Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1990, Qupperneq 14
Saga:
Ferðir til Portúgal
og Marokkó
„Ferðaskrifstofan Saga hefur ákveðið að bjóða upp á ferðir til
Portúgal, Marokkó og Rússlands í sumar, auk okkar vei\julegu
ferða til Spánar og Kýpur, svo eitthvað sé nefnt,“ sagði Orn
Steinsen, forstjóri ferðaskrifstofimnar.
Öm sagði að leiguflug ferða-
skrifstofunnar til Costa del Sol á
Spáni hefði ávallt verið vinsælast.
„Eg er hóflega bjartsýnn fyrir
sumarið. Fólk fjölmennti til okkar
þegar við kynntum áætlun okkar
um síðustu helgi og á næstunni
ætti að skýrast hversu margir
láta verða af því að panta ferðir.
í fyrra bættum við nýjum áfanga-
stað, Kýpur, á áætlunina og fólk
hefur tekið þeirri nýbreytni vel. I
sumar gefst fjölskyldufólki kostur
á dvöl í sumarhúsum í Loohorst
í Hollandi og ég á von á að það
verði vinsælt.“
Á vinsælasta áfangastað Sögu,
Costa del Sol, kostar dvölin fjög-
urra manna fjölskyldu rúmlega
40 þúsund krónur á mann að
meðaltali. „Þessi hækkun nemur
17-19% miðað við verðskrá í ágúst
síðastliðnum. Frá janúar í fyrra
er hækkunin hins vegar 33-36%.
Þessar hækkanir eru vegna breyt-
inga á gengi og að einhverjum
hluta vegna kostnaðarhækkana
erlendis,“ sagði Örn Steinsen.
Hinn hagsýni ferðamaður
Á teig á Bermuda. Þar er mjög mishæðótt og golfvellirnir eru víða lagðir í frábærlega fallegt lands-
lag. Hafið er allsstaðar nærri og oft er hafgolan sterk.
Golf á Bermuda
í góðu formi
Þótt stundum sé talað um Bermuda-eyjar er það rangt, því eyjan
er svo til alveg í einu lagi; örmjótt sund skilur þó að lítinn hluta
hennar. Þangað er beint flug frá New York, Philadelphia eða
Baltimore og frá þessum stöðum tekur flugið innan við tvo tíma.
Fyrr á öldinni var Bermuda staður þar sem fína og ríka fólkið
kom saman til að spila fjárhættuspil og enn sjást þess glögg
merki, að ensk áhrif hafa verið mikil og sést það ekki sízt á
golfvöllunum. En túristarnir eru ekki lengur allir á lystisnekkj-
um, nú leggur hvaða Meðaljón sem vera skal leið sína þangað í
fríinu - og umfram allt til að leika golf.
Til þess er aðstaðan góð að
öllu leyti. Að vetrarlagi er hitafar-
ið eins og bezt verður á kosið til
golfleiks. Allt um kring er græn-
blár Golfstraumurinn á leið til
íslands, sólin skín flesta daga, en
hafgolan getur orðið nokkuð sterk
eins og gengur og gerist á eyjum.
Náttúrufegurð er við brugðið á
Bermunda. Eyjan er ákafiega
vogskorin, háir og skógi vaxnir
höfðar skaga fram og skapa
ákjósanleg skilyrði fyrir golfvelli,
sem eru í senn unaðslega fagrir
og ákaflega vandleiknir. Sem
sagt: Nákvæmnisvellir.
Samtals eru 7 golfvellir á Ber-
munda, allir 18 holur nema einn,
Ocean View Golf and CC., sem
er 9 holu völlur. Einn golfvallanna.
á Bermunda, Princess Golf Club,
hefur þá sérstöðu, að allir holum-
ar eru par-3, en engu að síður
þykir það kreijandi völlur um
nákvæmni og hann er í senn til-
breytingarríkur og fallegur. Þess-
'konar vellir eru sjaldgæfir, en
skemmtiieg lausn þar sem land-
rými er lítið. Þijá vallanna hefur
sá frægi golfvallaarkitekt, Robert
Trent Jones teiknað og þeir em
það sem heitir á ensku „Champi-
onship course“, sem mætti kalla
keppnisvelli fyrir meistara. Þá er
einungis átt við lengdina og þó
er hún ekki mjög mikil á alþjóðleg-
an mælikvarða.
Fyrstan í þeim flokki má telja
Mid Ocean Club, sem jafnframt
er frá gamalli tíð frægasti völlur-
inn á Bermunda, lengdin af öft-
ustu teigum 5.900 metar, parið
71. Þetta þykir ákaflega brezkur
völlur, lagður í fagurt landslag
Trend Pacific’s-heilsuræktartaskan
kostar um 5.000 kr.
Nýlega er komin á mark-
aðinn ferðataska, sem inni-
heldur margskonar lyftin-
gatæki, sippuband og
fleira fyrir áhugafólk um
heilsurækt. „Heilsuræktar-
taskan“ (vegur rúmlega 3
kíló) bætist við „stresstösk-
una“, sem er ómissandi á
ferðalögum og „ferðatölvu-tösk-
una“. Eins gott að vera ekki með
allar þessar töskur í handfarangri!
Einnig er mælt með að áhuga-
fólk um heilsurækt hafi „þjálfar-
ann með sér á snældu“! Hægt er
að fá snældu, sem segir til um
þjálfun þeirra vöðva, sem eru í
mestri kyrrstöðu á ferðalögum!
Annars er kannski ekki þörf á
þessu í farángúrinn, því flest
stærri hótel eru komin með heilsu-
ræktarsali - og ef þú hefur ekki
pláss fyrir íþróttagallann, þá
bjóða mörg upp á úrval af léttum
æfingarfatnaði fyrir gestina.
„Heilsuræktartaskan" ber
nafnið „Trend Pacific’s compact“
og er fáanleg hjá Hammacher
Schlemmer í New York (800-
543-3366).
Eftirlæti ljósmyndara, en jafh-
framt hrollvekja kylfínga er
þessi par-3 hola á Mid Ocean-
vellinum. Flötin er fammi á
klettahöfða, sem er jafn hár tíu
hæða húsi.
eins og allir hinir og ein markverð-
asta holan þykir vera ein örstutt
par-3 hola, sem minnir mjög á
fræga holu í North Berwick og
heitir eftir henni.
KANNSKI ertu búinn að
strengja þess heit á nýju
ári „að vera í góðu
formi“. En hvernig ætlar
þú að halda það heit, ef
þú ert mikið á ferðalög-
um? Freistandi matsölu-
staðir og viðskipta-
hádegisverðir. Mikil seta
í flugvélum, bílum, lest-
um og fundarseta. En það
er séð fyrir öllu - líka
hugsanlegri offítu á
ferðamönnum!
Ferðamálaár Evrópu 1990
7. júlí) tileinkuð tónlistarfólki
undir 26 ára aldri. 4) í Calder-
dale í Norður-Englandi er ætlað
að koma upp fræðslumiðstöð í
ferðaþjónustu fyrir skólafólk, en
bærinn er einstætt sambland af
sérstæðum byggingarstíl, iðnað-
arhverfum og umhverfi, sem er
einkar hagstætt til rannsóknar-
ferða af þessu tagi. Fræðslumið-
stöðin verður starfrækt í fyrsta
skipti í sumar. 5) Samkeppni í
leiklist í Delfí í Grikklandi. Þátt-
tökuþjóðum er boðið að senda
leikhópa til Delfí, til að setja á
svið gamla gríska harm- eða
gamanleiki. Leiklistarkeppnin
stendur í 15 daga, frá 20. ágúst
til 5. september.
Ferðamál eru í brennidepli í Evrópu þetta ár, en Evrópubanda-
lagið ákvað í upphafí árs 1989 að tilnefha 1990 „Ferðamálaár
Evrópu“. í yfírlýsingu frá bandalaginu segir: „Þetta er gert
með tilliti til hinna geysivíðtæku og jákvæðu áhrifa sem ferða-
þjónusta getur haft á einstakar þjóðir og með tilliti til þess að
öll landamæri verða íjarlægð í Evrópu árið 1992.“ EFTA-löndun-
um var boðin þátttaka í maí og Island er aðili að ferðamálaárinu.
Markmið ársins er að beina
athyglinni, að mikilvægi ferða-
þjónustu,. með viðburðum og
dagskrám, sem tengjast ferða-
mönnum — efla vitund Evr-
ópubúa um „meginland án landa-
mæra“ til þess að þeir skynji
hugtakið „Evrópa fólksins“ —
stuðla að aukinni þekkingu með-
al Evrópubúa, einkum unga
fólksins, á menningu og lífsstíl
einstakra Evrópuþjóða — vinna
að betri dreifingu á ferðalögum
yfir árstíðir og staði með tilliti
til aukinnar umhverfisverndar. Á
ferðamálaárinu á þannig að þróa
nýjar leiðir og leggja aukna
áherslu á ferðaþjónustu, sem er
undirstaða meira en 5% þjóðar-
tekna hjá nokkrum þjóðum Evr-
ópubandalagsins — atvinnu-
grein, sem búist er við að verði
enn öflugri í lok aldarinnar.
Viðburðir í tengslum við
ferðamálaárið
1) í Vestur-Þýskalandi er boð-
ið upp á pakkaferðir fyrir skóla-
fólk og unglinga, sem vilja kynna
sér umhverfisvernd. Dvalist
verður í farfuglaheimilum, sem
eru valin fyrir verkefnið. Þátt-
takendur taka þátt í rannsóknar-
ferðum, umræðuhópum og hafa
aðgang að fræðsluefni. 2) írland
kynnir sig sem „leikvöllur Evr-
ópu“ þar sem ferðamönnum, sem
eru meðvitaðir um þátt umhverf-
is á heilsufar, er boðið upp á
afþreyingu í rólegu, hreinu og
fögru umhverfi. Meðal nýjunga
eru fornleifafræði-, handiðnað-
ar-, menningar- eða bókmennta-
ferðir.
3) í Boumemouth í Englandi
verður tónleikahátíð (23.júní til
Búist til veiða fyrir framan írskan kastala, á „leikvelli
Evrópu".
1 /i