Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 02.03.1991, Qupperneq 14
akstri, en það verður að segjast eins og er, að maður hefur til- hneigingu til að aka honum greitt. Hann er miklu meiri sport- bíll, en sumir sem seldir eru und- ir slíku merki og eru tvöfalt eða þrefalt dýrari. Þá þarf ekki að efa að sjálf sportútgáfan, Peuge- ot 205 GTi sé skemmtileg, búin 204 hestafla vél og með hröðun í hundraðið uppá 8,8 sek. og hámarkshraða 202 km. á klst. Af öðrum gerðum má nefna þann sem auðkenndur er með GRi og hefur 1400 rúmsm. vél og fer í hundraðið á 10,6 sek, sportgerð- ina CTi cabriolet, sem er blæju- bíll með veltigrind, 1900 rúmsm. vél og sama tíma í hundraðið. Það markverðasta við Peugeot 205 Junior er kannski það, að hann fæst fyrir kr. 600 þúsund eftir verðlækkun á allri Peugeot- línunni, sem umboðinu tókst að semja um. Það er aðeins 130 þúsundum hærra verð en á Skoda, sem Jöfur hefur einnig umboð fyrir, um 60 þúsund kr. lægra en á Suzuki Swift og um 200 þúsundum lægra verð en á algengum japönskum smábíl svo sem Daihatsu Charade. Á und- anförnum árum hefur verið óhag- stætt verð á frönskum bílum og kannski hefur ekki verið reynt nægilega að ná hagstæðum samningum. Nú virðist þetta hafa breyzt. Eins og að líkum lætur er lít- ill íburður í svo ódýrum bíl. í mælaborðinu er bara einn stór hraðamælir ásamt bensínmæli. Annað er gefíð til kynna með viðvörunarljósum. Það sem mestu máli skiptir er þó, að sæt- in eru vel formuð, hæfilega mjúk og fara í alla staði vel með mann. Öll stjórntæki vinna eins og bezt verður á kosið. Þeir sem vilja hafa dálítið barok og allskyns dúlluverk í kringum sig í bíl, finna það ekki í Peugeot 205 - en það finna þeir heldur ekki í Mercedes Benz. Verkfræðingar Peugeot hafa kosið að leggja áherzlu á það sem meira máli skiptir, nefnilega vélina og undir- vagninn og það, hvemig tilfinn- ing það er að aka bílnum. Á þann hátt gerðu þeir Peugeot 205 að trompi, sem hefur gagnast fyrir- tækinu vel úti í Evrópu. Hinsveg- ar virðist það hafa verið vel varð- veitt leyndarmál á íslandi. Gísli S. Var Jagúar of stór biti? Þetta er sjálf grundvallargerð- in af Peugeot 205. Að óreyndu gæti maður haldið, að þama væri það sem kallað er á ensku „basic transport", þ.e. grundvall- ar farartæki, nógu gott til að skila ökumanni og þremur far- þegum frá einum stað til annars. Vélin, fjögurra strokka og þver- stæð að framan, er ekki nema 954 rúmsm. og sú vitneskja eyk- ur ekki bjartsýni um mikinn kraft. En þrátt fyrir svo lítið rúm- tak og aðeins 55 hestafla orku, sem miðlað er til framhjólanna, kemur Peugeot 205 Junior geysi- lega á óvart. Þetta er í sem fæst- um orðum sagt úlfur í sauðarg- æm. Ekki sakar það heldur, að eyðslan er í kringum 5-7 lítrar á hundraðið og vel undir 5 í þjóð- vegaakstri, en það helgast m.a. af því, að bíllinn er ekki nema 750 kg. Af því leiðir einnig, að það munar um hvern manninn, sem í honum situr. Ég reyndi hann ekki hlaðinn, en undir mér einum var hann sprækur eins og foli. Hröðun uppá 14.2 sek. í hundraðið segir ekki nema hálfa söguna. Gírar eru fyórir áfram og gírskiptingin afar nákvæm og lipur. Hlutföllin milli gíranna eru skynsamleg, svo í 1. og 2. er hann ágætlega sprækur. Hinsvegar er ekkert verið að fara með hámarkshrað- ann nema í 162 og mætti reynd- Frá og með árinu 1986 settu bandarísku Ford-verksmiðjumar á markað nýjar gerðir, sem vöktu athygli og seldust eins og heitar iummur. Þetta var fráhvarf frá hinum dæmigerða ameríska bíl; hönnunin var í evrópskum anda eins og bezt sést af bílum eins og Ford Taurus og Mercury Sable. Talið er að þessi breytta og bætta hönnun hafí átt mestan þátt í að Ford gat fagnað mestum hagnaði í lok áttunda áratugarins af bandarísku bílaverksmiðjunum. Nú hefur það gerzt, að sam- dráttur í efnahagslífi þar vestra hijáir mjög bílaframleiðsluna þar, sem stendur höllum fæti gegn sífellt vaxandi samkeppni af hálfu Japana. I fyrsta sinn síðan 1982 hefur það gerzt, að ársfjórðungs- leg útkoma hjá Ford er neikvæð. Sala á amerískum bílum hrapaði um 31% í janúar og annað eins hefur ekki átt sér stað í 20 ár. General Motors hefur farið verst út úr þessu með ársfjórðungstap uppá 1.4 milljarða Bandaríkja- dala. Aftur á móti er Chrysler réttu megin við strikið, þótt hagn- aðurinn sé nánast enginn. Ástæður samdráttarins hjá Ford eru taldar þær, að þar á bæ hafí menn haldið sig of lengi við hið vinsæla útlit frá 1986, þ.e. Taurus/Sable-hönnunina. Það sem verra er: Ný andlitslyfting á Taurus er ekki fyrirhuguð fyrr en 1995. Evrópudeild Ford hefur að undanförnu skilað verulegum hagnaði, en nú kreppir einnig að þar. í Bretlandi hefur sala hjá Ford dottið niður um 21% borið saman við sama mánuð í fyrra og í ráði er að stöðva framleiðslu þar einn dag í viku, því 100 þúsund ósleldir bílar af tegundinni Escort hafa hlaðizt upp. Nú er talið, að í velgengni sinni hafí Ford keypt Jagúarinn á of háu verði, sem var 2.5 milljarðar Bandaríkjadala. Ford þurfti þar að auki að kosta miklu til að end- urnýja úreltar Jagúar-verksmiðj- ur. Það kemur sér illa, að sala á Jagúar hefur á sama tíma dregizt saman, svo nam 47% í síðastliðn- um janúar. Ford Taurus þótti sérlega vel teiknaður bíll og seldist vel. Nú er hinsvegar talið að Ford hafi ekki nægilega haldið vöku sinni og að nýtt útlit hefði þurft að vera komið. Jaguar 4,0. Ford ætlaði að styrkja stöðu sína með kaupunum á Jaguar, en líklega hefur þetta verið of dýr biti. Peugeot 205 Junior - grundvallargerð sem leynir á sér. Verðið er kr. 600 þúsund. Peugeot 205 - vel varðveitt leyndarmál á íslandi Peugeot 205 kom fyrst á markað í janúar 1983 og hefur verið framleiddur með lítið breyttu útliti í 8 ár. Sumarið 1983 varð hann fáanlegur með dísilvél, í janúar 1984 kom sú spræka GTi-útgáfa og 1986 varð hann fáanlegur sem blæjubill og með sjálfskiptingu. Ennþá sprækari GTi-útgáfa, 130 hestafla, kom svo 1988. Þetta er bíll sem Fransmenn elska og raunar er hann geysi- lega vinsæll víða í Vestur-Evr- ópu. Þetta er hinsvegar bíll, sem íslenzkir bílakaupendur hafa ekki lært að meta svo sem vert væri, en þeir sem hafa kynnst honum og eiga hann, bera á hann mikið lof. Sá sem reyndur var í þetta sinn er Peugeot 205 Junior, fjög- urra dyra, eða raunar fímm, því lúgan á afturendanum opnast samkvæmt hinni vinsælu og praktísku formúlu, svo hægt er að flytja furðu stóra hluti, séu aftursætisbökin lögð niður. Þetta er handhægur bíll til að skjótast í á stórmarkað, þegar verzla þarf fyrir vikuna. En um leið er það bíll, sem vandlátir bílaáhuga- menn aka sér til ánægju. ar hafa hann minni okkar vegna. Eins og í öllum smábílum er í Peugeot 205 veigalítil vöm gegn árekstri og þvi er ábyrgðarhluti að búa slíka bíla með miklum hámarkshraða. Mér er minnisstætt, að eitt sinn ók ég bílaleigubíl úti í Evr- ópu af þessari gerð og líkaði stór- vel. Það sem mér kom mest á óvart í ekki stærri bíl; lengdin er 3.7lm - var hvað hann leynir hraðanum. Á 100 km hraða er hann eins og margir. hliðstæðir bílar eru á 75-80 km hraða. Og það er frómt frá sagt unun að aka honum, ef menn hafa á ann- að borð gaman af slíku og kunna að meta góðan grip, hvort sem hann er dýr eða ódýr. Eins og reglan er um franska bíla, er Þannig opnast afturendinn og aftursætisbökin er hægt að leggja niður. Aftursætisbakið er tvískipt, sem getur komið sér vel, ef þrír ferðast í bílnum. Peugeot 205 mjúkur á fjöðrum og sú mýkt eyðir að nokkm leyti smábílahreyfingum, sem mörg- um þykja hvimleiðar. Hann er eins og nærri má geta framúr- skarandi lipur í innanbæjar- MVUWI iTTíí ® ® | »-*: .>•« m s® ! / mælaborðinu á Junior er hraðamælir og bensínmælir. Annað sem þarf að vita, er gefið til kynna mcð Ijósum. 14

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.