Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1990, Page 12
Citroen BX TZS
- mjúkur og stöðugur á vegi -
Citroen af gerðinni BX hef-
ur verið hér á markaði í
allmörg ár og átt sína
aðdáendur. Hér er um að
ræða meðalstóran bíl sem
fengist hefur í mörgum
gerðum og með mismun-
andi vélarstærð og á tals-
vert miklu verðbili eða allt eins og hver vill
hafa. Fremur litlar breytingar hafa verið á
BX síðustu árin Frakkar hafa þó alltaf ver-
ið með hugann við það og framkvæmt ýmis
konar minni háttar breytingar. Við skoðum
í dag Citroen BX TZS eins og hann heitir
nú, en ekki TRS eins og var. Globus flytur
sem kunnugt er Citroen inn og mátti þola
samdrátt eins og önnur bflaumboð hérlend-
is. Fluttir voru inn 49 bílar af Citroen gerð
á síðasta ári á móti 144 árið 1988 en mark-
aðshlutdeild minnkaði þó ekki mikið.
STÍLHREINN
Citroen BX er stflhreinn og bara fallegur
bfll. Hann hefur ennþá sinn svip og sérein-
kenni sín, hefur ekki verið Iátinn falla í
sama far og of margir bflar að mínu viti
með hinum ávölu og mjúku línum. BX er
enn nokkuð kantaður, sérstaklega afturend-
inn en framendinn er þó þannig að hann
virðist kljúfa loftið mjúklega. Hann er slétt-
ur og felldur á hliðum og stuðaralínan nær
umhverfis bflinn allan og gefur honum
skemmtilegan svip.
Citroen BX af gerðinni TZS er vel búinn
bfll. Vélin er nærri 1600 rúmsentimetrar
og gefur 94 hestöfl. Bfllinn er fimm gíra
og er búinn hinni mjúku fjöðrun frá Citroen
sem gerir aksturinn skemmtilegan. BX er
búinn hliðarspeglum beggja megin, hann
er fimm dyra, með þurrku og rafmagn í
afturrúðu, er búinn Ioftneti og lögnum fyrir
útvarp, klukku, lituðu gleri og hann er
vökvastýrður. Rúður í framhurðum eru raf-
drifnar svo og læsingar og þær eru einnig
með fjarstýribúnaði, þ.e. hægt er að opna
bílinn áður en komið er að honum sem eru
skemmtileg þægindi. Með þessum búnaði
kostar bfllinn í dag liðlega 1.200 þúsund
krónur.
Fyrir utan þennan fasta búnað geta menn
síðan bætt talsvert miklu við, svo sem sól-
lúgu, álfelgum, sflsalistum og fleiru en þá
hefur verðið líka hækkað um meira en 100
þúsund krónur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Citroen BX TZS er stílhreinn og fallegur bíll. Innfelda myndin sýnir mælaborð, sem er vel úr garði gert og mörg þægileg og
lítil hólf er að finna í bílnum.
Skottið opnast vel.
Stuðaralínan umhverfís bílinn gefur honum skemmtilegan svip.
GOTT RYMI - GOTT UTSYNI
Þegar sest er upp í ókunnugan bíl ef svo
má að orði komast er höfuðatriði að bflstjóri
komi sér þannig fyrir að honum líði sem
best við aksturinn. Þetta tekur dálítinn tíma
í BX en hann er líka verulega þægilegur í
akstri þegar bflstjóri hefur fundið sig. Fram-
sætin eru góð og þau eru auðveldlega stillan-
leg eins og hverjum ökumanni hæfir. Sama
er að segja um stjórntæki í mælaborði, þar
er allt við hendina og mælar auðveldir af-
lestrar. Halli á sjálfu stýrinu er það eina
sem setja má út á - stýrið mætti vera bratt-
ara eða nær bflstjóra.
Rými er gott í BX og gildir það bæði um
framsæti og aftursæti. Sérstaklega má
hæla bflnum fyrir hve gott útsýni er úr aftur-
sætum, jafnvel þótt menn séu ekki háir í
loftinu. Skottrými er sæmilegt og mjög
gott er að athafna sig með vaming og tösk-
ur - það opnast mjög vel.
Sem fyrr segir er fjöðrun í Citroen BX
FLUTNINGAR
OG MENGUN
Umhverfismál og meng-
un eru að verða sífellt
áhyggjuefni þegar bílar
eru annars vegar. í
mörgum löndum eru
hafnar hvers konar að-
gerðir til að draga úr
mengun af bílaumferð.
Reynt er að takmarka umferð, gera bílana
þannig úr garði að útblástur þeirra sé ekki
skaðlegur og ef la almenningssamgöngur til
að draga úr umferð einkabfla. Allt þetta
hlýtur einnig að ná hingað til lands fyrr eða
síðar og hafa menn reyndar þegar leitt
hugann að því.
Með tölvutækni má sjá fyrir sér ýmsa
möguleika sem gætu hjálpað til við að draga
úr mengun. Þannig hafa flutningasérfræð-
ingar haldið fram að um næstu aldamót
muni mengun t.d. frá vöruflutningabílum
vera mun minni en í dag. Þeir muni verða
nýttir mun betur og enginn slíkur bíll verði
á ferðinni nema fullhlaðinn og þar verði
tölvur og gervitungl notuð til að stjóma
málum.
Hvort sem það verður ofan á eða ekki
er ljóst að menn hugsa sífellt meira um
þessi mál. Talið er að flutningar með vöru-
bílum séu hagkvæmir innan ákveðinna
marka, þ.e. innan 400 km en séu leiðimar
lengri taki lestin við. Þessi viðmiðun er þó
ekki óræk því lestarkerfi sumra landa myndi
ekki geta annað flutningum að óbreyttu
væri þessi regla tekin upp. I Sviss hafa
menn haft' vaxandi áhyggjur af mengun af
völdum bflaumferðar og sjá sumir eftir því
nú að göng um Alpana skyldu ekki aðeins
hafa verið hönnuð fyrir jámbrautarumferð.
Ein aðferð þeirra til að draga úr akstri vöru-
flutningabíla er að skella þeim á járnbraut-
arvagna sé öxulþungi þeirra yfir 28 tonn.
jt
í Sviss eru ýmsar aðgerðir uppi til að
draga úr mengun enda gífúrleg umferð
um landið. Séu vöruflutningabílar yfír
28 tonna öxulþyngd verða þeir að nota
lestina til að fara þar um á leið sinni
til landa í Norður- eða Suður-Evrópu.
mjúk og þá má ekki síður hæla bílnum fyr-
ir hve skemmtilegur hann er í stýri. Það
er mjög nákvæmt og á það sinn stóra þátt
í góðum aksturseiginleikum bílsins. Hann
er einkar stöðugur á vegi. Snjór og hálka
var hér á suðvesturhorninu þegar bíllinn var
prófaður og stóð hann sig þar mjög vel.
Fjöðrun í BX er með þremur hæðarstilling-
um. Mest er miðjustillingin notuð en sú
hæsta, þegar bíllinn nær um 25 cm hæð
undir lægsta punkt er til dæmis notuð í
snjó þegar menn em að bjarga sér út úr
vandræðum. Fjöðmn er þá hins vegar engin
orðin.
FULLGILDUR KEPPINAUTUR
Enginn vafi er á því að BX á enn að
geta haslað sér völl meðal Citroen aðdáenda
og hann á líka að geta höfðað til þeirra sem
ekki hafa hugsað um Citroen þegar bíla-
kaup em annars vegar. Gömul saga um
ryð, slæma endingu eða lélega þjónustu er
liðin tíð og óhætt er að Iíta á Citroen sem
fullgildan keppinaut við sambærilega bíla
hvort heldur er evrópska eða japanska. Þetta
á ekki síst við um fjölbreýtnina.
Citroen BX hefur verið fáanlegur í all-
mörgum gerðum, 14, 16 og 19 sem vísa til
vélarstærðanna 1400, 1600 eða 1900 rúms-
entimetra og hestöflin em frá rúmum 70 í
160 þar sem um er að ræða GTi 16 ventla.
Er verðið þá farið að nálgast tvær milljónir
enda má telja það bíl í flokki lúxusbíla.
Jafnframt má minna á BX bílinn með al-
drifi sem kynntur hefur verið hér í bíla-
þætti. Hann er góður kostur fyrir um 1.500
til 1.600 þúsund krónur. jt
12