Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1988, Side 9

Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1988, Side 9
 Hver greifaætt í Svíþjóð hefur sitt eig- ið skjaldarmerki. Það sem hér sést heyrir til Cronstedt-ættinni. Samkomustaður sænska aðalsins, Riddarahúsið í Stokkhólmi. Svo gæti virzt sem aðalsmenn væru tímaskekkja í Svíþjóð í jafnræðinu og krataveldinu, en staðreyndin er hinsvegar sú, að sænski aðallinn heldur fast í sitt. Þegar égþjónaöi sænska aölinum Þetta er fólk á bezta aldri, sem býr í stórri íbúð í Stokkhólmi og á herragarði úti í sveit. Ættarauðurinn sér fyrir þeim; þau þurfa ekki endilega að vinna. Ég' átti að halda öllu hreinu, fægja silfrið og jafnvel að stoppa í reiðbuxur greifans. Á vingjarnlegan hátt var ég meðhöndluð sem lægri mannvera. EftirUNNI GUÐ J ÓNSDÓTTUR að byijaði með að ég sat og las blöðin morgun einn í september í fyrra; Dagens Nyheter og Svenska Dagbladet. Ég hef alltaf verið iðinn blaðalesandi og les blöðin spjaldanna á milli, þ.á m. auglýsingarnar. Smáauglýsingar eru uppáhaldsauglýsingar mínar, þær hafa verið mér til gagns og gamans um áraraðir. (Ég bæði kaupi og sel notaða hluti. Stundum skekkist þó „kaup- og sölukerfið" hjá mér; fyrir einu ári seldi ég rúmið mitt og hef ekki fundið neitt annað í staðinn sem hent- ar mér, svo ég hef sofið á gólfinu síðan.) Nú, þegar ég las atvinnuauglýsingamar, lét ég hugann reika og setti mig inn í hin ýmsu störf sem auglýst voru laus til um- sóknar: Einkaritari hjá Blombergs endur- skoðunarskrifstofu, nei, það gat ekki verið skemmtilegt — sitja átta tíma á dag og pikka á ritvél. Þá var nú skárri vinnan sem enska sendiráðið auglýsti: Bflstjóra vantar. Mér fannst ég sitja í stórum svörtum Jagu- ar og þeysa um götur Stokkhólmsborgar með sendiherra og frú í aftursætinu — en hvað er nú þetta! Bílaröðin haggast ekki, reykurinn frá bflnum fýrir framan smýgur inn í Jaguarinn og inn í vit mín. Nei, bflstjóri mundi ég ekki vilja vera. En þetta þá? Konu vantar til heimilis- starfa einu sinni í viku. Auglýsingin var ekki undirrituð með nafni, bara með síma- númeri, sem ég sá að var í miðbænum, á „Östermalm". Einmitt í þeim borgarhluta býr efnað fólk í stórum íbúðum. Ég sá sjálfa mig svífa um í íbúð þessa fólks, sem þurfti á konu að halda einu sinni í viku, snurfusandi og fægjandi og af því að ég hef alltaf haft gaman af því að laga til og hafa fínt hjá mér, fannst mér þetta vera ákjósanlegt starf. Og einu sinni í viku, það var alveg mátulegt. Áður en ég vissi af, var ég búin að hringja í símanúmerið í auglýsingunni. Kona svar- ar, ég kynni mig og segi hvar ég bý og segist hringja vegna auglýsingarinnar. — Mér þykir það leitt, en ég er búin að ráða konu, segir hún. Um leið og hún segir þetta ranka ég við mér. Af hveiju hafði ég hringt? Mig vant- aði enga vinnu. Nú hljóp einhver galsi í mig, úr því að konan var búin að ráða vin'nu- konu var mér allri óhætt. Ég sagði við konuna að ef einverri okkar ætti að þykja miður, þá væri það henni, því ég væri nefhi- léga alveg sérátaklega hæf vinnukona. Ekkí nóg með það að ég gæti skúrað gólf og hreinsað skít svona almennt, ég gæti líka þvegið og gengið frá þvotti á fyrirmyndar- hátt (jú, jú, ég vann eitt sumarið á skólaár- unum í þvottamiðstöðinni í Reykjavík), bætt og lagað föt, búið til mat og bakað. Ég væri samvinnuþýð og auk þess heiðarleg og áreiðanleg í hvívetna! Eftir að símtalinu lauk hló ég með sjálfri mér og hélt áfram að lesa blöðin. Tveim vikum seinna, á sunnudagskvöldi, hringir konan með auglýsinguna til mín. Hún segir að hún sé ekki ánægð með kon- una sem hún hafí ráðið og að ég geti fengið starfíð ef ég hafi ennþá áhuga. — Ha, áhuga? sem vinnukona ... ég? VlNNUKONA Daginn eftir byijaði ég sem vinnukona. Á leiðinni niður í bæ ákvað ég að halda út í hálft ár hvernig sem mér líkaði þessi nýja staða mín. Mér datt í hug málshátturinn: þeim svíður, sem undir... Mér var nær að lýsa sjálfri mér sem þeirri ofurmanneskju í vinnukonulíki, sem ég hafði gert. Klukkan tíu, nákvæmlega (ég stóð og horfði á sekúnduvísinn), hringdi ég dyrabjöll- unni á fjórðu hæð í aidargömlu steinhúsi. Ægileg hundgá heyrðist innan úr íbúðinni. Jesús minn, ég sem er svo hrædd við hunda, hugsaði ég. Dymar opnuðust og stórt svart, síðhært, fjórfætt lqotstykki hoppaði á mig. — Vertu góð, Tusse litla, sagði ung og grönn kona, um leið og hún reyndi að fá „litla" hundinn að láta það vera að velta mér um koll. íbúðin var stór. í henni voru falleg gömul húsgögn og á gólfunum lágu austurlensk teppi. Á veggjunum héngu lista- verk eftir sænska og útlenska listamenn. Ég sá strax að hér vantaði ekki aurana. Konan benti mér á hvíta örk, sem lá á eldhúsborðinu, og sagði að þama stæði allt sem ég ætti að gera. Hún sagðist ekki mega vera að því að tala við mig núna, hún væri að fara í handsnyrtingu. Hún lét mig fá lykla að íbúðinni og sagðist vona að peningamir dygðu, ef ekki, þá borgaði hún það sem á vantaði næst. Svo fór hún og tók hundinn með sér, sem betur fór. Á eldhúsborðinu lágu tveir hundrað krónu seðlar. í símanum hafði hún spurt mig hvað ég færi fram á hátt tímakaup. Þar sem ég hafði ekki minnstu hugmynd um hvað vinnukonur höfðu í kaup, þá spurði ég hana hvað hún hefði hugsað sér að borga. Fjörutíu_ (sænsk- ar) undir borðið hafði hún sagt. Ég sagði þá að mér fyndist fímmtíu krónur vera betra og samþykkti hún það. Nú lágu þama á borðinu vinnulaun fyrir næstu fjóra tíma. Ég las það sem stóð á örkinni, þar stóð m.a.: Þvo gólfin, ryksuga, þurrka af, þvo baðherbergið og gestasalernið, þvo glugg- ana, fægja silfrið, skipta á rúmunum í hvert skipti. Hreinsa ofninn í eldavélinni, ísskáp- inn, frystiskápinn og eldhússkápana. Strauja þvottinn, sjá um að ekki sé loft í ofnunum. Ég byijaði á baðherberginu. Eina bamið, Anna sex ára, var á dagheimili á daginn. Herbergið var á öðram endanum. Aldrei hafði ég séð önnur eins ósköp af leikföngum. Fötin hennar vora líka um allt. Á meðan ég tók til hugsaði ég um það hvað þetta væri einkennilegt fyrirkomulag að ráða fólk í vinnu. Konan hafði ráðið mig án þess að hafa séð mig og eftir að hafa látið mig fá lykla að íbúðinni, þar sem verðmæti fyrir LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23. JANÚAR 1988 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.