Lesbók Morgunblaðsins - 30.06.1990, Síða 15
hægt í að nota minni vörn annars
brennið þið aðeins!
Hvar eruð þið í litakerfinu?
Næstum allir vilja verða sól-
brúnir. En það eru ekki allir svo
heppnir að þurfa aðeins að stinga
nefinu í sólina til að verða brúnir!
Flest okkar þurfa mikinn tíma (og
mikla fyrirhöfn) til að öðlast hinn
eftirsótta húðlit. Við vitum að
húð- og hárlitur okkar sýnir hvort
við verðum auðveldlega brún en
augnlitur hefur líka mikið að
segja. Litakortið á að sýna hvað
sterka vörn þið þurfið til að verða
hraustlega gulbrún í sumar ....
Verið ekki með ilmvatn í sól-
inni! Sóliri getur aðskilið efni, sem
orsaka húðbruna eða ofnæmi.
Verið alltaf með krem sem loka
alveg fyrir sól „sunblock" á við-
kvæmum líkamshlutum — nefi,
eyrnasneplum, öxlum og bijóst-
vörtum. Skærlituð slík krem eru
skemmtileg.
Sólbruni
Ef þið sólbrennið: * * Berið á
ykkur kalamín (blöndu af sinkox-
og járnoxíði) eða krem sem inni-
heldur „aloe“ og að sjálfsögðu
„eftir sól“. Kælið líkamann niður.
Veljið ykkur inn í eitthvað kalt
og rakt og haldið ykkur frá sól,
þangað til þið jafnið ykkur. Ef
einkennin halda áfram, ráðgist
þá við lækni.
Ofhitun líkamans orsakar sól-
sting! Þið verðið þreytt, svitnið
mikið og fáið jafnvel krampa.
Drekkið þá mikið og borðið nær-
Mann- gerð Augnlitur Húðlitur Hárlitur Viðbrögð v/sólböðum Sólvörn
1 Móleit, græn eða blá Mjögps eða freknótt Ljós, Ijósrauð- hærð eða rauðhærð Mjög viðkvæm fyrir skaðlegum sólargeislum. Verður ekki brún,brennur yfirleitt Byrjið með vörn 15 eða meira, en aldrei lægra en númerlO. Athugið: Meðhöndlið bömog ungabörn alltaf sam- kvæmt þessu!
2 Blá eða græn Ljós Ljós eða brún Aðeins minna viðkvæm en númer 1 og gæti brúnkast smátt og smátt Byijið með vörn 15 og færið ykkur smám saman niðurí 8-10. Farið aldrei niður fyrir vöm 6.
3 Yfirleitt brún Ljós Skolhærður eða brúnn Líkleg tii að brenna fljótt, ei brúnkast auð- veldlega Byijið með vörn 10, smám saman niður í vörn 8 og 6.
4 Brún Gulbrúnn Brúnn eða svartur Brúnkast auð- veldlega og brennur sjaldan Haldið ykkur við vöm 6 þartilþið eruð mjög sólbrún, þá vöm 4.
5 Brún Brún eða svört Brúnn eða svartur Mikið magn af melantíni í húðinni orsakar að þið brennið ekki. Hafíð næga náttúrlega vöm og þurfið ekki sólkrem, en haldið samt húðinni rakri.
Sólbaðsreglur ferðamannsins
— Farið vel yfir „hvað á að
gera - og hvað ekki“, áður en
þið stefnið til sólarlanda. - Veljið
sólkrem sem hæfir ykkar litar-
hætti - til að tryggja að þið
brennið ekki í sólinni!
Stefnið í að verða gulbrún!
Litaraft sem er miklu fallegra og
hraustlegra en dökkrauðbrún eins
og indíánar og hrukkótt að auki!
Sparið ekki sólkremið! Berið vel
á ykkur 5 mínútum áður en þið
farið í sundföt. Berið á ykkur aft-
ur og aftur, einkum ef þið hreyfið
ykkur mikið.
Notið vatnsþolin sólkrem, ef þið
farið í sund! En berið samt alltaf
á ykkur, eftir að hafa bleytt ykk-
ur - betra að vera öruggur.
Verið ekki í sólbaði, þegar sólin
er hæst á lofti og sterkust - milli
kl. 11 f.h. og 2 e.h. Hvers vegna
ekki að njóta þá hádegisverðar í
skugganum? Og munið að drekka
nóg af vatni!
Farið eftir ástralska málshætt-
inum: „smeygja, skella, srnella",
þegar þið eruð í skoðunarferðum.
Smeygið ykkur í bol, skellið á
ykkur hatti og smellið á ykkur
sólkremi!
Álítið ekki að skugginn skýli
ykkur frá sól! Sólargeislar
streyma frá vatni, sandi og bygg-
ingum og endurkastast inn í
skuggann. Verið viss um að vera
alltaf með sólkrem!
Breytið oft um stellingar í sól-
baði. Ef þið sofnið og sólin nær
að skína alltaf á sama stað, er
hætta á sólbruna.
ingarríkt, saltað fæði til að vinna
upp vökva- og saltmissi.
Sólarofnæmi brýst fram ef sól-
in hefur áhrif á efnaskipti í húð-
inni. Reynið þá sólarofnæmiskrem
t.d. „Sufi Allergy Lotion“ frá Piz
Buin.
Hættumerki
Húðkrabbamein er hættuleg-
asta afleiðing sólbaða. Rannsókn-
ir frá 1984 sýna, að af 3.000
nýjum tilfellum af illkynjuðu húð-
krabbameini voru 1.000 dánartil-
felli. En húðkrabbamein er lækn-
anlegt, ef það greinist nógu fljótt.
- Hafið auga með öllum fæðing-
arblettum eða dökkum líkams-
blettum. - Ef eftirfarandi spurn-
ingar eru jákvæðar, leitið þá strax
til læknis!
* Eruð þið með kláða eftir sólböð?
* Breytast húðblettir eða hlaupa
upp?
* Myndast mismunandi brúnir og
svartir húðblettir?
* Er húðin þrútin eða bólgin?
* Blæðir eða myndast hörð
skorpa á húðinni?
Prófessor Rona McKie við Glas-
gow-háskóla talar um þessa
áhættuhópa: Fólk Ijóst yfirlitum
/ bláeygt fólk / fólk og börn sem
eru mikið í sólbaði aðeins 2 vikur
á ári.
Gætið ykkar!
Bætið aldrei upp sólbrúnku eða
sólið ykkur fyrirfram á sólbekkj-
um! Þeir eru flestir með hættulega
UVA-geislun, sem orsakar hrukk-
ur og jafnvel húðkrabbamein.
Þýtt og endursagt eftir
O.Sv.B.
F erðanýjungar
kynntar á Rútudegi
Hinn árlegi Rútudagur var
haldinn 9. júní sl. Milli 7-8.000
manns komu í heimsókn, aðal-
lega fjölskyldufólk með börn.
BSÍ stóð myndarlega fyrir deg-
inum að vanda, skemmtilegar
uppákomur glöddu yngri og
eldri — og Ferðafélagið og Uti-
vist sáu um skoðunarferðir í
samvinnu við sérleyfishafa. Að
Rútudegi loknum er fróðlegt
að líta á nýjungar í ferðaþjón-
ustu um landið vítt og breitt,
sem þar voru kynntar.
* Ferðaskrifstofa íslands kynnti
nýjar ferðir fyrir íslendinga og
nýtt Edduhótel í Reykjanesskóla
við ísafjarðardjúp. Einnig „vildar-
kjör á Vestfjörðum" — eða 20%
afslátt sem vestfirsku Edduhótel-
in bjóða. Verðdæmi: þijár gisti-
nætur með morgunverði kr. 6.250
fyrir mann í tveggja manna her-
bergi.
* Veitinga- og gistihúsaeigendur
kynntu sumarmatseðil á föstu
verði og afslátt á nokkrum veit-
ingastöðum.
* Landmælingar íslands kynntu
nýtt jarðfræðikort og stóraukna
kortaútgáfu á næstunni.
* Náttúruverndarráð var með
nýjan bækling um akstur utan
vega, sem ferðamenn um landið
eru eindregið hvattir til að kynna
sér.
* Ferðamálasamtök Austuriands
kynntu nýja skoðunarferð um
Mjóafjörð og til Dalatanga, aust-
asta byggða bóls á landinu. Einn-
ig jöklaferðir frá Höfn og báts-
ferðir á Jökulsárlóni.
* Suðurnesjamenn kynntu Bláa
lónið og auknar ferðir þangað frá
Reykjavík.
* Véstfirðingar bjóða auknar
ferðir um ísafjörð og skemmti-
ferðir um Djúpið með nýja bátnum
Eyjalín. Nýtt sérleyfi er á milli
Bijánslækjar og Patreksfjarðar,
Tálknafjarðar og Bíldudals.
* Á Vesturlandi eru fleiri skoðun-
arferðir um Snæfellsnes og tíðari
ferðir yfir Breiðafjörð með nýja
Baldri.
* Á Suðurlandi eru nýjar ferðir
til Veiðivatna, Lakagígá og um
Fjajlabaksleið syðri.
* Á Norðurlandi eru auknar ferð-
ir í tengslum við Grímseyjarfetju
og Hríseyjarfetju frá Dalvík.
* Reykjavík kynnti nýja húsdýra-
garðinn og aukinn ferðaljölda út
frá borginni.
* Kerlingarfjallamenn bjóða enn
í skíðaferðir og kennslu, einnig
TÍMAMIÐI
Miði þcssi gcfur þcr kost á að fcrðast cins mikiðog þú vill
mcð Öllum sérlcyfisbifreiðum á íslandi innan þcirra tima-
takmarka, sem þú velur þér.
Timamiðinn er auðveldur í notkun. Aðcins þarf að sýna
bílstjóra miðann, scgja hvert ferðinni cr hcitið og kvitta
fyrir. Þú gctur farið úr bilnum hvcnær sem cr. og hvar scm
cr. Þú ræður ferðinni algcrlcga sjálfur.
Fjórir valkostir cru i boði:
1 vika kr. 11.000.-
2 vikur kr. 14.500.-
3 vikur kr. 18.H00,-
4 vikur kr. 20.m-
AFSI.ÁTTARKJÖK:
Þér standa til boða margskonar afdátlarmögulcikar mcð
TÍMAMIDA
Gjaldskrá 29. janúar 1990
Leiöandi afí í traustum samgöngum
aðstoð við að hætta reykingum.
* BSÍ kynnti nýju leiðabókina,
sem sýnir stóraukinn ferðafjölda
og kynnti hring- og tímamiða um
landið. Nýjar og glæsilegar rútur
eru vissulega hvatning til ferða-
BSÍ-menn skreyttu básinn með
sóllitaðri leiðabók, merki
Ferðainálaárs Evrópu, falleg-
um Islandsmyndum og flögg-
uðu með blöðrum!
í nýjú leiðabókinni segir, að
hringmiðinn (á kr. 9.500) gildi
til 30. september og hægt sé
að ferðast á sama miða í allt
sumar.
manna að hvfla sig frá eigin
akstri.
* Ferðaþjónusta bænda kynnti
fleiri bæi og aukna þjónustu.
* Vestmannaeyingar kynntu
ýmsar nýjungar, til dæmis nýja
ferðamannabátinn.
* Upplýsingamiðstöð ferðamála
og Ferðamálaráð minntu á sig í
Torfunni og boða stóreflda upp-
lýsingamiðlun.
* Örn og Örlygur kynntu nýja og
glæsilega íslandshandbók.
Að framansögðu má sjá að
ferðamöguleikar íslendinga um
eigið land eru alltaf að batna.
Árið 1990 er Ferðamálaár Evr-
ópu, enda er ferðaþjónusta orðin
ein mikilvægasta atvinnugrein í
heimi.
1 veítSÍa hæða glæsirútan hans Sæmundar var ein merkasta ferðanýjungin sem kynnt var á Rútudegi
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 30. JÚNÍ 1990 15