Lesbók Morgunblaðsins - 02.12.1989, Side 11
LÖG
HÁTÍÐLEG
AÐYENTA
í LONDON
Aðventan í London er hátíðleg. Rétt fyrir jól er ekki mikið um
ferðamenn í stórborginni. Bretar fjölmenna í jólainnkaup og
þeirra verslunarhættir eru rólegri en okkar. Og aðventutónleikar
og jólasöngvar á kvöldin koma manni í hátíðaskap.
í Oxfordstræti er jólalegt.
Gluggaskreytingar víða fallegar,
til dæmis hjá Selfrigdes. Gaman
að sjá hesta- og póstkerruna frá
Harrods aka um strætin, hlaðna
jólapökkum. Ef tilgangur ferðar
er að gera jólainnkaup látið þá
ekki stórborgarys eða mannþröng
þreyta ykkur. Veljið góða stór-
verslun og framvísið öllum „tax
free“-miðunum í einu. Njótið þess
að setjast niður á milli, hlusta á
falleg jólalög yfir bjórglasi eða
kaffibolla. Litlu markaðarnir og
búðirnar í Covent Garden eru vin-
sælir verslunarstaðir hjá Bretum
fyrir jólin. í Bretlandi tíðast ekki
að gefa stórar gjafir, aðeins eitt-
hvað lítið og persónulegt, sem
auðvelt er að finna á mörkuðum.
Jólahughrifin eru mest eftir
lokunartíma verslana. Þá safnast
fólk með kertaljós gjarnan saman
fyrir utan verslanir eða veitinga-
hús og syngur jólalög. í mörgum
kirkjum standa söfnuðir fyrir að-
ventutónleikum, með ódýran eða
frían aðgang. Til 21. desember
eru ljölbreyttir jólatónleikar í tón-
leikahöllum Barbican, Queen
Elizabeth, Royal Festival og Wig-
more. Sjöunda desember kl. 18
er kveikt á norska jólatrénu á
Trafalgar-torgi. Á hveiju kvöldi
fram á aðfangadag eru sungin
jólalög við tréð frá kl.16-22.
Á aðventu fara Bretar mikið
út að borða og jólastemmning
Glóðarvín skenkt á þýskum
jólamarkaði.
bjór eða glóðarvíni. Ríkulegar
jólaskreytingar setja líka svip á
göngu- og verslunargötuna Zeil.
Aðventudagskrá í tónleikahöll-
inni „Alte Oper“: 4.12. The Dubl-
iners. 10.12. Bolschoi don Kosak-
en með söng, dans og hljóðfæra-
slátt. 17.12. Fílharmóníusveitin
Rheinland-Pfalz. Stjórnandi Ye-
hudi Menuhin. 20. desember er
jóladagskrá á vegum Circus Ron-
calli. Stjórnandi Bernhard Paul.
Fyrir þá sem vilja stunda
heilsurækt fyrir eða yfir hátíðirn-
ar, eru bæirnir Wiesbaden og Bad
Homburg í örstuttu lestarfæri frá
Frankfurt. Báðir eru þekktir fyrir
heilsuböð, en líka fyrir fræg
spilavíti í tengslum við heilsu-
ræktina. í Bad Homburg er sund-
laugargarðurinn „Taunus
Therme“, sem geymir gufuböð,
sólböð, veitingastaði og bari við
sundlaugarbarminn. Þar má
dvelja hluta úr degi eða yfir helgi.
Upplýsingar: Taunus Therme,
6380 Bad Homburg vor der Höhe.
Sími: 06172-4878. Um þriggja
tíma lestarferð er til hinnar fögru
Augsborgar, sem er fræg fyrir
jólamarkaði.
Jólaferð í
breskan kastala
-með íslenskum kastalaherra!
Jólahald í kastala frá tímabili Viktoríu drottningar. í Torquay,
„Rívíeru" Breta. íslenskur kastalaherra. Konunglegir réttir í
boði þjá yfirkokk, sem kemur úr eldhúsi Buckingham-hallar.
Forvitnileg jólaferð, sem auðvitað kostar sitt.
Magnús Steindórs-
son, hótelstjóri og eig-
andi Manor-herra-
garðsins í Torquay býð-
ur upp á jóladagskrá
fyrir Islendinga. Lagt
er upp í ferðina 22. des-
ember og heim aftur
28. En að sjálfsögðu
má framlengja dvölina
yfir áramót. Hin eigin-
lega jóladagskrá hefst
síðdegis á aðfangadag.
Þá setjast hallargestir
við ijómatedrykkju að
hætti íbúa Devonskíris.
Kl. 6.30 sameinast
gestir og starfsfólk í
fordrykk fyrir kvöld-
verð. Á aðfangadags-
kvöld verður lifandi tón-
list og dansað fram eft-
ir jólanóttu. Á jóladags-
morgun kemur jóla-
sveinninn með gjafir
handa öllum að bresk-
um sið. Jólatedrykkja
síðdegis með tilheyr-
and-i skemmtiatriðum
fyrir alla aldurshópa. greskur
Ánnan í jólum er boðið
upp á skoðunarferð um nágrennið.
Manor House-hótelið stendur á
smáhæð í miðjum Torquay-bæ,
sem er svipaður Reykjavík að
stærð, með 110 þúsund íbúa.
Gott útsýni er frá hótelinu yfir
Torquay-flóa og bæinn. Hótel-
herbergi með sjávarútsýni eru
3.600 kr. dýrari á mann en önn-
ur. Forvitnilegt er, að hótelið var
valið sem sögusvið á aldarafmæli
Agöthu Christie á næsta ári. Mik-
ill íburður er innan dyra, til dæm-
is himinsængur í herbergjum. Líkt
og að ganga inn i gamla tímann,
með nútíma þægindum, sundlaug,
gufubaði og nuddi. 10-12 golf-
vellir eru í nágrenninu. í mið-
kastali ineð íslenskum andblæ.
bæinn er 10 mínútna gangur. Þar
finnast sömu stórverslanir og í
London, en mun ódýrari en í Ox-
fordstræti! Fjöldi af góðum veit-
ingahúsum og bjórkrám, enda er
Torquay „Rívíera" Breta. Stutt
að aka út í friðsæla sveit.
Upplýsingar: Flug og gisting,
með hálfu fæði í 2 daga og fullu
fæði yfir hátíðina kostar 50.200
kr. á mann í tveggja manna her-
bergi. Frá Heathrow-flugvelli
ganga rútur til Torquay 8 sinnum
á dag. Einnig má taka lest inn í
London og frá Paddington-stöð
til Torquay (3 tímar). En Magnús
sér um að sækja íslendingana til
Heathrow, ef þeir fjölmenna.
ríkir á krám og í veitingahúsum.
Fylltur kalkúnn er jólamatur
Breta. Kallari í fullum skrúða
heimsækir mörg veitingahús og
les upp gamansamar fréttir, en
hann var þekktur úr götulífi Lund-
úna fyrir tíma dagblaðanna. Jóla-
leikrit fjölskyldunnar er „Aladdín“
(18. des. ’89 til 27. jan. ’90). Um
jólin er alltaf þekkt ævintýri svið-
sett, þar sem kvenleikari leikur
karlhetju og karlmaður kven-
stjörnu. Skop og ádeila á breskt
þjóðlíf blandast inn í og „pantom-
ine“ er jafn vinsælt fyrir börn og
fullorðna. Oft er erfitt að fá miða
á tónleika eða í leikhús, en miðar
eru yfirleitt fáanlegir fyrir sýn-
ingu við inngang eða í söluturn-
um. Kannið alltaf opinbera verðið
áður en þið kaupið.
Aðventa
í Frankfurt
- með jólamarkaði og
gióðarvíni á Römer-torgi
Aðventa í þýskum borgum einkennist af fjörleg-
um útimörkuðum og ríkulegum jólaskreytingum.
Frankfurt er þægileg verslunarborg fyrir jólainn-
kaup. Bæði þar og í nágrenninu ríkir glaðvær
aðventublær.
Jólamarkaðurinn er vinsæll • á Römer-torgi. Þegar
búið er að reisa litlu markaðshúsin á torginu og viðeig-
andi jólaskreytingar komnar upp — og ilmur frá brennd-
um möndlum og glóðarvíni berst að vitum vegfarenda
— þá ríkja jólahughrif í Frankfurt. Römer-torg með
sínum sérkennilegu gömlu húsum, er ævintýri líkast í
desember. Þar er vinsælt að hvíla sig frá jólainnkaupum
— fá sér heita kryddpylsu og skola henni niður með
Útbúið á jólamarkaðinn.
Áhrifamestir eru jólatónleikarnir.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 2. DESEMBER 1989 1 1