Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq

Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1988, Qupperneq 19

Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1988, Qupperneq 19
LESBÓK M O R G U N B L A Ð S 1 N S 23. JANUAR 1988 Oddný Björgvinsdóttir tók saman heildartekjur þess um 1,2 milljón- ir. Pyrirtæki velur land sem það telur áhugaverðast fyrir starfs- fólkið. Það eyðir um 50.000 dollurum til að kynna landið - gylla það sem mest. Um 200 manns fara í hvatningaferðina, sem kost- ar fyrirtækið um 400.000 dollara. Sú spuming hlýtur að vakna hvort þetta hafi borgað sig til að græða 1.2 milljónir. Og svarið er alltaf jákvætt. Hvatningaferðir efla já- kvæðan starfsanda í fyrirtækjum, auka víðsýni og stuðla að því að starfsmenn leggi sig betur fram. Besta Tekjulindin Hvatningaferðir era skipulagðar hópferðir fyrir hátekjufólk sem er vant lífsgæðum. Þetta fólk hefur náð sínum markmiðum og ferðin er hvatning til þess að ná þeim áfram. Farþegi sem er í tveggja til þriggja daga hvatningaferð skil- ar jafnmiklu eða meira til þjóðar- búsins og farþegi sem dvelur í landinu 2-3 vikur. í hvatningaferð- um er ekkert til sparað. Fyrirtæki sem sendir 200 manna hóp til ís- lands gæti allt í einu hugsað sér að gefa öllum konunum í hópnum loðskinnspelsa, íslenska silfur- muni, íslenskar ullarflíkur og svona mætti lengi telja. Glæsilegar tískusýningar era fastur liður í kvölddagskránni, þar sem þátttak- endur era óspart hvattir til að kaupa. Það era fleiri sem græða Hvatningaferðir - hvaðerþað? Mikið er nú rætt um að ísland eigi firamtíð fyrir sér sem ráðstefnuiand og til að taka á móti sérstökum hópum, svokölluðum „incentive tours", sem oft koma í tengslum við ráðstefnur. Þessi sérstæða tegund af ferðaþjónustu er enn svo ný á íslandi, að þýðing hugtaksins hefur varla náð að festast í íslensku máli. Talað hefur verið um „árangursferðir", „verðlaunaferðir" eða „hvatninga- ferðir". En síðasttalda hugtakið, „hvatningaferðir", nær trúlega best yfír þennan einstaka ferðaþjónustuþátt. En hvað eru hvatningaferðir og að hvaða leyti era þær frábrugðnar öðrum hópferðum? sem fyrirtæki fóra í vaxandi mæli að nota ferðalög sem hvatningu til að ná ákveðnum markmiðum. Um leið hófst nýr kafli í ferðaþjón- ustu, „hvatningaferðir". Strax árið 1960 skilaði þessi ferðaþjónustuþáttur um 50 millj- ónum Bandaríkjadala í Banda- ríkjunum. Hvatningaferðir skila þar núna einhversstaðar á milli 2-3,5 billjónum dollara. Þær era sú grein ferðaþjónustunnar sem hefur vaxið hvað hraðast og veltir mestum fjárhæðum. Allar þjóðir sem taka ferðaþjónustu alvarlega sem útflutningsgrein leggja nú ofurkapp á að ná hvatningaferðum frá fyrirtækjum. Ferðamálaráð í Ferðalag - Besta HVATNINGIN Hvatningaferðir era nýtískuleg- ar aðferðir stjómenda fyrirtækja til að ná viðskiptalegum markmið- um. Þeir umbuna starfsmönnum sínum sem hafa náð ákveðnum markmiðum, era söluhæstir, hafa náð bestri kynningu á vörategund- um o.fl. með einstakri upplifun á ferðalögum. Bandaríska fyrirtæk- ið, National Cash Register var greinilega framsýnt þegar það bauð ferðalag í verðlaun til sölu- hæstu starfsmanna sinna árið 1930. En það var fyrst um 1960 mörgum löndum era farin að gefa út sérhannaða bæklinga um hvatn- ingaferðir. í þeim er allt hið besta og sérstæðasta kynnt, sem hver þjóð býr yfir. Sérstakt tungumál er talað í þessum landkynningar- ritum sem höfðar til ákveðinna þátta um gæði, þjónustu og vöra- val. það beinist að háum gæða- flokki og munaði. Fátt virðist vera eins heillandi eða freistandi eins og ferðalög til framandi landa. Ferðalög fela í sér munað og Kfsstíl sem flestir vilja eiga kost á. Fyrirtæki nota margar leiðir til að láta starfsfólk sitt ná ákveðnum markmiðum. Oft um- buna þau með gjöfum eða gefa ákveðnar prósentur af sölu, en gyllandi ferðatilboð virðast heilla mest. GÓÐ LANDKYNNING Fyrirtækin eyða miklum pening- um í að kynna landið sem verður fyrir valinu, að gera það sem áhugaverðast — til þess að starfs- fólkið leggi sig fram um að ná markmiðinu — að komast til fyrir- heitna landsins. Tökum til dæmis fyrirtæki sem vill auka söluna um 3 milljónir dollara, sem eykur á hvatningahópum en ferðaskrif- stofur, flugfélög, hótel og matsölu- staðir. En það þýðir ekki að bjóða ann- að en glæsileg hótel, úrvals matsölustaði og fyrsta flokks þjón- ustu. Ekkert má fara úrskeiðis. Allt þarf að standast eins og ná- kvæm tímaklukka. Engar seinkan- ir á ferðum eða misheppnuð nautasteik! Allt þarf að vera með einstökum glæsibrag. Hvatningaferðir Tilíslands— ÓÞEKKT STÆRÐ Engar upplýsingar liggja fyrir um hvað margir hvatningahópar hafa komið til íslands. íslenskar ferðaskrifstofur hafa tekið á móti mörgum smærri hvatningahópum. Algengasta stærðin virðist vera um 30-40 manna hópar sem koma í helgarferðir. Ferðablaðið lenti í vandræðum með að fá upplýsingar um fjölda hvatningaferða til ís- lands, en ekkert yfirlit er til sem sýnir í hvaða tilgangi ferðamenn koma til landsins. Það er geysilega mikið atriði að vera með slíkar upplýsingar til að gera sér grein

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.