Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1988, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1988, Side 12
A FINSKONAR YALTA-RÁÐSIEFNU Samtal við KOMAR og MELAMID, rússneska myndlistarmenn og heimspekinga, sem kjósa að vinna sameiginlega að myndum sínum og hafa sezt að í New Y ork og telja sig bókaskreytingamenn, myndhöggvara, sósíal-realista og konseptmenn. Eftir HALLGRÍM HELGASON V eru italy Komar og Aleksander Melamid heimsfrægir snillingar og á köflum einnig prýðilegir listmálarar. Þeirra kynni hófust í kaldranalegum módelteiknitíma í Stróganof- Institútinu í Moskvu einn af upphafsdögum skammdegisins árið 1965. Báðir luku þeir ströngu námi sínu þar tveimur árum síðar og hófu þá að starfa sem einn maður og hafa gert síðan. Eitt af þeirra fyrstu verk- efnum var að mála veggmyndir í „Hol Hetjulundarinnar" á sumamámskeiði ung- liðahreyfmgarinnar. Síðan þróuðust þeir útí vestræn konseptáhrif og popp, tóku þátt í neðanjarðar-sýningum sem þá voru þó yfir- leitt haldnar utan dyra, á jafnsléttu, eins og t.d. við Beljajevó og í Ízmælovskí-garðin- um. Árið 1977 yfírgáfu þeir rússneskt foðurland og móðurmold í gegnum gyðinga- land, sem var þeim þó aðeins stutt stopp (sbr: „Jerúsalem er helvíti listamanna") og settust að í New York, þá 32ja og 34ra ára að aldri. í Ameríku hefíir þeim gengið allt í haginn, enda nutu þeir við komu sína hing- að þeirra athygli sem að vísu oft er ofnotuð, athygli andófsmannsins. En sú gæfa varð þeim sem sagt ekki til trafala og hafa þeir alla tíð síðan verið fastir gestir í eftirsóttum sýningarsölum heimsborgarinnar og aufúsu- gestir í hveijum fyrirlestrarsal landsbyggð- arinnar enda mennirnir miklir skemmti- kraftar að upplagi. Það var einmitt eftir einn slíkan „fyrirlestur" þeirra við Whitney- safnið hér í New York að mér tókst að heija rúma klukkustund út úr þessum ann- ars vinsamlegu kollegum mínum, enda eru handanhafsmenn hér yfirleitt mun viðmæl- anlegri en Kaninn sem alltaf er bissý og með sífelldar sýndar-áhyggjur af hinum fallandi dollar. Vinnustofa Kómars og Melamíds er neð- arlega í bænum, sunnan við listahverfíð Sóhó og austan við litlu Ítalíu þar sem mafíósamir brugga sín bragarmál en norðan við Chinatown sem er uppstoppuð af frekar skábyljóttu fólki sem mælir á dýramáli. Mitt í þessum gijónagraut standa svo þess- ir tveir lágvöxnu Rússar á fimmtu hæð í einhverskonar blandi af saumastofu og heildsöluhúsnæði. Ég kný móður dyra og kynni mig og mitt land sem þeir þykjast þekkja og kíma létt við um leið og mér er boðinn einn af þremur stólum sjabbýlegrar vinnustofunnar og þannig að einhvemveg- inn fær maður á tilfínninguna að maður sé mættur á Yalta-ráðstefnuna. Pant ekki vera Stalín, hugsa- ég með mér. HH: Getum við rætt um Sovétríkin? AM: Kannski eitthvað, við getum talað um það Rússland sem okkur snertir en ekki almennt. HH: Nú höfum við hér vestanheims lítið séð af hinum eiginiega sósíal-realisma, sem er hinn mikli bakgrunnur ykkar og ykkar verka, eru til einhver góð listaverk sem gerð voru undir merkjum þessarar stefnu? AM: Ég hef ekki trú á því að verk verði dæmd án samhengis við önnur, þá tíma sem umhverfir þau og þau líf sem eru upp- spretta þeirra. Þegar mynd er tekin út úr tíma sínum og stað er okkur illmögulegt að skilja hana. Til að skilja sósíal-realism- ann verður maður að skilja Sovétríkin, að gera sér mynd af þeim og hengja síðan hin umræddu verk inn í þá mynd. Því myndir eru aðeins lítill hluti af mun stærri atburð- um, eða þá stór hluti af smámunum, það skiptir ekki höfuðmáli. Hvemig dæmum við 't.d. nútímalistina hér i Ameríku? Víð getum alveg sagt hveijir eru góðir listamenn og hveijir ekki vegna þess að við vitum svo til allt um þetta tímabil, umhverfi þessarar list- ar, en út af fyrir sig og einangraða getum við ekki dæmt listamenn, í sjálfum sér eru þeir hvorki góðft- né slæmir, þeir eru bara alls ekki neitt. VK: Ég held að nú sé einmitt rétti tíminn til að kunna að meta sósíal-realismann, þessi póst-móderníski tími er örugglega bestur til þess fallinn. Því að mörgu leyti var hinn sovéski þjóðfélagsraunsæismi snemmbær póst-módemismi þar sem hann kom í kjölfarið á rússneska avant-gardinu. Það sama má líka segja um nazi-listina í Þýskalandi, hún kom upp strax á eftir Bau- haus. HH: Andbyltingarsinnuð list? VK: Nei, ekki alveg, því listasagan er aðeins saga listarinnar en ekki spumingar um fómir mannslífa. Þegar við skoðum t.d. fom-egypska list þá er okkur ljóst að þetta var óréttlátt og mannfjandlegt samfélag, Komar og Melamid: Yalta-ráðstefnan (Úr sagnfræðibók frá 1984) Þeir félagar umrita söguna ekki síður en sumir aðrir í sósíal-realismanum. Komar og Melamid: Upphaf hins sósíalska realisma, 1982-83. 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.