Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Blaðsíða 15
Volvo 960 er ríkulega búinn bíll þar sem tvinnað er saman nýjungum, þægindum og öryggi.
Volvo 960 - einn með öllu
Ný sjálfskipting
Sjálfskiptingin er enn ein nýj-
ungin í Volvo 960. Fjögurra
þrepa skiptingin er staðalbúnað-
ur en hún hefur að geyma þijár
stillingar. Vetrarstillingu (W)
má nota í hálku en þá tekur
bíllinn af stað í 3. gír og skiptir
síðan mjúklega í 4. Er þá lítil
hætta á að hann spóli óg þar
hjálpar einnig til sjálfvirka mis-
munadrifslæsingin. Sportstill-
ingin (S) er fyrir þá sem vilja
þeysa um á háum snúningi og
hegðar hún sér nánast eins og
um handskiptingu væri að ræða.
Hin venjulega stilling eða spa-
rakstursstillingin (E) er hin eðli-
lega stilling en með henni ná vél
og gírkassi metri hagkvæmni.
Skiptingin er í öllum tilvikum
mjög mjúk og jafnvel þótt bílnum
sé þjösnað framúr. Þá er nýtt í
þessari sjálfskiptingu að hún
heldur bílnum á sama hraða og
dregur raunar úr honum þegar
bensíngjöf er sleppt. Er það eink-
ar þægilegt til dæmis í lesta-
rakstri þegar ekið er skrykkjótt
í mikilli umferð. Þá þurfa menn
ekki sífellt að vera með fótinn á
hemlunum.
Það er létt verk og skemmti-
legt að aka Volvo 960. Vinnslan
er þannig að bíllinn getur bók-
staflega flogið áfram. Vélin er
hljóðlát og ekki truflast menn
af vegarhávaða. Galli var þó á
þessum 1000 km akstri okkar
norður af Gautaborg að bílarnir
voru á nagladekkjum. Mest var
ekið á venjulegum þjóðvegum en
tækifæri gafst einnig til að kom-
ast á mjóa og krókótta sveita-
vegi (sem hefðu mátt vera fleiri
og lengri) og oft var hálka. Við
allar þessar aðstæður koma akst-
urseiginlegar Volvo 960 vel í ljós.
Fyrir utan viðbragðið má nefna
nákvæmt stýri og rásfestu, gott
útsýni og auðvelda meðhöndlun
í hvívetna, mjúka skiptingu með
fjölbreyttum notkunarmöguleik-
um og hemlalæsivörnin gefur
vissa öryggistilfínningu þegar
draga þarf snögglega úr ferð í
hálkunni.
Verð og staðalbúnaður
Volvo 960 er ríkulega búinn
og af staðalbúnaði má m.a. nefna
eftirfarandi: Rafstýrðar læsing-
ar, rúður, sóllúga og útispegla-
stillingar, aflstýri, hraðastilling,
innbyggt barnasæti, þriggja
punkta öryggisbelti í miðjusæti
að aftan ásamt höfuðpúða, heml-
alæsivörn, lesljós, rúðuvökva-
mælir, þokuljós að aftan, hemla-
ljós í afturglugga, hleðslujafnari,
veltistýri, sjálfvirk mismuna-
drifslæsing, útvarp, segulband
og geislaspilari með tilheyrandi
Afturendinn er með nýju sniði og opnast skottlokið nú alveg nið- Mælaborðið er einnig vel búið og það er með nýju yfirbragði.
ur að stuðara sem auðveldar hleðslu. Bílasíminn var útbúinn með sér hljóðnema þannig að ökumaður
þarf ekki að halda á sjálfum simanum þegar talað er - allt til
að auka öryggið ef menn þurfa á annað borð að tala í síma í akstri.
hita eftir að bíllinn hefur staðið
úti yfír frostnótt.
Mælaborð er breytt. Uppbygg-
ing er svipuð, mælar varðandi
akstur og vél beint fram af öku-
manni og miðstöð og útvarp til
hliðar en nýr svipur er á öllu
yfirbragði þess. Hanskahólf er
ekki mjög stórt en ágætt auka-
hólf er milli framstóla.
Vélin er í einu orði sagt öflug
og hún er líka hljóðlát. Þetta er
ný þriggja lítra, sex strokka, 24
ventla og 204 hestafla línuvél,
að mestu byggð úr áli. Vinnsla
hennar er sérlega góð á mjög
víðu snúningssviði og hefur verið
lögð megin áhersla á það fremur
en að ná miklum hámarkshraða.
Því má skjóta hér inn að hann
. er ekkert lélegur því þegar við
létum gamminn geysa á sérs-
taktri reynsluakstursbraut náð-
um við 210 km hraða. Það er
víðast hvar yfir leyfilegum mörk-
um nema á þýskum hraðbraut-
um! Hröðun úr kyrrstöðu í 100
km má ná á 8,9 sekúndum og
uppgefin eyðsla er 13,2 1 í borg
og hún á að fara niður í 7,3 úti
á vegum. Meðaleyðslan er 10,5
lítrar.
hátölurum.
Listinn er mun lengri en fyrir
þennan bíl með búnaði þarf að
greiða kr. 3.998.000. Þetta er
staðgreiðsluverð fyrir bíl kominn
á götuna. Fjárfestingin er mikii
en það fæst líka ýmislegt fyrir
hana. Volvo 960 er traustvekj-
andi bíll og er sannarlega einn
með öllu.
jt
Hinn nýi Volvo 960 var kynnt-
ur hjá Brimborg um síðustu
helgi en þessi bíll tekur við
af 760 sem verið hefur flagg-
skip Volvo til þessa. Volvo 960
telst til lúxusbíla, einn með
öllu, er óhætt að segja. Hann
hefur verið á teikniborðinu og
í mótun nánast allan niunda
áratuginn og jafnvel þótt
segja megi að útlitið sé ekki
byltingarkennt hefur 960 að
geyma í senn nýjungar og
gæði sem vandlátir munu
fagna. Þessu fengu blaðamenn
frá Islandi að kynnast í
Svíþjóð nýlega er Volvo og
umboðið á Islandi, Brimborg,
kynntu 960 bílinn með öllu
sem honum fylgir og 940 líka.
Auk þess að aka bílunum
kringum 1000 km heimsóttum
við nokkrar rannsókna- og til-
raunadeildir Volvo. í dag
kynnum við okkur hvað er á
bak við Volvo 960.
Sver sig í ættina
Þrátt fyrir breytt útlit 960
sver hann sig í ættina. Framend-
inn er nánast hið hefðbundna
Volvo andlit síðustu ára. Grillið
og aðalljósin ná saman og mynda
eina heild og stefnu- og ökuljós-
in á framhorninu ná örlítið
lengra aftur með bílnum. Stuðari
er verklegur og nettari en á 760
bílnum og fer stuðaralínan lárétt
umhverfis allan bílinn. Skottlokið
er hærra en áður og gefur aukið
íými og afturhornin eru orðin
ávöl og méð mýkri línum en í
760 bílnum. Volvo 960 er álitleg-
ur bíll og leikur enginn vafi á
því að hér er nýr bíll á ferðinni
þrátt fyrir skyldleikann við eldri
bræður. Það er ekki oft á áratug
sem Volvo kemur á markað með
nýja línu og hér hefur tekist að
móta og tvinna saman ákveðna
íhaldssemi og varfærni inn í hina
nýju línu.
Helstu mál og vog eru: Lengd
4,87 m, breidd 1,75 m, hæð 1,41
m og hjólhaf 2,77 m. Þyngd
1570 kg, bensíntankur tekur 80
lítra, beyjuþvermál er 9,9 metrar
sem er gott hjá svo löngum bíl.
Þægindi og öryggi
Að innan sitja þægindin í fyr-
irrúmi en örygginu er þó ekki
gleymt. Farþegar sitja við sama
borð í þessum efnum, ailir hafa
höfuðpúða og þriggja punkta
öryggisbelti, líka miðjufarþeginn
í aftursætinu. Nýjung í 960 er
barnabílstóll í armpúða í miðju
aftursætis. Þegar armpúðinn er
felldur niður má lyfta hluta hans
upp á ný og kemur þá í ljós hent-
ugur barnabílstóll. Barnið notar
venjulega öryggisbeltið og er
sætið ætlað 3 til 10 ára börnum.
Velja má leður- eða plussá-
klæði á sætin og er óhætt að
segja að þau séu öll þægileg.
Fótarými er gott bæði í fram-
og aftursætum og höfuðrými
sæmilegt þrátt fyrir að sóllúgan
lækki loftið örlítið. Sætastilling-
ar eru hefðbundnar og þar getur
hver maður fundið sína stillingu.
Rafknúnar stillingar á framsæt-
um er aukabúnaður. Farþegar'í
fram- og aftursætum hafa lesljós
og miðstöðvarblástur dreifist vel
um allan bílinn. Miðstöðin er
reyndar sér kapítuli. Hún er með
fimm hraðastillingum og hægt
er að stilla sjálfur hita og blástur
eða láta sjálfvirknina um það.
Er þá stillt á það hitastig sem
menn óska og miðstöðjn sér um
að viðhalda því. Er hún aðeins
örfáar mínútur að ná 20 stiga
Barnabílstóll er í miðju aftursætis og er hann sambyggður armp-
úðanum.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 2. MARZ 1991 15