Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1988, Side 21
I
Reisu-
klúbburinn
Pólaris-Atlantik-Ferðamiðstöðin-
Saga. Fjórar ferðaskrifstofur í
samvinnu og harðri samkeppni
Samkeppni hefur margt
jákvætt í för með sér.
Hún leiðir óhjákvæmi-
lega — til úrvals (sem
getur verið sársaukafullt fyrir
þann sem verður undir í valinu)
— til fjölbreytni — til lægra vöru-
verðs og stöðugt oftar til góðrar
samvinnu milli samkeppnisaðila.
En margar sjálfstæðar einingar
sem koma fram sem sterk heild
í samningum og innkaupum, hafa
allar möguleika á að veita betri
þjónustu á markaðnum.
Reisuklúbburinn, félag fjögurra
ferðaskrifstofa (taldar upp hér að
ofan) er sannarlega allrar athygli
verður. Ferðablaðið kom við í
Kirkjustrætinu hjá Karli Sigur-
hjartarsyni, forstjóra Pólaris, sem
er í forsvari fyrir Reisuklúbbnum
og spurði: — Af hveiju samvinna
milli aðila sem hljóta að eiga í
harðri samkeppni?
Hagsmunir geta víða farið sam-
an þó samkeppni á markaðinum
sé hörð. Ferðaskrifstofur eru allt-
'af að beijast við samstæð vanda-
mál, ná hagstæðum samningum
um leiguflug, hagstæðu verði .á
sætum í áætlunarflugi, semja við
hótel, sumarhúsaeigendur, bíla-
leigur og fleira. Reynslan sýnir
að fólk ætti frekar að reyna að
finna sameiginlega fleti til að
starfa saman að, en að pukra
hver í sínu homi. Ferðaskrifstofur
spretta upp, margar starfa að
hinu sama, feta í spor hverrar
annarrar og knýja á sömu dyr.
En gagnkvæmt traust verður
að vera fyrir hendi, ef samvinna
á að takast hjá aðilum eins og
okkur sem eigum í harðri sam-
keppni um farþega. Við þekkj-
umst öll mjög vel og treystum
hvert öðru. Samvinna okkar hefur
þegar sparað okkur verulega fjár-
muni.
Tökum til dæmis ef tveir okkar
gera samning um 50 sæti hvor í
flugvél og annar selur ekki öll
sín, þá getur hinn tekið þau yfir.
Með þessu móti kemur betri sæta-
nýting og meira öryggi. Við erum
líka með miklu sterkari samnings-
aðstöðu að ná lægra verði á
ferðum, gistingu, skíðaferðum og
fleiru, fjórir saman heldur en ein
ferðaskrifstofa. Við gefum út
sameiginlega bæklinga um skíða-
ferðir, sumarhús, flug og bfl, en
Hundasleðaferð-
ir og borgarí-
sjakar
Grænland
- nýr áfangastaður fyrir ráðstefnur
og hvatningaferðir -
Með sex hótel, Græn-
landsflugið og SAS
á bak við sig, opnar
ný markaðsdeild
innan grænlensku ferðaskrifstof-
unnar - Ráðstefnuþjónusta
Grænlands -. Hlutverk hennar er
að markaðsssetja Grænland sem
nýjan og spennandi áfangastað
fýrir ráðstefnur og/eða hvatn-
ingaferðir.
Grænlensku hótelin hýsa um
300 manns, en reiknað er með
að sú tala eigi eftir að tvöfaldast
á næstu árum. Þeir geta því að-
eins tekið á móti litlum hópum
og æskiiegasta hópstærðin er frá
5—60 manns.
Landið býður upp á ráðstefnu-
pakkaferðir á heimskautasvæði,
sem er landfræðilega mjög heill-
andi og gefur sex valkosti, frá
Narsarsuaq í suðri til Jakobshavn
í norðri. Ráðstefnugestir geta ein-
beitt sér í kyrrð og friði við sín
viðfangsefni, en hafa jafnframt
möguleika á sérstæðri upplifun.
Ævintýraferðimar hljóða upp á
hunda-sleðaferðir; siglingar á
milli ísjakanna; sérstæðar veiðar;
einstæða upplifun og litasamspil
inni í djúpum, heillandi ijörðum.
Grænland sem ráðstefnuland
verður samt aðallega markaðssett
af skrifstofum SAS út um alian
heim.
Eitt kemur örugglega aldrei til
með að vanta á grænlenskri ráð-
stefnu - ísmola í vínið.
........................i|
Madeira. Tíu vikur
evrópuferðir <~:
Klapparstíg 25-27 101 Reykjavik
■S 628181
Forstjórar ferðaskrifstofanna funda
Morgunblaðið/Bjami
gefum líka út sérstaka bæklinga
hver og einn. Öll seljum við Spán-
arferðir og erum með sameigin-
legt leiguflug þangað, en
sérhæfum okkur hvert á sínu
svæði. Atlantik er með Majorka,
Ferðamiðstöðin með Benidorm,
Saga með Costa del Sol, Pólaris
með Majorka og Ibiza.
Núna erum við að vinna saman
að því að tölvuvæða allt bókhald
hjá okkur og bókanir sem hingað
til hefur verið unnið í höndum.
Þannig spörum við okkur starfs-
fólk og verðum með öruggari og
nákvæmari vinnubrögð. Allt þetta
hlýtur að leiða til lægra vömverðs
og vera til hagsbóta fyrir okkar
viðskiptavini, segir Karl Sigur-
hjartarson, forstjóri ferðaskrif-
stofunnar Pólaris. í næstu viku
skreppum við í skíðaferð með
Reisuklúbbnum.
semer
'IDIR m.
Safnkort Innanlandsflugs Flugleiða
er fyrir þá sem þurfa oft
að fljúga innanlands.
Hver flugferð til eða frá
Reykjavík á fullu fargjaldi gefur
ákveðinn fjölda punkta. T.d. gefur
flug til Egilsstaðal3 punkta og til Akureyrar 8.
Ef þú nærð 100 punktum á 4 mánuðum færðu
fría ferð fram og til baka á hvaða innaníandsleið
Flugleiða sem er. Þannig verður t.d.fimmta hver ferð
frí, sem flogin er fram og til baka milli Reykjavíkur
og Egilsstaða, Neskaupstaðar eða Hafnar.
Þú færð Safnkort og leiðbeiningar um
notkun þess hjá næstu söluskrifstofu Flugleiða,
ferðaskrifstofu eða
umboðsmanni.
EIÐIR
wm
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23. JANÚAR 1988 21