundum kannast við sem menn,“ segir mannfræðingurinn Randall White, prófessor við New York háskóla — með öðrum orðum fyreta mannfólkið, sem hafði á sér yfírbragð algjörlega nútímaiegr- ar mannveru, þ.e. homo sapiens sapiens, eða hinn tvöfalt skynibomi maður. Dagrenning Menningar Fyrir skemmstu efndi ameríska Náttúm- fræðasafnið í New York til mikillar yfírlits- sýningar, er bar yfirekriftina „Dimmir hellar, bjartar sýnir,“ og höfðu þar verið dregnar saman á einn stað fjölmargar minj- ar víðs vegar að úr heiminum frá þessu mikla sköpunartímabili mannkynsins. Sú list Isaldarmaður. Væri hann kominn í nútímaföt og með stresstösku myndi enginn taka eftir honum á götu. og þeir smíðisgripir, er þama gat að líta — en margir af mununum vora fengnir að láni úr hinum rómuðu frönsku fomaldar- minjasöfhum — mynduðu einhveija viða- mestu yfírlitssýningu um menjar frá lokum ísaldar, sem nokkum tíma hefur verið sett upp: Sýningargripimir era bæði gerðir í jarðnesku augnamiði og til að þjóna háleit- um andlegum tilgangi. Þeir leiða nútíma- mönnum fyrir sjónir framstæða lýsingu í húsakynnum ffummanna, útfarareiði þeirra — jafnvel klámmyndir. Á sýningunni voru samankomnir samtals um 300 gripir, eins konar steina- og beinamyndgerð af því, hvemig við mennimir voram í háttum fyrir 300 öldum — og hvemig okkur var þá áskap- að að þróast. Dögun nútímamannsins verður ekki ein- ungis til að ýta við ímyndunarafli vísinda- manna, heldur kemur það líka ímyndunarafli alls almennings af stað. í nýlegu útkomnu ritverki í þremur hlut-, um eftir franska fræðimanninn Jean Auel — fyreti hlutinn, „Ættbálkur hellabjamar- ins“ hefur verið metsölubók bæði í Evrópu Fornleifafundur í Úkraínu. Endurgerð vísindamanna á híbýlum steinaldarfólks. Svo virðist sem bein vísunda hafí upphaflega verið notuð sem byggingarefni. og vestan hafs — dregur höfundurinn upp lifandi mynd af forfeðram okkar á þessu tímabiii mannkynsins. Þar er að finna alls konar lýsingar á háttum ísaldarmanna, allt frá eftirlætis stellingum þeirra við kjmmök upp í lýsingar á skarpskyggni þeirra varð- andi lækningar á meinum og krankleika. Segja má, að þessar bækur Auels hafí raun- ar opnað augu hins almenna lesanda fyrir því, hvereu umhyggjusamir, nærgætnir, hugvitsamir og flóknir að innri gerð menn- imir vora þegar orðnir innan hinna foreögu- legu ættbálka. „Fólk hefur hingað til almennt álitið, að við nútímamenn væram komnir af einhverjum grimmúðugum, rýt- andi villimönnum," segir Jean Auel. „Eg er svo að reyna að segja í bókum mínum: „Hæ-hæ, staldrið ögn við; þetta era forfeð- ur, sem við þurfum engan veginn að skammast okkar fyrir ..." Þetta er einmitt fólkið, sem uppgötvaði sköpunargáfu sína.“ gáfum Gæddir FRUMMENN En hverjir vora þeir svo, þessir íbúar Evrópu á ísöld, þessir málarar goðsögulegra skepna og myndhöggvarar, er skópu mynd- ir af lagðsíðum, úfnum mammútum? Þeir hlutu heitið Cro-magnon-menn, eftir þeim stað í Frakklandi, þar sem menjar um þá vora fyrst grafna upp úr jarðlögunum. Þeir báru þó nokkum svip af Neanderthal- mönnum, en vora þó, bæði á sviði vits- munalífs og eins að því er varðaði líkamsbyggingu, heilu skrefí á undan þeim á þróunarbrautinni. Cro-magnon-menn vora alls ekki eins sterklega byggðir og Neand- erthals-menn, höfðu til dæmis ekki þann digra svíra, kröftuga axlarvöðva og þykk, grófgerð bein, sem mjög einkenndu vaxtar- lag Neanderthals-manna, ekki heldur stórgerða höfuðkúpu þeirra og þung, fram- standandi brúnastæði, enda þótt heilabú Cro-magnon-manna væri ekki meira að vöxtum heldur en heili Neanderthals- manna, segir fommenjaffæðingurinn Henry de Lumley við náttúrafræðadeildina í franska þjóðminjasafninu í París. Samt sem áður skera Cro-magnon-menn sig þó greini- lega úr manngerð Neanderthal-fólksins, einnig að því er varðar gerð heilahvelanna undir enni, sem vora mun stærri og þrosk- aðri hjá Cro-magnon-mönnum og veittu þeim þar með hæfileikann til táknbundins hugsanaferils, aðlögunar að brejrttum að- stæðum og til uppfínninga. Og þótt engin

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.