Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1990, Page 10
er um falleg breiðstræti með svip-
miklum, opinberum byggingum.
Göngugötur og innitorg liggja á
milli breiðstrætanna; gott að
versla hér. Athygli vekja fjöl-
margir, skrautlegir gosbrunnar
enda er Augsburg stundum nefnd
„gosbrunnaborgin". Ágústusar-
brunnur prýðir ráðhústorg —
umgjörð jólaaðventunnar. Fyrrum
borg Ágústusar keisara ber vitni
um þá alúð sem borgarbúar hafa
lagt í skipulag frá fyrstu tíð og
guílöld miðalda.
Frá skóladögum. muna margir
Augsburg-sáttmálans. Lítill
stígur bak við Gallus-kapellu ber
nafnið Dahinab „niður þessa leið“.
Eftir þeim stíg á Martin Lúther
að hafa forðað sér út úr borginni
1512. En hann fékk betri viðtökur
1526 og í Augsburg er vagga
siðaskiptanna. Furðulegt að
ganga inn í Anna-kirkju þar sem
lúterskar og kaþólskar skreyting-
ar mætast í kirkjuskipinu. Mjög
Rómantíski vegurinn
frá ántti Main til Alpanna
Wurzburg
T a u berb is ch hof shei m
Rottmgen
* Bad ^ .
Wergenthetm
Weikers^eim
Rothenburg
Schillingfurst
Feuch
Dinkelsbuhl
Wallerstein |KÍ
iNördlingen
A Harburg
Donauwörth
Augsburg
Friedberg
Landsberg
IHohenfurch
Schongau
Peiting
Rottenbuch
r Wildsteig
Wieskirche
Fiissen
sjá gott sýnishorn gyllinga og
skrauts í Schaezler-höll og Moz-
art-dýrkendur ættu að fara á
„kertaljósa-tónleika“ í hállar-
danssalnum. FaðirMozart fæddist
í Augsburg (Mozart-hús fyrir
ferðamenn) og ætt hans er dreifð
um nágrennið.
Augsburg kom mér á óvart.
Engin hæð sem kallar á kastala-
virki. Aðeins flatlendi — tunga
Teikning af götu-
lífi í Augsburg á
miðöldum. Bygg-
ingar eru hinar
sömu aðeins sam-
göngutæki og yfir-
bragð fólksins hef-
ur breyst.
sem teygir sig fram
milli tveggja alpa-
fljóta. Fyrsta ásýnd
Augsburg birtist í ótal
turnum sem rísa upp
úr ártungunni, ýmist
lauklaga hettur (suð-
ur-þýskt yfirbragð)
eðá örmjóar nálarspír-
ur (gotneskur stíll) sem sjást vel
úr lest. En borgin minnir á fugls-
hreiður á miðri sléttu og leynir á
sér.
Gosbrunnaborg og vagga
siðaskiptanna
Leifar af borgarmúr og falleg
borgarhlið benda til hins róm-
verska uppruna. „Parisarsvipmót-
ið“ leynir sér ekki, þegar gengið
merkiiegt menningarsafn gyðinga
er líka í Augsburg.
Elstu félagslegn
íbúðir í heimi
En merkilegasta af öllu sem
fyrir augu ferðamannsins ber í
Áugsburg er heimsókn í „Fugger-
ei“, elsta félagslega athvarf í
heiminum. Fuggerei er afskermuð
þorpseining í borginni, 110 hús
sem geyma 2 íbúðir hvert. Sex
götur liggja um Fuggerei, sem
hefur eigin kirkju og torg, að sjálf-
sögðu með gosbrunni. Hinir auð-
ugu Fuggerei-bræður sem möluðu
gull fyrir Augsburg með alþjóð-
legum viðskiptum hugsuðu líka
fyrir þörfum fátæka fólksins.
1915 byggðu þeir Fuggerei-þorpið
fyrir fátækar ekkjur eða ekkla.
Og enn í dag er þörf á slíkum
íbúðum. Ársleigan hefur ekki
hækkað frá árinu 1915 „1,71
skt mark, dagleg bænagjörð
amt Ave Maria og bæn fyrir
Fuggerei-fj ölskyldunni. “
Eg þáði kaffibolla hjá
einni ekkjunni. Litla
húsið hennar og litli
garðurinn voru afar
hlýleg og vel við
haldið. Að ganga
þarna innan um
gamla fólkið sem
brosti og bað manni
allrar blessunar er ein-
stök reynsla. Og kl. 20.00
á hveiju kvöldi er þorpshliðunum
flórum lokað. O.Sv.B.
Upplýsingar: Ibúafjöldi um
246 þúsund. Miðja vegu milli
Frankfurt og Miinchen, hrað-
.braut Múnehen/Stuttgart eða
Romantische Strasse frá
Wurtsburg. Touristik-Inform-
ation des Verkehrsvereins
Augsburg e.V. Bahnhofst-
rasse 7, 8900 Augsburg. Sími:
(0821) 36024/502070. Sími á
Frankfurt skrifstofu: 69-2 12
88 51. Fax: 69 75 00 33 19
Hvaða skíðasvæði
höfðar til þín?
Saalbach, Soll, Schladming, Zell am See
HÉR KEMUR III. og síðasta greinin um bestu austurrísku skíða-
svæðin, byggð á breskri könnun. Enn lítum við á aðstöðu fyrir
skíðafólk, snjólíkur, skíðabrekkur og hvaða fólk sækir helst á
staðina.
Ósköp jólalegt og afslappandi í fallegu landslagi og sól.
Saalbach, 1000 m
Snjólíkur 5*. Salzburg 1 'A tími.
Fyrir „vel skóað" miðlungs skíða-
fólk. Siðfágaður, dýr skíðabær
sem býður upp á aðdáunarverða
blöndu af töfrum austurrísks
þorps og vel skipulögðu, víðáttu-
miklu skíðasvæði báðum megin í
þröngu dalverpi - tengt ná-
grannábæjunum Hinterglemm og
Leogang (lengra frá). Brekkur vel
merktar og vel viðhaldið. Fullt af
vinalegum veitingáhúsum í fjalli.
Sunnan megin dalsins er gott að
fá sér hádegisverð, skiðabrekkur
hægar, en snjóalög óörugg. Erfið-
ari brekkur norðan megin. Mynd-
rænn miðbær og að mestu iaus
við umferð. Mikið um að vera í
börum um kaffileytið og fram
eftir kvöldi.
Ódýrari gisting í Hinterglemm,
með því að fórna töfrum þorpsins
- en þægileg fyrir skíðafólk. Hót-
el og gististaðir með morgunverði
meðfram vegi milli Saalbach og
Hinterglemm eru óaðlaðandi, en
ekki tiltakanlega óþægilegir
vegna bíla sem flytja skíðafólk
að lyftustöðum. Zell am See og
Kitzstein jöklasvæðið eru rétt hjá
og heimsóknar virði. Heimsmeist-
arakeppni á skíðum um mánaða-
mótin janúar-febrúar.
KOSTIR: Aðlaðandi skíðastað-
ur, stórt skíðasvæði fyrir miðl-
ungs-skíðagetu, mikið við að vera
eftir skíði, stutt á næsta flugvöll.
ÓKOSTIR: Dýrt, ekki hægt að
skíða yfir 2000 m, fáar krefjandi
brekkur.
HÓTEL: Ingonda (íburðarmik-
ið, dýrt, góður matur), Saalbac-
herhof (líka mjög þægilegt og
miðsvæðis), Wallner (ódýrara,
miðsvæðis) og Krallerhof (nálægt
Leogang, einangrað lúxushótel,
mikil gæði, þægilegt skíðahótel,
skíðaskóli).
Schladming, 750 m
Snjólíkur 4*. Fyrir áhugasamt
miðlungs skíðafólk. Salzburg 1 'A
tími. Myndarlegur, gamall skíða-
bær í austurískum stíl - ekki
undirlagður af ferðaþjónustu. Góð
blanda af fallegum og einföldum
gististöðum. Skíðasvæðin 4 bjóða
upp á margar, góðar, langar
brekkur (mest „rauðar") milli
tijánna, að meðtalinni „heimsbik-
ars“ brunbrautinni. En fjölbreytni
er takmörkuð og engar lyftuteng-
ingar milli svæðanna. Rohrmoos
er langbesta svæðið fyrir byijend-
ur. Þar er frábær, löng sleða-
braut. Lyftupassi nær yfir öll
svæðin - áhugaverður fyrir skíða-
fólk á eigin bíl.
KOSTIR: Stutt á næsta flug-
völl, áhugaverður, líflegur bær,
mikið af „rauðum" brekkum.
ÓKOSTIR: Lágt, sundurslitið
skíðasvæði, fáar krefjandi brekk-
ur, miðbær óþægilegur fyrir skíð-
afólk.
HÓTEL: Alte Post (gamaldags,
þægilegt, miðsvæðis), Sporthotel
(nýtískulegt, þægilegt skíðahót-
el), Neue Post og Tritscher (mið-
svæðis, ódýrt).
Zell am See, 750 m
Snjólíkur 5*. Fyrir hópa eða
hjón sem vilja komast á skíði eða
sækja í aðra útiveru. Salzburg 1
tími. Fallegur, gamall bær, sem
stendur við fjallavatn og fjölfarið
vega- og jámbrautarkerfi. Göngu-
götur með tilhöggnum steinum í
miðbæ. Gömul kirkja í rómversk-
um stíl. Göngustígar meðfram
vatninu. Fullt af börum og veit-
ingahúsum. Fjölbreyttar verslan
ir. Góðar gönguskíðabrautir. Mik-
ið við að vera fyrir fólk sem ekki
fer á skíði; íþróttahallir, skoðunar-
ferðir, lyftur upp að veitingahús-
um í fjalli, gönguferðir á vatni (ef
það er ísilagt). Miðbær óþægileg-
ur fýrir skíðafólk og úthverfi
óvistleg, að meðtöldum Schutt
dorf, sem er óaðlaðandi svefnbær
fyrir hópa í pakkaferðum.
Skíðasvæðið er ekki stórt en
myndrænt og fjölbreytt, með
háum, auðveldum brekkum og
erfiðari, lengri brautum niður í
bæ. Kitzstein jöklasvæðið í næsta
nágrenni býður upp á frábærar
skíðabrekkur, nema þegar það
yfirfyllist í snjóleysi á neðri svæð-
um. Saalbach, rétt hjá, er heim-
sóknar virði.
KOSTIR: Heillandi gamall mið-
bær, fjörugt næturlíf, hægt að
komast á jökul, fallegt landslag.
ÓKOSTIR: Biðraðir, erfiðar
skíðabrautir niður í bæ fyrir
óvana, aðalskíðasvæði liggur lágt.
HÓTEL: Traube og Alte Post
(miðsvæðis, góð hótel) og Sch-
webebahn (dýrt, þægilegt skíða-
hótel).
Soll, 700 m
Snjólíkur 4*. Fyrir miðlungs-
skíðafólk í leit að fjöri. í meðal-
lagi aðlaðandi og ekki mjög þægi-
legt týrólskt skíðaþorp, sem
breskir skíðamenn sækja mikið.
Hótel og gististaðir einfaldir og
ódýrir. Hávært næturlíf í krám
og á diskótekum. Fáein hótel ná-
lægt lyftustöð, en einangruð frá
næturlífi. Miðlungs-brekkur í
skóglendi. Víðáttumikið skíða-
svæðið tengist svæðunum Ellmau,
Scheffau, Itter Going, Hopfgarten
og Brixen - öll undir sama lyftu-
passa, — og einnig Westendorf,
en þangað er ekki lyftutenging.
Soll er vinsælt hjá Bretum sem
‘ eru að fara í fyrsta skipti á skíði,
en brautir við bæinn eru meðal
erfiðari á svæðinu. Westendorf
og Elimau eru betri fyrir byijend-
ur. Nýlega er búið að bæta úr
erfíðum flöskuhálsum í lyftukerfi
Soll.
KOSTIR: Risastórt miðlungs
skíðasvæði, fjörugt næturlíf, stutt
á flugvöll, mikið af ódýrum gisti-
heimilum.
ÓKOSTIR: Mikið af háværum
Bretum, verður að ganga frá þorpi
að lyftustöð.
HÓTEL: Neue Post, Austria
(þægilegt, miðsvæðis) og Berg-
land (vel búið, þægilegt skíðahót-
el).
O.Sv.B.