Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1991, Blaðsíða 11
FEREMBMÐ
lesbókar
Flogið til og
frá Möltu um
Heathrow-
flugvöll - fyrir
stríð - og í
upphafi stríðs
Jörðin okkar er alltaf að minnka. Fjarlæg lönd færast óðfluga
nær á fjölmiðlaöld og stríð í arabaheimi sem áður sýndist fjarlæg-
ur er nú við bæjardyrnar. Stríðsótti breiðir sig út um allan heim
og grípur um sig jafnvel hér á íslandi. - Aldrei hefur verið meiri
þörf á að ólíkar þjóðir kynnist og skilji hvor aðra, en sjaldan
hefur ótti vegna hótana um hryðjuverk legið eins yfir alþjóðaflug-
völlum og þéttsetnum ferðamannastöðum sem nú.
Á Heathrow-flugvelli 10. og
12.janúar
Heathrow-flugvöllur var eins
og friðsamasti staður í heimi þeg-
ar ég gekk þar um 10. janúar.
Fáir á ferli og varla sást varðmað-
ur. Voru allir hættir að ferðast?
En 12. janúar á leið til Möltu fann
ég fyrir nálægð stríðsógna. Á leið
út á flugvöll prófar leigubílstjór-
inn neyðarbúnað og aðalstöð svar-
ar: „Hljóðmerki munu berast frá
þér löngu eftir að þú hættir að
heyra í okkur." Kaldur hrollur
hríslast um mig og ósjálfrátt fer
ég að horfa á hjólastólabúnað
bílsins. - Hvað skyldu margir
þurfa á „þeim“ að halda ef tii
stríðs kemur?
Brottfararsalur er þéttsetinn
af flugfarþegum og biðröð að
brottfararhliði ótrúlega löng. Það
er ekki nýtt að sjá vopnaða lög-
reglu á Heathrow en þær voru
Yfirheyrsla í biðröð að innritunar-
borði„Pökkuðuð þið sjálf? - Hvaða
rafmagnstæki eruð þið með? -
Hvernig rafhlöður eru í rakvél-
inni?“ Töskur eru ekki settar á
beltin heldur teknar til hliðar í
gegnumlýsingu. Yfirheyrsla við
vegabréfsskoðun. Handfarangur
rækilega skoðaður. En við megum
þakka fyrir allar þessar öryggis-
ráðstafanir, sem eru jú gerðar
fyrir okkur sem erum að ganga
hér í gegn.
Á Möltu þegar klukkan tifar
nær
Hvert sæti í Airbus-flugvél Air
Malta er setið. Um 75% farþega
sýnast Möltubúar að koma úr inn-
kaupaferð af janúarútsölum í
London. Hinir eru viðskiptamenn,
eitthvað um fjölmiðlafólk en fáir
að fara í hvfldarferð til Möltu á
þessum árstíma. Þjónusta um
borð er til fyrirmyndar, enda fékk
flugfélagið verðlaun fyrir bestu
flugþjónustuna ’90 frá Thomson
Holidays - einni stærstu ferða-
skrifstofu í heimi.
Á Möltu eru húsmæður farnar
að búa sig undir stríðsátök og
búðir tæmast óðum af nauðsynja-
vöru. Enda var hart barist um
þessa litlu eyju og mikilvægu
flotastöð í seinni heimsstyijöld.
En nú heyrast raddir eins og:
„Hvers vegna ætti einhver að ráð-
ast á okkur? Við erum svo litlir,
vinir allra og framleiðum ekkert"
- eða „guði sé lof að við tökum
ekki þátt í hernaðarsamstarfi ann-
ars væru hafnir hér fullar af her-
skipum.“
Og óttinn þrengir sér enn frek-
ar inn yfir eyjabúa. Bandaríska
sendiráðið var að biðja um at-
hvarf fyrir eiginkonur og fjöl-
skyldur hermannanna, sem vilja
vera nálægar. Eigendur lítt set-
inna hótela eru fljótir að sam-
þykkja, en á einni nóttu streyma
yfir þá hótanir með bréfum og
símhringingum. - Ef þið hýsið
bandarískar fjölskyldur verða hót-
el ykkar sprengd í loft upp! Og
saklaus hótelpöntun verður heitt
ríkisstjórnarmál, sem trúlega
verður ekki samþykkt. Og dag-
blöðin fyllast af greinum - með
og á móti. Og úrslitadagurinn
færist nær.
Morgunflug 17.janúartil
London
Einkennilegt að vakna klukkan
'5 að morgni og heyra stríð sé
hafið handan við sundið. Þjónninn
sem færir okkur morgunmat, seg-
ir aðeins: „Þáð er byijað." Og það
er eins og bílstjórinn okkar sem
áður var svo glaðvær, hafi sigið
saman í sætinu. Útvarpið á fullu.
Óhugur í öllum. Það rignir á
Möltu og hunangsgulu sand-
steinahúsin eru dökk í morgun-
skímunni. Mæting kl. 6 út á flug-
völl. Brottför kl. 8.
Langar biðraðir, blikkandi
ljósaskilti og tilkynningar með 5
mínútna fresti. Það á ekki að fara
framhjá okkur - að rafmagnstæki
eru ekki leyfileg í farangri. Hver
einasti smáhlutur er tekinn upp
úr töskum og grandskoðaður.
Rakvélin er mjög grunsamleg sem
áður og hárúðunarbrúsi með
óvanalegu merki er tekinn til hlið-
ar. - Skyldi myndbands-upptöku-
véljn mín verða tekin'af mér?
Öryggiseftirlitið ber farþegana
í gegnum öll hlið - maður tekur
við af manni og ég hætti að hugsa
sjálfstætt. Síðasta hindrun og ég
er komin í gegn eða hvað? En
maður kemur hlaupandi á eftir
mér. Meiri skoðun á myndbands-
vél. Og skyndilega er kallað ímig: