Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Blaðsíða 10
betra hjá Beru. Klíkuskapurinn er alls ráð- andi; núna er það bara önnur klíka. Hér er stór hópur listamanna, sem búnir eru að skapa myndlist með góðum árangri í ára- tugi og það er ekki ein einasta mynd til eftir þá í safninu. Þú spurðir hvort.ég væri tregur að selja safninu myndir og ég get svarað því játandi. Helzt vildi ég fá keyptar aftur þessar fáu myndir, sem þar eru, - áreiðanlega fengi ég þær á gjafverði. Það sem kannski er grátlegast undir stjórn Beru er þegar aftur og aftur blasir við, að safnið hefur fest kaup á slöppustu myndinni á sýningunni. Miklu oftar blasir hinsvegar við, að safnið hefur alls ekkert keypt, þótt ástæða væri til þess. Með for- stöðukonunni eru til málamynda í safnráð- inu þeir Hafsteinn Austmann og Kristján, sem frægastur er fyrir straubrettið með hænsnaskítnum. Ég segi til málamynda, því forstöðukonan hefur neitunarvald. Og þarna virðist einfaldlega ekki vera fyrir hendi til- finning fyrir því, hvað er góð myndlist. Forstöðukonan er alltaf að tala um að stoppa í einhver göt, en hvað um þau göt að fjölda listamanna vantar alveg. Sumt af því sem þarna hefur gerst er fyrir neðan allar hellur; til dæmis sýning á sovézkri „samtímalist", sem var ekki annað en prump. Hvaða erindi hingað eiga rússneskar eftirlíkingar á vestur-evrópskri konseptlist? Hér er verið að kosta uppá agnariítinn minnihlutahóp, sem enga hugmynd gefur um samtímalist í þessu víðfeðma ríki“. „Listamenn tala oft um allskonar klíku- skap, sem hefur ugglaust alltaf verið til. En er hann meiri eða minni en áður?“ „Nú veit ég ekki; sjálfur er ég ekki í neinni klíku. En eitt af því sem hefur breyzt er fjölmiðlafárið. Nú er hægt að auglýsa allan skollann upp ef menn þekkja rétta menn og nenna að standa í því. Eins er það, að fámenn klíka ræður því hvaða er- lendar sýningar við fáum að sjá og eins hveijir úr röðum íslenzkra listamanná eru valdir á sýningar í útlöndum. Breytingin er þó ekki sízt sú, að nú eru það einhveijir skriffinnar í ráðuneytum og bírókratar sem kalla sig sjálfir listfræðinga, sem ráða þessu núna. Listamenn eru aðeins hafðir með í ráðum til málamynda. v Þetta fólk er yfirleitt félagslega snarr- uglað. Og okkar eigin samtök eru alveg máttvana. Félag íslenzkra myndlistarmanna hefur afsalað sér öllum áhrifum um mynd- listarsamstarf á Norðurlöndum; félagið hef- ur engu hlutverki að gegna lengur. Nýjum samtökum, SÍM, Sambandi íslenzkra mynd- listarmanna er afhent þetta, - þessi samtök sjá um Norðurlandasamskipti. Svo klikkað erþetta, að einstakir listamenn, sem kannski eru í fýlu út í FÍM, þeir ganga bara í SÍM og fá þar einstaklingsaðild. Norðurlandasamstarfið á myndlistarvett- vangi er eitt prump, sem stjómað er frá Sveaborg. Þar ráða einhverjar listsögulærð- ar kellíngar og yngri listamenn þora ekki að segja múkk við bírókratana til þess að falla ekki í ónáð. Ekki svo að skilja að þeir séu endilega í náðinni. En þeir halda í þá von að einhvemtíma muni náðarsólin skína á þá. í náðinni er hinsvegar afar þröngur hópur“. „Nú hafa þær breytingar orðið á Kjarvals- stöðum frá því sem áður var, að mun færri listamenn geta tekið salina á leigu og hald- ið einkasýningar. Ertu ánægður með þá þróun?“ „Nei, og ég hef reyndar heyrt að margir listamenn tali nú um að sniðganga húsið með því að sýna þar ekki. Þar á meðal ér ég. Það er núverandi forstöðumaður, Gunnar Kvaran, sem er höfundur þessarar stefnu og hefur kallað yfir sig þessi viðbrögð. Það fer eftir geðþótta hans hvað fær þar inni. Sjálfur efast ég um, að ég fengi þar inni, en á það mun ekki reyna. Eg vil að Kjarvals- staðir verði áfram reknir eins og var undir stjórn Þóm Kristjánsdóttur, þijár og jafnvel íjórar sýningar í einu og listamönnum gef- inn kostur á að taka salina á leigu. Fyrir nokkmm ámm átti ég sæti í stjórn Kjarvalsstaða. Þá þótti okkur heldur illilega tekin af okkur ráðin, þegar við stóðum gegn því að Jakob heitinn Hafstein fengi að sýna. Við töldum hann ekki hafa burði til að sýna á þessum stað. Samstarfið sprakk; við Ein- ar Hákonarson sögðum af okkur og Jakob fékk að sýna sínar saklausu heiðagæsir. Núna hef ég aðra skoðun á þessu. Setjum svo að Jakob hefði borið gæfu til að útmála í myndum sínum bandarískar stríðsvélar í Víetnam í stað heiðagæsanna, þá hefði hon- um undir eins verið tekið með fögnuði. Auðvitað var Jakob nógu góður málari til að sýna þama. Ég hef líka heyrt, að Pétur Friðrik hafí ekki fengið þar inni núna og „Ég sá ekki hinn bílinnu Eftir EINAR ÓLAFSSON það þykir mér alveg fráleitt og raunar er ég hissa á því, ef hann tekur því bara þegj- andi og hljóðalaust." „Ersú hætta fyrirhendi, að Kjarvalsstað- ir verði einhverskonar fílabeinsturn og að hinn almenni listunnandi telji sig ekki hafa neitt þangað að sækja?“ „Já, mér sýnist að svo geti farið og hú- sið verði þá þýðingarlaus hlekkur í alþjóð- legri keðju framúrstefnugallería og safna á meginlandinu og að sýningar þar verði eins- konar prívat sendibréf á milli safnstjóra. Upphefðin er öll þeirra, en ekki listamann- anna.“ „Hefurþá tilkoma listsögufræðinga orðið til hins verra?" „Já, og það er ekki ofsagt. Listin hefur komist af án þeirra um aldir og ég lít ekki öðruvísi á þá en afætur á listinni." „Þú hefur átt þátt í að mennta svo til allt þetta fólk, sem nú fer hamförum í sýn- ingarhaldi. Ertu ánægður með afraksturinn; er íslenzk myndlist við góða heilsu?“ „Æ, ég get ekki svarað því. Ég held að hún bjargist. En auðvitað er þetta meira og minna eintóm della eins og margt hjá okkur. I Myndlista- og handíðaskóla íslands em á þriðja hundrað nemendur. Það er jafn- vel meira en gerist hjá stórþjóðum. Til dæm- is eru aðeins teknir 8 nemendur á ári inn í myndhöggvaradeild fínnsku Akademíunn- ar. Við erum aftur á móti að útskrifa upp undir 40 manns árlega. Um það mannval vil ég segja að 9 af hveijum 10 væru miklu betur komnir á Jívöldnámskeiðum; þeir eiga ekkert erindi í myndlist." „En fara samt í framhaldsnám?“ „Það er upp og ofan. Myndlistarmönnum fjölgar gífurlega, en góðum myndlistar- mönnum ekki. Það þýðir að meðalmennskan verður ríkjandi afl. Einn og einn stendur þó alltaf uppúr“. „En vinnur allur þessi íjöldi að myndlist með einhverjum hætti?“ „Nei, sem betur fer. Megnið gufar upp, en þetta fólk er þá þúið að sólunda fjármun- um og tíma til einskis. Ég kunni ákaflega illa við þessa þróun í skólanum eftir að fjölga tók til muna. Þetta var og er röng stefna. í leiklistarskólanum er aftur á móti rétt staðið að verki. Ætli það séu ekki 8 nemendur, sem útskrifast þaðan á ári hveiju; allt fólk sem á erindi í leiklist. Myndlista- og handíðaskólinn á að standa að þessu tvennu: Myndlist og handíðum. En allir vilja vera listamenn, sama í hvaða deild þeir eru. Mér sýnist að skólanum þyrfti að skipta í tvennt. Fá handíðimar sér. Á því sviði vantar fólk, snjalla iðnhönn- uði til dæmis, sem gegna þýðingarmiklu hlutverki í nútímanum. Skólinn er á villigöt- um eins og hann er. Hann er á villigötum eins og Listasafnið og Kjarvalsstaðir". „Okkur hefur orðið tíðrætt um stofnanir listarinnar, en tilefni þessa spjalls eryfírlits- sýning þín í Hafnarborg. Finnst þér þegar þú lítur yfir þróunarleið þína síðan 1944, aðþú hafír verið lengi að fínna sjálfan þig?“ „Svo sannarlega. Það gæti kannski verið einhveijum ungum til huggunar, að ég vissi ekki almennilega hvað ég vildi fyrr en ég var kominn um fimmtugt. Það eru ýmsir millikaflar á þessum ferli. í íjögur ár gerði ég ekki annað en teikna myndir í sögu Haralds konungs harðráða. Það hefur verið árin 1955-59. Það var myndasaga, sem birt- ist í Þjóðviljanum á sínum tíma, 500 mynd- ir alls. í málverkinu hef ég hinsvegar ekki sótt myndefni í fomöldina; mér fannst hún of grá til þess. En uppúr 1960 tók ég upp þráðinn á nýjan leik og fór að mála aftur. Það var allt abstrakt, mjög dökkar og þung- ar myndir; ég veit ekki hversvegna. Síðustu abstraktsýninguna hélt ég á Kjarvalsstöðum 1978, en þá var breytingin að gerast innra með mér; þá vissi ég loks hvað mér hentaði. Myndefnið sótti ég á tímabili til sjávarins og sjávarsíðunnar. Að hluta til voru það áhrif frá „Þorpinu", ljóðabók Jóns úr Vör, sem ég myndlýsti. En síðan er ég aftur farinn að mála konur, svo það má segja að ég sé kominn í hring; kominn þangað sem ég byijaði. Nú stend ég á sjötugu og get nú loks einbeitt mér að minni eigin mynd- list. Það eru mikil viðbrigði. Líklega hef ég aldrei málað eins mikið og síðasta áratug." „Sjötugur málari með yfírlitssýningu og líturj'fir farinn veg: Ertu sáttureða bitur?“ „Ég tel að ég sé sáttur þó ég hafi ekki orðið óskabarn einhverra bírókrata. En mér hefur verið vel tekið síðustu 15 árin og ég hef ekki yfir neinu að kvarta". GÍSLI SIGURÐSSON Hver er orsök þeirra um- ferðarslysa, sem erfitt er að útskýra? í huga flestra eru aðalástæð- ur umferðarslysa reynsluleysi ungra ökumanna, ölvunar- akstur eða akstur und ir áhrifum fíkniefna að ógleymdum glanna- skap og þar með töldum hraðakstri. En það er margt fléira sem þarf að gefa gaum að í sambandi við orsakir umferðarslysa. Erlendis hafa verið gerðar tilraunir með að kenna ökunemum miklu lengur en tilskil- ið er í þeim tilgangi að þeir kæmu út í umferðina betur undirbúnir en aðrir. Það kom á óvart að þessir „úrvals" ökumenn ollu miklu fleiri og verri slysum en þeir, sem höfðu fengið hefðbundna þjálfun í akstri. Ástæðan fyrir þessu er talin sú að þessir ökunemar ofmátu hæfni sína sem ökumenn. Þetta bendir til þess, að sú skoðun margra sé óraunhæf, að lengri kennslutími með ýtarlegri þjálfun ungra ökunema dragi úr umferðarslysum. Með rannsóknum sínum hafa vísinda- menn komist að þeirri niðurstöðu að sál- rænt og geðrænt ójafnvægi ökumannsins valdi megin hluta slysanna sem rannsóknar- menn eiga erfitt með að finna orsökina fyrir. Læknirinn og sálfræðingurinn heims- kunni Sigmund Freud setti fram þá kenn- ingu suemma á þessari öld að í undirvitund sérhvers manns væru sterkar og andstæðar hvatir: sjálfseyðingarhvötin annars vegar og hins vegar lífshvötin. Sjálfseyðingarhvöt- in hjá fólki verður einkum áberandi, þegar það á við líkamleg veikindi að stríða, verður fyrir mikilli sorg, hefur þungar áhyggjur og er haldið streitu. Hættulegast verður þetta hjá fólki sem er haldið innri lægð (geðhvörfum), þar getur sjálfseyðingarhvöt- in náð algjörum yfirráðum og leitt til sjálfs- víga. ' Af þessu má ráða að samfara þessar uppgjöf sem fylgir því er sjálfseyðingarhvöt- in má sín meira en lífshvötin getur gert ökumann sem tilheyrir þessum flokki fólks að líklegri slysavaldi en þann sem er í jafn- vægi milli þessara hvata. Tvær nýlegar rannsóknir í Bandaríkjunum leiða í ljós greinilegt samband á milli geðbrigða og slysa þar sem 'A hluti látinna ökumanna hafði verið haldin alvarlegu þunglyndi áður en þeir lentu í slysunum. Sálfræðingamir töldu að meðvituð eða ómeðvituð sjálfs- morðshvöt (hæsta stig sjálfseyðingarhvatar- innar) væri oft orsök slysa. í Bandaríkjunum er þetta mest áberandi eftir að einhver fræg persóna hefur svipt sig lífi en þá eykst tíðni sjálfsvíga um nálega 10%. Þarna er greini- lega þunglyndi með í för. í þessum slysum er ökumaðurinn venjulega einn í bifreiðinni en það bendir til geðbrigðasjúkdóms, þar sem ekkert er fjær í hugum þessa fólks en að vilja skaða aðra en sjálft sig. Gerð var könnun á slysavöldum innan lögregluliðsins í borginni Provence í Banda- ríkjunum. Rannsóknin beindist einkum að þeim lögreglumönnum sem lentu óeðlilega oft í umferðarslysum. Það kom í ljós að geðrænar ástæður fyrir umferðarslysum, sem lögregluþjónar voru valdir að, voru ólík- ar eftir aldri þeirra. Eldri mennirnir reynd- ust flestir haldnir þunglyndi þ.e. þeir til- heyrðu hópnum sem hefur aðallega verið hér til umræðu. Yngri lögreglumennimir, sem ollu oft slysum, voru fullir heiftar og haturs í garð annars fólks. Hér er mál að snúa sér að lífshvötinni. Henni geta fylgt miklar hættur þegar nei- kvæðir fylgikvillar fara að móta atferli manna. Fjölda þeirra sem fínnst þeim ógnað af umhverfinu rísa gegn því vegna þess að „lífshvötin" hjá þeim er miklu sterkari en „sjálfseyðingarhvötin". Þessi vamarvið- brögð em sjálfsögð og eðlileg sérhveijum heilbrigðum manni. En oft verða viðbrögðin svo hastarleg að vörnin er ekki lengur nein vöm heldur breytist í árásargirni, hatur og hefndarþorsta. Þetta fólk er misáir algjör- lega andlegt jafnvægi sitt og þegar allt fer á versta veg getur þetta komið fram sem geðsjúkdómurinn „paranoia" eða ofsóknar- bijálæði og þá getur einstaklingurinn orðið öðru fólki hættulegur og stórhættulegur ökumaður. Sennilega er það fátítt að þeir sem svona fer fyrir séu mikið á ferðinni á ökutækjum. Árásarhvöt og hefnigirni eru greinileg hjá fjölda ökumanna. Ökulagið kemur upp um þá og þú, lesandi góður, ættir næst þegar þú ferð út í umferðina að athuga hve langan tíma það tekur þig að fínna fyrsta ökumanninn af þessu taginu. Sálfræðingar sem hafa kannað þetta hafa komist að þeirri niðurstöðu að slysavaldar, sem haldnir eru árásargirni, meðvitaðri eða ómeðvitaðri, séu einkum þeir einstaklingar sem hafa frá blautu barnsbeini vanist á að leysa vandamál sín með valdbeitingu. Sál- fræðingarnir segja að þetta fólk bregðist oftast harkalega við hvers konar mótlæti. Þegar ýmis óvænt atvik gerast í umferðinni eitnr og t.d. umferðarhnútur, klaufaskapur annarra ökumanna eða framúrakstur, þá bregst þetta fólk gjarna við því með tillits- lausum og grófum akstri sem oftlega endar með umferðarslysi. Þótt mörg slys verði vegna þessa andlega jafnvægisleysis eða skapbrests ökumanna er það þó eigi að síður álit vísindamanna að ökumenn sem haldnir eru þunglyndi (þarf ekki að vera sjúklegt) eða depurð sé fímm sinnum hættara við að farast í bílslysi en fólki sem er í andlegu jafnvægi. Sálfræðingar telja einnig öruggt að orsök slysa megi rekja til lyndiseinkunnar viðkom- andi og viðbrögðum hans við utanaðkom- andi álagi. Bandarísk rannsókn á þriggja til fímm ára gömlum drengjum sýndi áð slysatíðni á heimilunum var miklu meiri hjá þeim, sem auk þess að vera árásargjarnir áttu mæður er haldnar voru umtalsverðri streitu eða voru sérlega uppstökkar. Streita er oft orsakavaldur umferðar- slysa. Það kemur ekki á óvart ef haft er í huga hve stutt bilið virðist vera á milli streitu annars vegar og þunglyndis eða dep- urðar hins vegar. Þær eru orðnar margar lögregluskýrslumar bæði hér á landi og erlendis þar sem gefur að líta stutta setn- ingu sem hljóðar svo: „Ég sá ekki bílinn“. Þetta er örugglega sannleikur. En ástæðan fyrir því að ökumaðurinn sá ekki hinn bílinn er oftast sú að athyglisgáfa hans er skert. Streita, kvíði, depurð, sorg eða þunglyndi valda oftast skerðingunni. Ef fólk væri sér meðvitað um ástand sitt og hagaði akstri sínum í samræmi við skerta hæfni sína til þess að aka bifreið, mætti komast hjá mörg- um umferðarslysum. Það vill svo til að grein- arhöfundur þekkir allmargt fólk sem er haldið eða hefur verið haldið geðbrigðasjúk- dómi, einkum geðlægð, sem er hættulegasta tegund þunglyndis. Þetta fólk hefur allt verið í meðferð hjá geðlæknum vegna sjúk- dómsins og veit um takmarkaða hæfni sína til þess að aka bifreið. Ekkert af þessu fólki hefur valdið umferðarslysum þrátt fyrir sjúkdóminn. Greinarhöfundur leitaði upplýsinga hjá Umferðarráði um þetta atriði en -enn hafa engar skipulagðar rannsóknir farið fram sem geta bent til þess að reynslan hér á landi sé önnur en erlendis, þegar alvarlegt þunglyndi virðist vera aðal orsakavaldur umferðarslyss. Ástæðan fyrir því að skipulegar rann- sóknir á eðli og orsökum umferðarslysa hérlendis hefur ekki farið fram mun vera fjárskortur. Rannsókn sem framkvæmd var á Spáni sýndi að ökumenn sem hafa fremur háa greindarvísitölu lenda miklu sjaldnar í umferðarslysum en þeir er hafa lægri greindarvísitölu. Skýringin á þessu er ein- föld. Þeir þekkja sjálfa sig og þekkja sín takmörk og ætla sér ekki um of. Höfundur er fyrrv. lögreglumaður. Heimildir: lllustreret Videnskab; tölubl. nr. 7 1990 Die Zukunft der lllusion; 1927: Sigmund Freud

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.