Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1991, Síða 6
Fridurnar tvær. 1939, olía.
Frida árið 1931, 24 ára gömul.
Frida Kahlo fæddist í Coyoacan, rétt fyrir utan
Mexíkóborg árið 1907. Reyndar var hún vön
'að gefa upp 1910 sem fæðingarár sitt, en það
ár hófst mexíkóska byltingin. Faðir Fridu var
gyðingur af ungversku bergi brotinn. Hann
Sagan er full af dæmum
um listamenn sem hafa
skapað ódauðleg verk
sárþjáðir, en trúlega eru
fáir sem hafa notað
sársauka sinn á jafn
beinskeyttan og
afdráttarlausan hátt og
mexíkóski málarinn
Frida Kahlo. Þó sumum
virðist verk hennar
óhugnanleg við fyrstu
sýn, víkur óhugnaðurinn
við nánari athugun og
áhorfandinn undrast
einlægni málarans og
hugrekki.
Eftir HRAFNHILDI
SCHRAM
hafði flust frá Evrópu árið 1891 til Mexíkó
og þar kvæntist hann móður hennar, Matt-
hildu, sem var af spánsk-indíánskum upp-
runa. Vilhjálmur faðir Fridu gerðist ljós-
myndari í Mexíkó og starfaði þar fyrir stjórn
einræðisherrans Porfírio Diaz. Fjölskyldan
var í góðum efnum fram til ársins 1910 er
bylting bænda og verkamanna braust út,
leidd af þjóðsagnapersónunni Emiliano Zap-
ata, og Diaz var settur af eftir meira en
aldarfjórðung við völd. Faðir Fridu sem
hafði fengið viðurkenningu sem afburða
ljósmyndari missti starf sitt og íjárhagur
fjölskyldunnar versnaði verulega.
Þegar Frida var sex ára gömul fékk hún
lömunarveiki og var rúmliggjandi í 6 mán-
uði. í veikindunum einangraðist hún frá fjöl-
skyldu sinni og leikfélögum. Þegar hún loks
komst á fætur, kom í ljós að hægri fótur
hennar hafði rýrnað og varð hún því í æsku
oft skotspónn annarra barna. A gömlum
ljósmyndum sem faðir hennar tók má oft
sjá Fridu, klædda drengjafötum, einangraða
fyrir utan fjölskylduhópinn. Frida var send
í menntaskóla í Mexíkóborg og þar átti hún
góð ár. í lífi hennar ríkti hamingja og eftir-
vænting eins og oft er títt um ungt fólk sem
lífið virðist blasa við, þar til ógæfan dundi
yfír.
Frida var 18 ára gömul og er að und-
irbúa sig undir inntökupróf í læknadeild.
Hún situr í gömlum strætisvagni sem fer
eftir breiðgötu í Mexíkóborg þegar sporvagn
ekur í leið fyrir vagninn með þeim afleiðing-
um að sporvagninn ýtir vagninum á undan
sér langan spöl þar til strætisvagninn
splundrast. Fjöldi farþega ferst samstundis
en F’rida hryggbrotnar á þremur stöðum og
fætur hennar eru illa lemstraðir. Járnstöng
gengur inn í kviðarhol hennar og út um
Diego og ég. 1949. Olíulitir á masónít.