Lesbók Morgunblaðsins - 17.11.1990, Page 11
B w 1 L A R
mmmmm^^^mmmmm^m^^mmmmí
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. NÓVEMBER 1990 1 1
BMW 520i er rennilegur bíll.
Morgunblaðið/Sverrir
ar 2,6 milljónir. Lítum þá nánar
á hvað fylgir í því verði.
Verðið
Flest af því sem fellur undir
staðalbúnað má telja til eðlilegs
búnaðar í meðaldýrum bíl. En í
staðgreiðsluverði, 2.595.000
krónum er eftirfarandi innifalið:
Vökvastýri, samlæsingar á hurð-
um með þjófavörn, dagljósabún-
aður, litað gler, Blaupunkt út-
varpstæki og segulband með
þjófavörn, BMW hljómkerfi, upp-
hitaðir og rafdrifnir útispeglar,
upphituð hurðalæsing, upphitað
þvottakerfi fyrir framrúðu og
ökuljós, yfirstærð af rafkerfi og
miðstöð, hæðarstillanleg fram-
sæti, þokuljós að framan, inn-
byggð þjónustutölva og sjúkra-
kassi.
Ýmislegt má síðan fá til viðbót-
ar svo sem læsivarða hemla (ABS)
kr. 109.800, læst mismunadrif kr.
58.900, sóllúgu kr. 94.300, raf-
drifnar rúður að framan 59.000
og leðuráklæði kr. 189.000 svo
nokkuð sé nefnt. Út frá þessu
geta menn síðan velt vöngum og
spáð í hvar skal staðnæmast í
vali á aukabúnaði. Ekkert af hon-
um er nauðsynlegt, sumt getur
þó aukið öryggi en annað er meira
til þæginda og skemmtunar.
Af þessu er ljóst að óhætt er
að mæla með BMW - þar kaupa
menn ekki köttinn í sekknum. Og
framundan eru fleiri nýjungar hjá
BMW þegar 300 línan verður
kynnt um næstu áramót sem fljót-
lega mun berast hingað til lands.
jt
BMW breyttist nokkuð að ytra
fyrir nokkrum misserum.
þetta er þó skemmtilegur mögu-
leiki.
Stýrishjólið er stórt og gott og
vökvastýrið létt. Ökumaður sér
vel til allra átta. Þegar farið er
að umgangast bílinn og með-
höndla hann kemur vel í ljós að
áhersla er á vönduð vinnubrögð í
frágangi á stórum sem smáum
atriðum.
Verður seint þreyttur
Vélin í BMW 520i er 150 hest-
öfl, sex strokka, 24 ventla og
tveggja lítra. Bíllinn vegur tómur
1425 kg og dugar vélin vel til að
knýja hann léttilega áfram og ná
snöggu viðbragði. Sjálfskiptingin
er fjögurra þrepa og með stillingu
fyrir venjulegan akstur þar sem
hún skiptir sér mjúkt og eðlilega,
fyrir röskleikaakstur, þ.e. ef menn
eru að drífa sig framúr eða þurfa
á snöggu viðbragði að halda en
þá skiptir hún sér ekki fyrr en á
talsvert háum snúningi og síðan
er sérstök stilling sem nota má
t.d. til að taka af stað í hálku,
en þá skiptir hann sér ekki.
Bíllinn er 4,72 m langur, 1,751
m breiður og 1,412 m á hæð.
Lengd milli hjóla er 2,761 m.
Þyngdardreifingin er jöfn á fram-
og afturhjól og á það sinn þátt í
að skapa hina góðu aksturseigin-
leika bílsins.
Er þá kannski komið að því að
ræða um aðalatriðið, aksturinn.
Um leið og bíllinn er gangsettur
verður vart við einn af mörgum
kostum en það er hversu hljóðlát-
ur bíllinn er. Það heyrast nánast
engin vélarhljóð og vegarhljóð eru
líka í algjöru lágmarki. Auk góðra
sæta og þægilegrar meðhöndlun-
ar er þetta eitt atriðið sem gerir
bílinn eftirsóknarverðan fyrir
mikinn akstur. Gildir þar raunar
einu hvort menn eru að aka lang-
ar leiðir á þjóðvegum eða nota
bílinn mikið í innanbæjarsnúning-
um, þrátt fyrir mikinn akstur í
þessum bíl verða ökumenn seint
þreyttir.
Nákvæmt stýri
Fjöðrun er mjúk og stýrið mjög
nákvæmt. Það þarf ekki að snúa
þvf mikið í venjulegum vinkil-
beygjum. Nokkra æfingu þarf til
að vita nákvæmlega breidd og
lengd ef menn eru að koma bílnum
fyrir í þröngum stæðum en best
er að gera það með því að bakka
að vegg og kíkja síðan aftur fyrir
bílinn til að fá fjarlægðina vel á
tilfinninguna og sama er að segja
með hægra framhornið, til að
staðsetja það nákvæmlega verða
menn hreinlega að fara út og at-
huga fjarlægðina. Það er ekki
gott að prófa sig áfram á svo
dýrum bíl!
Viðbragð og vinnsla eru með
ágætum og raunar varasamt í
innanbæjarakstri hversu fljótur
hann er að ná hraða og hversu
lítið finnst fyrir honum. Þetta
leggur þær skyldur á herðar öku-
manni að hann fylgist sérstaklega
vel með því á hvaða hraða hann
ekur.
Allir aksturseiginleikar eru því
eins og best verður á kosið enda
verður það að vera í bíl sem kost-
Mælaborð er vel búið eins og reyndar billinn allur og framsætin
fá góða einkunn.
BMW 520i -
kraftur og þæg*-
indi ráða ríkjum
Bílaverksmiðjur BMW í Þýskalandi hafa upp á margt að
bjóða með 300, 500 eða 700 línum sínum sem löngu eru
þekktar hérlendis. Bílaumboðið hf. við Krókháls í
Reykjavík tók við umboðinu fyrir fáum árum og hefur
smám saman verið að þoka markaðshlutdeild BMW upp á við.
Kröfurharðir bílakaupendur finna þarna ýmislegt við sitt hæfi
og greiða fyrir það frá hálfri annarri milljón króna og upp í
þijár og allt þar á milli. BMW 520i með sjálfskiptingu er kynntur
hér í dag. Þetta er rúmlega meðalstór bíll með miklum búnaði
sem kostar nærri 2,6 milljónir króna. Nýtt útlit, ný vél og ný
sjálfskipting gera hér góðan bíl enn betri, bíl sem ökumaður
yfirgefur helst ekki þegar hann er einu sinni sestur undir stýri.
Útlit BMW hefur tekið nokkr-
um breytingum síðustu árin.
Fimmhundruð línan er rennileg
og sportleg. Hér er ósvikinn BMW
á ferðinni og þetta er stór bíll og
stæðilegur. Aðalljósin að framan
eru tvöföld, vélarhúsið heldur
lægra en afturendinn og stuðar-
alínan heldur sama svipnum allan
hringinn. Mjó lína eða kantur sker
hliðina í sömu hæð og hurðarhún-
ar og óhætt er að segja að BMW
sé stílhreinn og fallegur vagn.
Allt vandað
Sportlegt útlit, einkum með
hallandi afturrúðu, gerir síður en
svo að draga úr rými að innan.
Farþegar og ökumaður geta allir
setið eins og best verður á kosið
og stillt sætin eins og þeim hæf-
ir. Hægt er að stilla hæðina á
framsætum. Farangursrými virð-
ist ekki mikið, það virkar grunnt
en tekur þó 460 lítra.
v Sem fyrr segir getur farið vel
um alla farþega sem og ökumann
í BMW 520i. Ökumannssæti er
stíft og það styður vel við á alla
kanta. Armpúðar voru við fram-
sætin í bílnum sem prófaður var
en þeir teljast til aukahluta. Séu
þeir hafðir niðri verður að lyfta
þeim upp þegar öryggisbeltinu er
smellt á. Þeir eru því ekki hentug-
ir í innanbæjarakstri eða í stuttum
ferðum þar sem menn fara oft inn
og út úr bílnum. Þeir eru hinsveg-
ar þægilegir við þjóðvegaakstur.
Mælaborðið og rofar þess sem
snerta aksturinn sjálfan eru í
beinni sjónlínu ökumanns og allt
innan seilingar. Miðstöðvarrofar
eru á hefðbundnum stað á borðinu
milli framsæta, svo og útvarpið.
Innbyggð þjónustutölva er
skemmtilegt tæki en hún gefur
til kynna hvenær komið er að því
að láta smyrja, fara með bílinn í
reglubundna skoðun og og árs-
skoðun. Tölvan sýnir græn ljós
meðan allt er í lagi en þegar
áminningar er þörf kemur gult
ljós og síðan rautt sem þýðir að
nú verði að gera eitthvað í mál-
inu, smyija, skoða o.s.frv. Þetta
er vitaskuld hægt að hafa í þjón-
ustubók eins og algengast er en