Lesbók Morgunblaðsins - 12.01.1991, Síða 11
12. JANUAR 1991
Horft yfir hina risastóru sviss-
nesk-frönsku skíðaparadís„Les
Portes du Soleil".
Það reyndust stórgóðar fréttir fyrir skíðaunnendur, þegar hundruð
bíla stóðu fastir á evrópsku hraðbrautunum í byrjuðum desember
— snjónuin kyngdi niður í Ölpunum! Og í frönsku Ölpunum — þar
sem mörg skíðasvæði hafa síðustu vetur neyðst til að bjóða upp á
tennis, hjólreiðar eða gönguferðir — byrjaði að snjóa í nóvember
og snjóaði svo mikið í desember að loka varð nokkrum fjallaskörð-
um til skíðaþorpanna. Frönsku skíðasvæðin opnuðu flest opinber-
lega um jólahelgina. Og við höldum áfram að skyggnast um á skíða-
svæðunum.
Alpe d’Huez, 1800 m
Snjólíkur 7. Fyrir sólbaðsdýrk-
endur og skíðafólk svörtu braut-
anna. Grenoble 1 'A tími; Genf eða
Lyon 2 'A. Stór nýtískulegur skíða-
staður með góðum hótelum og
líflegu skemmtanalífi. Þorpið
óskipulegt og ljótt, en ekki óþægi-
legt vegna skíðalyfta í öllum hom-
um. Best að dvelja efst við Grand-
es Rousses-lyftuna. Risastórt æf-
ingasvæði rétt ofan við þorpið. En
frá efstu lyftustöð eru mjög langar
svartar brautir og ævintýralegar
brekkur utan brauta, en ekki auð-
veldar. Mikið af brekkum á móti
suðri og vestri, en ísing eða krapi
oft vandamál. Skíðasvæðið tengist
hinu kyrrláta, gamla Vaujany þorpi
og Auris, lítil gistihúsaþyrping fyr-
ir skíðafólk.
Ein vígaleg
með snjó-
bretti — eitt
nýjasta leik-
fang skíða-
manna.
KOSTIR: fallegt útsýni; góðar
æfingabrekkur; hátt liggjandi,
dýrt, fjölbreytt og krefjandi skíða-
svæði; stuttar fjarlægðir; fjörugt
næturlíf. ÓKOSTIR: ljótt, illa
skipulagt; vandræðaleg aðstaða
fyrir miðlungs skíðafólk; biðraðir;
dýrt. HÓTEL: Christina vinalegt,
lítið hótel, þægilega staðsett eins
og Chamois d’Or, dýrara, frábær
matseðill; Du Rissiou og Etendard
(Vaujany) eru ódýr fjölskylduhótel.
Megeve, 1.100 m
Snjólíkur 6. Fýrir aðdáendur
franska alpastílsins. Genf 1 'A tími.
Fallegur bær með glæsileik áranna
fyrir stríð; aftur í tísku í kjölfar
endurnýjana í lyftukerfi: að mestu
búið að tengja aðskildar brautir og
draga úr biðröðum; flestar hægu
brautirnar tengdar við Saint Gerva-
is. Eitthvað um umferðarhnúta á
aðalgötu gegnum bæinn, en aðeins
göngugötur í hlýlegum miðbæjar-
kjama, með miðaldakirkju, göml-
um húsum í alpastíl og sleðum.
Úrval af glæsilegum eða einföldum
hótelum. Lyftupassi nær yfir allt
Mont Blanc-svæðið (að Chamonix-
dal meðtöldum): þægilegra að vera
með bíl. Næturlíf með glæsibrag
en dýrt. Fjölbreytt afþreying og
skemmtanalíf fyrir þá sem ekki
fara á skíði.
KOSTIR: fallegt landslag;
víðáttumikið miðlungs skíðasvæði;
góð hótel; rótgróinn bær; skemmt-
analíf með glæsibrag; góð veitinga-
hús í bæ og fjalli; góðar göngu-
skíða- og göngubrautir. ÓKOSTIR:
skíðabrekkur liggja lágt; skíðabær
í þéttbýli með tilheyrandi umferð;
aðskilin skíðasvæði, óþægilega
langt frá miðbæ; skortur á kre-
fjandi brautum. HÓTEL: Le Mont
Blanc glæsilegt, miðsvæðis; Chalet
Mont d’Arbois þægilegt skíðahótel;
Castel Champlat ódýrt, miðsvæðis.
Morzine, 1.000 m
Snjólíkur 6. Fyrir aðdáendur
franska alpastílsins. Genf 1 tími.
Gamall skíðabær sem minnir á
austurrískt alpaþorp: vinaleg fjöl-
skylduhótel í alpastíl; skíðasvæðið
í fallegu skóglendi (tengt við Les
Gets); glaðvær veitingaþjónusta í
fjallakofum; fjörugra bæjarlíf um
kaffileytið en á kvöldin. Morzine
er þröngur og óþægilegur fyrir
skíðafólk og umferðarhávaði trufl-
andi. I hlýindum getur snjó skyndi-
lega tekið upp í bænum, en rútur
og lyftukláfar ganga upp til Avor-
iaz (1.800 m), hliðið inn í hina risa-
stóra fransk-svissnesku skíðap-
aradís Portes du Soleil, sem er
gott skíðasvæði með öruggum snjó.
KOSTIR: góð fjölskylduhótel í
frönskum alpastíl; fallegt landslag;
stuttar fjarlægðir; gott göngusk-
íðasvæði; lyftur ganga upp í mið-
svæði Portes du Soleil (sami lyftup-
assi). ÓKOSTIR: lágt liggjandi
skíðasvæði í bænum, umferðarháv-
aði. HÓTEL: Le Dahu vinalegt,
góður matur, fallega en óþægilega
staðsett; Airelles þægilegt, eigin
sundlaug; Chamois d’Or einfalt,
vinalegt, þægilegt.
Tignes, 2.100 m
Snjólíkur 8. Fyrir kappsfulla
skíðamenn! Genf eða Lyon 4 'A tími.
Hægt að skíða árið um kring í
Grande Motte, einu stærsta og
besta jöklaskíðasvæði Alpanna.
Hátt liggjandi, fremur veðurbarinn
nýtísku skíðastaður umkringdur
stórbrotnum, skeifulaga skíða-
brekkum. Skiptist í 3 hluta: Val
Claret er best staðsett í allar lyft-
ur; frá Tignes le Lac er óþægilegra
að komast í Grande Motto en fjör-
ugra bæjarlíf og úrval ódýrari gisti-
staða; Le Lavachet óþægilegra.
Skíðasvæðið býr yfir góðum æf-
ingabrekkum við Val Claret, frá-
bærum löngum brautum niður í
gamla þorpið Les Brevieres (góður
hádegisverðarstaður) og frábær
tenging við Val d’Isere (sami lyft-
upassi). Úrval af brekkum utan
brauta.
KOSTIR: öruggur snjór; vel út-
búið skíðasvæði með ótakmörkuð-
um möguleikum fyrir krefjandi
skíðamenn; þægileg gisting.
ÓKOSTIR: langt að komast; óað-
laðandi skíðastaður á hijóstrugu
svæði; nöturlegur i myrkri og
slæmu veðri; fáir góðir veitinga-
staðir í fjalli; dýrt. HÓTEL: Ski
d’Or (Val Claret) dýrt, góður mat-
ur; Alpaka (Tignes le Lac) einfalt,
þægilegt, sanngjarnt verð.
Grein II
i Avoriaz
Morzine
LesGets* *
Chamonix
St Gervais. •
Megeve*
Grenoble
Vaujany
f Alnp rtp'Hno7.
O.SV.B.
Holl hreyfing á gönguskíðum.
o